Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Núllið færir þér daglega allt það sem er efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Hvort sem það eru friðarviðræður í Norður Kóreu eða nýjasta Gucci beltið, þá munt þú heyra það fyrst í Núllinu með Jaf... more
FAQs about Núllið:How many episodes does Núllið have?The podcast currently has 94 episodes available.
July 05, 20185. júlíÞað er íþróttastemming í þætti dagsins, HM Hákon er kominn til landsins og mætti til þess að spá í spilin fyrir 8-liða úrslit helgarinnar. Edda Sif Pálsdóttir fór yfir það helsta sem er að frétta úr heimi íþróttannna, fyrir utan HM, og svo hringdum við í Heiðar Ásgeirsson sem er staddur á Landsmóti hestamanna í Víðidal og forvitnuðumst aðeins um það....more0minPlay
July 04, 20184. júlíElín Sif Halldórsdóttir og Reynir Snær Magnússon eru kærustupar og samstarfsfólk, þau voru að gefa út sitt fyrsta lag saman og komu og sögðu okkur aðeins frá því. Hlökk Þrastardóttir og Margrét Erla Þórsdóttir starfa í listhópi Hins hússins undir nafninu Sumar í Reykjavík, þær hafa reynt undanfarið að fanga tíðaranda borgarinnar og sögðu okkur frá afrakstrinum....more0minPlay
July 03, 20183. júlíVið sláum á þráðinn til Atla Más Steinarssonar, umsjónarmanns Rabbabara, en fyrsti þátturinn í vefseríunni verður frumsýndur í kvöld á Prikinu. Geir Finnsson var á sínum stað með það helsta úr tölvuleikjaheiminum og við hringdum vestur á firði þar sem Jónas Alfreð Birkisson og Gunnar Smári Jóhannesson eru að kenna leiklist og undirbúa tökur á stuttmynd....more0minPlay
July 02, 20182. júlíAlbert Guðmundsson er nýlentur frá Rússlandi og er mánudagsgestur þessarar viku. Karen Björg er á sínum stað með tískuhornið, að þessu sinni ræðum við hvernig skal klæða sig í brúðkaupi. Síðan ræddum við við Þórð Jörundsson sem að útskrifaðist nýlega úr vöruhönnun og var innblásinn af byltingum eins og #karlmennskan....more0minPlay
June 29, 201829. júníStrákarnir í ClubDub eiga vinsælasta lag landsins um þessar mundir, þeir mættu og ræddu nýfengna frægð ásamt því að frumflytja splunkunýtt lag. Egill Spegill er á sínum stað eins og alla föstudaga og fer yfir það helsta sem að er að gerast um helgina og Nanna Gunnarsdóttir segir okkur allt um Reykjavík Fringe hátíðina sem að hefst í næstu viku....more0minPlay
June 28, 201828. júníRunólfur Trausti Þórhallsson íþróttafréttamaður fór yfir allt það helsta sem er að frétta úr íþróttunum, fyrir utan heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Það sá HM-Hákon um, en hann spáði í spilin fyrir 16 liða úrslitin og rýndi í framistöðu íslenska liðsins. Inga Steinunn Henningsdóttir og Björg Steinunn Gunnarsdóttir eru ungar stelpur sem að ásamt Nikulási Tuma Hlynssyni mynda sketsahópinn Viðundur. Viðundur frumsýnir fyrsta þáttinn sinn á morgun, föstudag, í Bíó Paradís....more0minPlay
June 27, 201827. júníPétur Marteinn er á sínum stað eins og aðra miðvikudaga og að þessu sinni útskýrir hann fyrir okkur flóttamenn og hinn meinta flóttamanna vanda. Við hlustum á brot úr Síðdegisútvarpinu á RÁS 2 þar sem að Nína Richter fór yfir tengsl samfélagsmiðla og sjónvarps. Síðast en ekki síst fór Ísak í heimsókn í HM höllina hjá Jakobi Birgissyni og fangaði stemminguna á meðan leik Íslands og Króatíu stóð....more0minPlay
June 26, 201826. júníGeir Finnsson var á sínum stað með tölvuleikjahornið og ræddi að þessu sinni meðal annars stríð milli Nintendo og Microsoft annars vegar og Sony hins vegar. HM Hákon talaði í beinni frá Spáni og spáði í spilin fyrir leik Íslands og Króatíu sem að fer fram í kvöld. Við heyrðum líka brot úr hlaðvarpsþættinum Ást þar sem að Nína Hjálmarsdóttir fjallaði um ástarsorg....more0minPlay
June 25, 201825. júníBergur Ebbi er mánudagsgestur þessarar viku og við fórum saman yfir ævi hans og störf í bland við heimspekilegar umræður. Karen Björg var líka á sínum stað með tískuhornið og að þessu sinni ræddum við nærföt. Síðan fórum við yfir Secret Solstice sem að kláraðist um helgina og að sjálfsögðu ræddum við Heimsmeistaramótið í knattspyrnu....more0minPlay
June 22, 201822. júníGKR og JóiPé gáfu út nýtt lag í gær og GKR og Starri, pródúser lagsins, kíktu til okkar og spjölluðu um það. Margrét Erla Maack og Gógó Starr frá Reykjavík Kabarett sögðu okkur frá lopapeysustrippi og perlukjólum og Egill Spegill var á sínum stað með allt það sem er að gerast um helgina....more0minPlay
FAQs about Núllið:How many episodes does Núllið have?The podcast currently has 94 episodes available.