
Sign up to save your podcasts
Or


Sagan nær hámarki. Draumar og blóð. Stirt er á milli Helgu og Hrafns. Þungt yfir þrátt fyrir partýhald.. Lágskýjað. Ský dregin fyrir sólu. Gulli og Hrafn eiga í basli að finna stað fyrir hólmgöngu því þær hafa verið bannaðar á Íslandi. Af hverju? Rætist draumur Þorsteins? Hverjir munu liggja í valnum? Það er allavega dramatískt lokauppgjör milli Gulla og Hrafns!
Það eru sænskir dagar hjá Gulla. Sem er slæmt því Hjalti er einn helsti áhugamaður um tilvistarkreppu Svía og orðið ,,lagom”. Leikar fara að æsast í sögunni þegar Gulli og Hrafn fara að kveðast á fyrir framan konung.
Gulli slær í gegn en sullur hefur myndast á fæti hans. Ekkert virðist þó geta stöðvað hann í leið sinni til heimsfrægðar. Eða hvað? Áhugaverðar umræður fara á flug um skikkjur og primaloft úlpur.
Gulli Ormstunga stimplar sig inn í söguna ásamt Helgu fögru. Ástin svífur yfir vötnum. Grasið er samt alltaf grænna hinum meginn. Gulli reynir hvað hann getur að komast á vit ævintýranna og sýna hvað í honum býr. Það ætlar þrautinni þyngra að komast af landi.
Persónur sem leggja jarðveginn fyrir aðalpersónur sögunnar seinna meir eru kynntar til leiks. Syni Egils Skallagrímssonar, Þorsteini Egilssyni, dreymir draum og fær Austmann til að ráða. Það boðar ekki gott!
Í tilefni af 1. árs afmæli Ormstungna ákveða Hjalti og Oddur að endurhljóðblanda Gunnlaugs sögu. Sagan hefur allt! Af nógu er að taka; ást, draumar, hetjuskapur, öfund og hefnd.
Austfaðirinn gerður upp. Ormstungur reyna að setja einhvern boðskap í söguna, bera hana saman við aðrar Íslendingasögur ásamt því að bulla töluvert. Eftir stendur ærandi spurning - hvert skal halda næst?
Keli nær vopnum sínum á ný. Sammi situr í súpunni. Eyvindur kemur austur að austa alveg að fjöllum þegar hann er veginn aaalsaklaus. Þetta fíla menn fyrir vestan ekki og neita að koma nálægt þessum austfirðingum aftur.
Varúð!!! Þessi þáttur er ekki fyrir viðkvæma enda er eitt mesta níðingsverk Íslendingasagnanna undir. Jafnvel tvö. Það dugar ekki minna en að hringja í doktor til að fá bókstaflega úr því skorið. Hlustið á eigin ábyrgð.
Ormstungur halda til Alþingis og reyna að skilja ráðabrugg Þorkels Þjóstarsonar. Það tekst ekki betur en svo að fljótlega eru þeir farnir að ræða pabba Kardashian systra. Þeir eru nú meiri dusilmennin þessar Ormstungur.
From the publisher's feed

130 Listeners

27 Listeners