
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
Hlynur Jónsson er hótelstjóri og skemmtikraftur sem hefur vakið mikla athygli fyrir skemmtileg innslög á samfélagsmiðlum. Í þættinum ræða Hlynur og Sölvi um álit annarra, ferðalög, baráttu Hlyns við bakkus og margt fleira.
þátturinn er í boði;
Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Björn Stefánsson var ungur orðinn einn hæfileikaríkasti trommuleikari sem Ísland hefur átt. Hann varð svo lykilmaður í hljómsveitinni Mínus, sem náði talsverðum hæðum erlendis á sínum tíma. Um þrítugt skipti Bjössi svo alveg um takt og fór í leiklistarnám í Danmörku og hefur síðan getið sér mjög gott orð sem leikari. Hér fara Sölvi og Björn yfir Mínus-tímabilið, sem var æði skrautlegt á köflum, ástríðuna fyrir leiklistinni og margt margt fleira.
Brotið er í boði;
Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Ingólfur Davíð Sigurðsson þurfti að fara í gegnum þá lífsreynslu að jarða son sinn eftir of stóran skammt af lyfjum. Ingólfur endaði sjálfur oft í fangaklefum sem ungur maður eftir að hafa verið hafnað af skólakerfinu, þar sem hann var ýmist kallaður heimskur eða óþekkur. Í þættinum ræða Sölvi og Ingólfur um stöðu ungra unga karlmanna sem enda annað hvort látnir eða festast í fangelsum, reynslu Ingólfs af því að missa barn, getuna og viljann til að halda áfram eftir áföll og margt fleira.
Þátturinn er í boði;
Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Björgvin Páll Gústafsson er einn litríkasti íþróttamaður síðari ára á Íslandi. Á stórmótum hefur hann vakið athygli fyrir Víkingalegt útlit og brjálæðislega framgöngu á vellinum. Sölvi skrifaði bók um Björgvin fyrir ári síðan og hér ræða þeir saman um ferilinn, barnæskuna, leiðir Björgvins til bata úr andlegu og líkamlegu hruni og margt margt fleira.
Brotið er í boði;
Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á;
https://solvitryggva.is/
Sigríður Klingenberg, betur þekkt sem Sigga kling, hefur skemmt Íslendingum um árabil með spádómum, bingókvöldum, karókí-kvöldum og mörgu fleiru. Sigga segir sjálf að ferill hennar sé ein stór afleiðing af því að kunna að segja alltaf já, sama hvernig manni líður. Í þættinumræða Sigga og Sölvi um mikilvægi þess að njóta hvers dags, hlæja mikið, fara yfir stórmerkilegan feril Siggu og margt fleira.
Þátturinn er í boði;
Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Bjarki Viðarsson og Aron Mímir Gylfason eru götustrákar. Þeir hafa báðir komið til baka inn í lífið eftir áralanga neyslu og vilja nú láta gott af sér leiða. Í þættinum ræða Sölvi og götustrákar um lífshlaup strákanna, skilaboð samfélagsins, tilganginn og margt fleira.
Þátturinn er í boði;
Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Klara Elías varð vægast sagt þjóðþekkt fyrir tvítugt sem söngkona í hljómsveitinni Nylon. Eftir að hafa verið með líf sitt nánast í raunveruleikaþætti fyrir framan alþjóð fór hljómsveitin í víking og gerði góða hluti í Bretlandi. Eftir það lá leiðin til borg englanna í Los Angeles, þar sem Klara hefur verið síðasta áratuginn. Nú er hún komin heim eftir vægast sagt skrýtið ár í Bandaríkjunum. Í þættinum ræða Sölvi og Klara um Nylon ferðalagið, ástríðuna fyrir tónlistinni, stöðuna í Bandaríkjunum og margt fleira.
Brotið er í boði;
Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á;
https://solvitryggva.is/
Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur og varþingmaður sem hefur vakið athygli fyrir að hika ekki við að tala um mál sem flestir þora ekki að snerta á. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um frelsi, stöðu ríkisins, sögu ógnarstjórna, mikilvægi hugrekkis í nútímanum og margt fleira.
Þátturinn er í boði;
Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Halli Hansen er magnaður náungi. Hvort sem það er að sitja í fangelsum, vera heimilislaus, ferðast um heiminn án farangurs, eru það allt hlutir sem Halli hefur prófað á eigin skinni. Í þættinum fara Halli og Sölvi yfir reynslu þessa magnaða manns, hvað hann hefur lært á sínu ferðalagi og hvað framtíðin ber í skauti sér.
Brotið er í boði;
Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á;
https://solvitryggva.is/
Bergþór Másson er hlaðvarpsstjórnandi, umboðsmaður og meistaranemi. Í þættinum ræða Sölvi og Bergþór um samfélagsmál, heimspeki, listir og margt fleira.
Þátturinn er í boði;
Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

462 Listeners

141 Listeners

215 Listeners

26 Listeners

90 Listeners

19 Listeners

17 Listeners

32 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

15 Listeners

6 Listeners

27 Listeners

14 Listeners

2 Listeners