Sara Þöll Finnbogadóttir frá Hinu húsinu sagði frá pólitísku partýi sem fer þar fram og Pétur Marteinn Urbancic Tómasson stjórnmálaspekingur þáttarins ræddi framboðin í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Jónína Björt Gunnarsdóttir frá twitter óperunni Bergmálsklefinn komu og ræddu sýninguna og hljómsveitin Bagdad brothers tóku lagið í stúdíóinu.
Geir Finnson er á sínum stað með tölvuleiki og tækni, Guðmundur Kristján Jónsson skipulagsfræðingur útskýrir hugtökin Borgarlína og Miklabraut í stokk og Alexandra Ýr van Erven formaður Ungmennaráðs UN Women á Íslandi segir frá því sem er framundan hjá þeim. Hljómsveitin Munstur mætti og spjallaði um nýjasta lagið sitt og Ísak fór á stúfana og heyrði hvað brennur helst á ungu fólki fyrir sveitastjórnarkosningarnar.
Viðmælendur: Jakob Birgisson MR-ingur í prófum - Heimildarmynd: Söngur Kanemu - Egill Spegill fer yfir helgina - Logi Pedro með nýja plötu - Gunnar Helgason með bókina Ísland á HM.
Viðmælendur: Reykjavíkurdæturnar Steiney Skúladóttir og Ragga Hólm - Stuttmyndin Hann, Daði Freyr um þáttöku Íslands í Eurovision - María Thelma leikkona nýlent frá Cannes, Haukur Harðarson fer yfir lokahópinn fyrir HM.
0 min
About Núllið
From the publisher's feed
Núllið færir þér daglega allt það sem er efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Hvort sem það eru friðarviðræður í Norður Kóreu eða nýjasta Gucci beltið, þá munt þú heyra það fyrst í Núllinu með…