
Sign up to save your podcasts
Or


Í þessum þætti segja Hjalti og Oddur frá því hvað Íslendingasögurnar eru og hvaða hugtök er hitt að skilja til að njóta þeirra. Þeir kynna einnig söguna Laxdælu.
Sælir kælir hitamæli… komið með slökkvitækið, þetta er búið! Erfiðasta verki Ormstungna lokið. Ekkert á að vera fullkomið og þessi þáttaröð um Njálu er dæmi um það. En þá er gott að eiga í handraðanum nokkra sérfræðinga sem geta dregið okkur að landi og það er á bullandi tali hjá Tungunum í þættinum. Vala Garðars um fornleifar, Einar Kára um höfundinn, Ragnhildur Elísabet um að alast upp með Njálu og Flosi Þorgeirsson um að heita Flosi. Svo er bara spurning hvað Ormstungur taka fyrir næst?! Hlustið og hlýðið.
Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Patreon síðu Ormstungna: https://www.patreon.com/ormstungur
Þetta byrjaði svo vel. Tungurnar höfðu alvöru trú. En svo bregðst krosstré sem viðarásar Bergþórshvols. Það óvæntur gestur sem leggur Tungurnar að velli - Ingjaldur á Keldum! Hver var hann? Hvaðan kom hann? Og hvaða andskotans máli skiptir hann í þessari sögu!? Örvæntið ekki, uppgjörið er eftir. Hlustið og hlýðið.
Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Patreon síðu Ormstungna: https://www.patreon.com/ormstungur
Hundraðasti þátturinn og Tungurnar heyra í kyndlum fyrir utan stúdíóið. Vafasamar kenningar um kristni, hestaát og hlutverk Skarphéðins í sögunni verða til þess að jafnvel sprelllifandi fræðifólk snýr sér við í kumlunum. En einhvern veginn tekst að klára þáttinn og þá er bara eitt eftir - að kveikja í skinninu. Hlustið og hlýðið.
Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Patreon síðu Ormstungna: https://www.patreon.com/ormstungur
Tungurnar höfðu verið varaðar við, þær vissu örlög þeirra sem reyna að greiða úr hinum mörgu þráðum Njálu. Hlustuðu þær - nei. Það verður til þess að þrátt fyrir gott gengi í Noregsköflunum um Víga Hrapp þá fara þræðir Njálu að herðast um kverkar þeirra eins og Urður, Verðandi og Skuld séu að hengja þá. Tunguknörrinn brotnar í spón á ströndum kaflanna sem fjalla um Höskuldana tvo. Lifa þeir þetta af? Verður annar þáttur? Hlustið og hlýðið.
Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Patreon síðu Ormstungna: https://www.patreon.com/ormstungur
Gunnar slær sinn síðasta tón á atgítarstrenginn. En tónnin reynist falskur og holur og slitnar að lokum. Þá er nú gott eiga háprúða eiginkonu. Nema auðvitað að maður hafi einhvern tímann gert eitthvað á hennar hlut sem gæti komið manni í koll… karma is a bitch Gunnar! Hvernig höndla Tungurnar þessa ófyrirsjáanlegu framvindu? Hlustið og hlýðið.
Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Patreon síðu Ormstungna: https://www.patreon.com/ormstungur
Tungurnar stinga sér til sunds í Rangá og synda á móti straumnum allan þáttinn. Þær eru án kúts og korks en á einhvern ótrúlegan hátt ná þær að fara yfir misgáfulegar kenningar um kynlífskúnstir Hrúts og Unnar Marðardóttur, blóðug hjónabönd Hallgerðar og húskarlavíg húsfreyjanna á Bergþórshvoli og Hlíðarenda. Einungis ein spurning stendur eftir: „Hvað í fjandanum þýðir að fjórðungi bregður til fósturs“? Hlustið og hlýðið.
Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Patreon síðu Ormstungna: https://www.patreon.com/ormstungur
Sú elsta. Sú virtast. Sú hættulegasta - Brennu Njáls saga. Okkar Everest og eldfimasta verkefni Tunganna hingað til. Það er enginn öruggur um að lifa Njáluna af og allra síst Tungurnar. Þær telja sig hafa pakkað í bakpokann og undirbúið sig vel en er það nóg? Eru þær nógu vel nestaðar? Guð blessi Ísland… og Tungurnar.
Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Patreon síðu Ormstungna: https://www.patreon.com/ormstungur
Fyrsta viðtalið okkar á ensku! Hjalti var vant við látinn en Oddur nýtti tækifærið á meðan og fékk Dr. John Sexton, prófessor við Bridgewater háskóla í Massachusetts Bandaríkjunum. John kennir nemendum við Bridgewater háskóla Íslendingasögunar og heldur úti hlaðvarpinu Saga Thing ásamt öðrum prófessor, Dr. Andrew M. Pfrenger. Í hlaðvarpinu gera þeir sögurnar aðgengilegar og lifandi á ensku ásamt því að leika sér með þær á skemmtilegan máta.
Hlustið og hlýðið!
In this episode, Oddur interviews Dr. John Sexton, a professor at Bridgewater University in Massachusetts and co-host of the podcast Saga Thing. Together with his friend Dr. Andrew M. Pfrenger, They bring the Sagas to life for English-speaking audiences. Their deep-dive analysis of the Sagas makes them accessible and engaging, even for those unfamiliar with Icelandic literature. Join us for a fascinating conversation with a true expert on the Sagas.
Tungurnar gera söguna upp og skila henni aftur í skinnhandritið. Auðvitað klúðraðist margt og gleymdist fullt (til dæmis að keyra heim punktinn með að Egils saga er í rauninni ástarsaga þar sem sterkustu viðbrögð Egils eru vegna ástarinnar. Til Þórólfs, til Ásgerðar, til sonar síns og síðast en ekki síst ástarinnar á peningum.) En einhvern veginn blessaðist þetta alveg eins og hjá Agli sjálfum. En hver leikur hann í bíómyndinni? Hver talsetur hann í teiknimyndinni? Og hvar er silfrið? Hlustið og hlýðið.
Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
From the publisher's feed

130 Listeners

27 Listeners