Ormstungur

Ormstungur

By OrmstungurArtsBooks
Download on the App Store

Ormstungur episodes

  • 6. Grettis saga - Ævintýri í útlegð

    Tungurnar renna sér stjórnlaust fram af snjóhengjunni með bundið fyrir bæði augu í örvæntingarfullri tilraun til að halda í við söguhetjuna. Grettir slakar ekkert á þrátt fyrir að vera orðinn útlægur. Alls konar hindranir verða í veginum - Um hvað var Megas að semja? Hvað er Íslandsmetið í réttstöðulyftu? Hver er munurinn á réttstöðulyftu og hnébeygju? Lögfræðin fer líka illa með Tungurnar. Betur gengur að velta fyrir sér stóru spurningunni - hvað var líkt og ólíkt með útlögunum Gretti og Gísla Súra?

    1 hr 7 min
  • 5. Grettis saga - Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin

    Hvert ferðu þegar það er komið bremsufar í buxurnar? Hvar er best að vera þegar álögin leggjast ofan á þig eins og mara? Hvar er hamingjuna að finna þegar Glámskrattinn hefur hrifsað frá þér lífsviljann? Jú auðvitað í landi tækifæranna, perlu Skandinavíu - Noregi. Þessi seinni utanför er þó ekki eins gæfusöm og fyrr en varir fer allt bókstaflega í bál og brand. Grettir fer óvarlega með eld í Noregi og kemur það harkalega í bakið á honum, í framhaldinu fer hann í slæma skírslutöku og að lokum fellur Atli í valinn. Niðurtúrinn er hafinn!

    33 min
  • 4. Grettis saga - Gæfa eða gjörvileikur

    Erfiður þáttur fyrir Ormstungur, eðlilega. Einn svakalegasti Svíi bókmenntasögunnar stimplar sig inn með skelfilegum afleiðingum - hinn hljóðmikli og dimmraddaði smali Glámur, AKA Staffan Olson miðalda. Eftir hrikalegustu glímu Grettis við drauginn skeinuhætta hefur hann náð toppnum. Gjörvulegur er hann, um það er ekki deilt. En gæfusamur ekki. Það er kalt á toppnum og okkar maður ekki í kuldagallanum.

    39 min
  • 3. Grettis saga - Sætir sigrar í Noregi

    Tungurnar eru landkrabbar báðar tvær og það er vesen því sagan er komin út á haf. Dæmdur Grettir siglir í útlegðina álíka súr og nestið sem olli útlegðinni. Fljótlega tekur hann þó gleði sína þegar hann kemst til perlu Skandinavíu - Noregs. Draugar eru rassaðir, berserkir barðir í spað og skógarbjörn fær makleg málagjöld. Grettir er að finna sjálfan sig. Þetta getur ekki klikkað - eða hvað?

    36 min
  • 2. Grettis saga - Tréfættur forfaðir og bernskubrek brjálæðings

    Það er byrjað í Noregi og Tungurnar ruglast strax á fyrstu mínútu leiksins! En hverjum er ekki sama hvort Önundur var afi eða langafi? Maðurinn var viskílepjandi víkingur með tréfót! Fljótlega berst leikurinn þó til Íslands og æsku Grettis. Þá ná tungurnar betri tökum á leiknum enda uppeldisfræðimenntaðar báðar. Það er þó bara í stuttan tíma og þegar morð er framið út af nesti er þeim öllum lokið.

    42 min
  • 1. Grettis saga - Lagt á borð

    Ormstungur ráðast í sitt stærsta verkefni til þessa og eru hreinlega ekki vissar um að valda verkefninu. Því byrja þær á að hringja í Ármann Jakobsson til að nesta sig almennilega fyrir verkefnið. Manni er eðlilega efins um tungurnar, enda hefur hann sjálfur orðið fyrir barðinu á vanþekkingu þeirra í viðtalsþætti, en gefur að lokum ráðin góð. Ormstungur halda þá út á Grettishafið, vissulega á hriplekum báti en með ausurnar klárar.

    16 min
  • x Einar Kárason

    Einar Kárason er rithöfundur, ljóðskáld og sérstakur áhugamaður um Íslendingasögurnar. Gerðar hafa verið kvikmyndir og leikverk eftir bókum Einars og ber þar til dæmis nefna Djöflaeyjuna. Einar er einn mesti sérfræðingur okkar í Sturlungu og hefur hann gefið út bækurnar Óvinafagnaður, Ofsi, Skáld og Skálmöld þar sem hann gefur atburðum Sturlungaaldar skáldlegan blæ.

    Í spjalli okkar við Einar fórum við víða. Við leituðum af höfundi Íslendingasagnanna, ræddum um sannleiksgildi þeirra og uppáhaldssögu Einars.

    Hlustið og hlýðið!

    47 min
  • x Flosi Þorgeirsson

    Flosi Þorgeirsson er sagnfræðingur, tónlistarmaður og sérlegur áhugamaður um Íslendingasögurnar. Flosi og félagi hans, Baldur Ragnarsson, halda úti hlaðvarpsþáttunum Draugar Fortíðar sem er eitt vinsælasta íslenska hlaðvarp sem boði er í dag. Í þáttunum fjalla þeir um alls kyns söguleg viðfangsefni allt frá mönnum sem skjóta sér út í geim í garðstól yfir í aðra sem festa sig í holu neðanjarðar. Það vakti athygli Ormstungna þegar Flosi og Baldur gerðu atburði Njáls sögu einstaklega lifandi fyrir hlustendum sínum og gátum við ekki annað en fengið Flosa í smá spjall. Farið var um víðan völl; sannleiksgildi sagnanna, formið sem Íslendingasögurnar eru og kennslu þeirra í skólum.

    Flosi Þorgeirsson - gjörið þið svo vel!

    1 hr
  • Gunnlaugs saga Ormstungu - Uppgjör

    Sagan gerð upp. Farið er yfir hetjuskap og kvarði smíðaður til að meta hann í Íslendingasögunum. Hjalti kveður Odd í kútinn. Hvaða máltíð væri Gunnlaugs saga? Hvaða lag? Stóru spurningunum er svarað í þessum rosalega uppgjörs þætti! Einnig lagðar línur fyrir framtíðina.

    38 min

About Ormstungur

From the publisher's feed

Íslendingasögurnar! Ormstungur er umræðuþáttur þar sem tveir kennarar, Hjalti Halldórsson og Oddur Ingi, ræða helstu Íslendingasögurnar á léttu nótunum.

More shows like Ormstungur

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners