
Sign up to save your podcasts
Or


Refurinn er sigldur frá skítaskerinu Íslandi, tekur land á stærstu eyju heims og gerist stórtækur á Grænlandinu góða. Skreytir sig með rostungstönnum og safnar selum eins og sannkallaður Nanook norðursins. En hómófóbían er víða og Daltonbræður miðaldanna æra óstöðugan með rógburði og ræfilsskap. Endar það vel? Hlustið og hlýðið!
Styrktu okkur á https://www.patreon.com/ormstungur
Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Krókurinn hér hvar og hvenær sem er söng Sálin hans Jóns míns en tungurnar eru ekki hvar sem er, þær eru í Kvennabrekku í dölunum. Þar hafa menn löngum haft áhuga á skinnum, enda hundraðkallinn sálugi Árni Magnússon fæddur þar en öfugt við hann hefur okkar maður Refur meiri áhuga á að naga skinn en að skrifa á það. En eins og gjarnan er með fálát börn þá rætist fljótt úr Rebba. Hvernig? Hlustið og hlýðið!
Styrktu okkur á https://www.patreon.com/ormstungur
Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Ormstungur halda í enn eina óvissuferðina. Í þetta skiptið er ótroðna slóðin krókótt en eins og tungurnar segja gjarnan er betri krókur en kelda enda engin Íslendingasaga sem heitir Keldu-saga. Það þýðir auðvitað ekki að tungurnar lendi ekki í keldunni. Ójú, eins og kettir út í mýri vaða þeir leðjuna strax í byrjun. Komast þeir af stað? Hlustið og hlýðið!
Styrktu okkur á https://www.patreon.com/ormstungur
Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Oddur er fjarri góðu gamni að gamna sér í útlöndum en Hjalti deyr ekki ráðalaus og fær annan Odd og einn Alexander með honum í viðtal. Þeir fara yfir uppfærslu Fjölbrautarskólans í Garðabæ á söngleiknum Gretti. Tungurnar hvetja… nei hreinlega skipa öllum að fara og sjá sýninguna. Auðvitað lesa Grettis sögu fyrst. Og lesa hana svo aftur eftir sýningu. Kannski best að taka hana bara með á sýninguna.
Jólaþátturinn er lentur. Þegar Ormstungur eru nýkomnir úr glímu sinni við skrímsli og drauga þá verður að hringja í skrímslafræðing. Eina akademíska skrímslafræðing sem finnst hér á landi. Dr. Arngrím Vídalín. Hann skólar okkur til í hugtökum eins og afmennskun, blámenn, tröll, draugar, kúgun kvenna og...hvar á að hætta? Eða byrja?
Hlustið bara, þið sjáið ekki eftir því!
Oddur Atli er venjulegur strákur sem gengur í 8. bekk í Oddeyrarskóla. Eða hvað? Oddur er kannski betur þekktur undir listamannanafninu OddurArg og sennilega yngsti atvinnulistamaður á Íslandi. Ef þú hefur stoppað við í Hauganesi, rétt hjá Dalvík, á ferð þinni um landið þá hefur þú kannski rekist á verk eftir Odd þar sem hann fær útrás fyrir brennandi áhuga sinni á miðöldum og Íslendingasögunum.
Oddur fer yfir hvernig honum, sem grunnskólanemi, finnst að sögurnar ættu að vera kenndar í skólanum og fleira skemmtilegt.
Hlustið og hlýðið!
Njála í höndunum á hundunum Njála hræðir tungurnar meira en flest annað, nema ef vera skyldi að hitta Án hrísmaga í dimmu húsasundi. Þáttastjórnendur liggur við yfirliði þegar drottningu Íslendingasagnanna svo mikið sem ber á góma. Þá er gott að viðmælandinn að þessu sinni er vanur að blása í ýmsa heimagerða lúðra og flautur og gæti blásið í tungurnar lífi ef illa skyldi fara.
Tónmenntakennarinn, leikritaskáldið og lífskúnstnerinn Hjörleifur Hjartarson fór yfir fræðin og sagði frá Njálusýningu Hunds í óskilum og skyld mál. Hlustið, hlýðið og njótið.
Eru miðaldabókmenntir framtíðin? Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor í bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands svarar þessari spurningu og fræðir tungurnar um fornaldarsögur, Íslendingasögur, samtíðarsögur og riddarasögur. Hún hefur rannsakað allt milli himins og jarðar er varðar bókmenntir fyrri alda þar á meðal galdra, hina munnlegu geymd, dans og rímur. Hlustið og hlýðið!
Þá er sagan öll en eigi er sopið kálið þó í ausuna sé komið. Ormstungur vita sem er að enginn er allheimskur ef þegja má og kalla því til sérfræðinga til að klára yfirferðina, enda hlýtur jafnan illt af athugaleysi og jafnan er hálfsagan sögð ef einn segir. Stebbi Jak fer yfir nestismálin, Sigrún Þ. Geirsdóttir kennir tungunum að synda í sjó og Ragnar Bragi Sveinsson fræðir þær um hestaatið á Þingvöllum 1930. Að lokum er sagan gerð upp. Hver myndi leika Gretti í kvikmyndinni? Eða Glám? Hvaða lag rammar inn Grettissögu? Fleira veit sá er fleira reynir!
Lífið í Drangey leikur við Gretti sem hefur sigrast á margri þrautinni þegar hér er komið við sögu. En loks mætir hann ofjarli sínum. Fátt er rammara en forneskjan og illa rotinn rekaviður verður söguhetjunni að falli. Grettir er ekki ber á bakinu og litli bróðir hjálpar honum að spyrna við fótum. Glaumur reynist hins vegar verri en enginn, enda illt að eiga þræl að einkavin.
From the publisher's feed

130 Listeners

27 Listeners