Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Núllið færir þér daglega allt það sem er efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Hvort sem það eru friðarviðræður í Norður Kóreu eða nýjasta Gucci beltið, þá munt þú heyra það fyrst í Núllinu með Jaf... more
FAQs about Núllið:How many episodes does Núllið have?The podcast currently has 94 episodes available.
June 06, 20186. júníPétur Marteinn, stjórnmálaspekingur þáttarins, útskýrði nýja persónuverndarlöggjöf í stuttu máli og Karl Liljendal Hólmgeirsson, yngsti þingmaður Íslandssögunnar, sagði frá fyrstu dögunum á Alþingi. Við spiluðum líka brot úr Lestinni þar sem rætt var við Tuma Björnssön, einn af mönnunum á bakvið Facebook síðuna Kaupa dót....more0minPlay
June 05, 20185. júníGuðrún Veturliðadóttir frá Stelpur rokka kom og ræddi um það sem er framundan hjá þeim og Elli Egilsson myndlistarmaður ræddi listina og sýningu sem að hann opnaði nýlega í Norr 11. Geir Finnsson var á sínum stað með tölvuleikja og tækni hornið en í dag var það nýr Pokémon leikur sem að bar hæst á góma. Síðan hringdum við Í Vigdísi Jakobsdóttur, listrænan stjórnanda Listahátíðar Reykjavíkur, og hún fræddi okkur um það sem er helst að gerast í borginni næstu dag....more0minPlay
June 04, 20184. júníVið hringdum í Kristínu Jónu Skúladóttur sem að útskrifaðist nýlega sem húsasmiður og Lovísa Rut Kristjánsdóttir sem er þáttarstjórnandi hlaðvarpsþáttarins Örbylgjuofninn kíkti til okkar. Tískuhornið var á sínum stað með Kareni Björgu Þorsteinsdóttur sem að ræddi í dag um endurkomu hlébarðamynstursins og Aron Már Ólafsson, eða aronmola, var mánudagsgestur....more0minPlay
June 01, 20181. júníVið hringdum í Emmsjé Gauta þar sem hann var á leiðinni úr Herjólfi, 13 daga Íslandstúrinn hans hófst á miðvikudaginn og fer vel af stað. Egill Spegill plötusnúður sagði okkur hvað er að gerast um helgina og Herra Hnetusmjör mætti með nýtt lag til okkar. Þáttarstjórnendur hlaðvarpsþáttarins Veistu hvað?, Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir komu og sögðu okkur aðeins frá þættinum, sem hægt er að nálgast í fullri lengd á ruvnull.is...more0minPlay
May 31, 201831. maíHaukur Harðarson fór yfir það sem er helst að frétta úr heimi íþróttanna og við hringdum í Kristborgu Bóel rithöfund og ræddum ástarsorg. Gréta María Birgisdóttir ljósmóðir kom og sagði okkur frá starfinu og því sem að hefur verið áhersluatriði hjá þeim í kjarabaráttunni. Elín Elísabet Einarsdóttir og Sunna Axelsdóttir verða með feminíska þætti á RÚVnúll streyminu sem að bera heitið Smá pláss, þær sögðu okkur aðeins frá þáttunum og hvernig það er að vera kona....more0minPlay
May 29, 201829. maíVið ræddum við Björn Berg fræðslustjóra Íslandsbanka sem að stendur fyrir fræðslukvöldi fyrir ungt fólk í þeim hugleiðingum að kaupa sér sína fyrstu íbúð. Sindri Ástmarsson dagskrárstjóri Iceland Airvawes kom og sagði okkur frá því helsta sem er að frétta á þeim bænum, Vera Illugadóttir útskýrði aðeins fyrir okkur ástandið og sögu Norður-Kóreu og Geir Finnson var með sitt vikulega tölvuleikjahorn. Við heyrðum líka brot úr hlaðvarpsþættinum Ástin með Nínu Hjálmarsdóttur sem að hóf göngu sína hér á RÚVnúll á mánudag....more0minPlay
May 28, 201827. maíPétur Marteinn Urbancic Tómasson fór stuttlega yfir niðurstöður sveitarstjórnarkosningana. Emmsjé Gauti fór yfir ferilinn í mánudagsviðtalinu og Karen Björg Þorsteinsdóttir kenndi okkur að versla notuð föt....more0minPlay
May 25, 201825. maíVið hringjum í Gunnlaug Hans, Gettu betur stjörnu og útskriftarnema og ræðum um það hvernig er að standa á þessum tímamótum og Rannveig S. Sigurvinsdóttir aðjunkt í Sálfræði fjallar um frásagnir af kynferðisbrotum á samfélagmiðlum. Aron Can mætir og segir frá nýjustu plötunni sinni, Trúpíter, og Egill Spegill segir okkur frá því sem er að gerast um helgina....more0minPlay
May 24, 201824. maíVið töluðum um veðrið við Elínu Björk Jónasdóttur og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson sagði frá því helsta sem er að frétta úr heimi íþróttanna. Við ræðum við yfirbruggara Malbygg brugghúss, Berg Gunnarsson, um kókosbollubjór sem að þeir hafa hafið framleiðslu á, hljómsveitin Gróa mætti til okkar með nýju plötuna sína og Jóhann Kristófer kom og reyndi að útskýra það sem að hefur verið í gangi á Twitter reikningi Kanye West....more0minPlay
FAQs about Núllið:How many episodes does Núllið have?The podcast currently has 94 episodes available.