Podcast með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

By Sölvi TryggvasonTV & FilmBusiness
Download on the App Store
  • Favorites

    106

    Followers

  • Typical duration

    70 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Podcast með Sölva Tryggva episodes

  • #26 María Birta með Sölva Tryggva
    María Birta Bjarnadóttir leikkona hefur gert ótrúlega margt þó að hún sé rétt rúmlega þrítug. 16 ára gömul var hún byrjuð með netverslun og 19 ára velti hún 10 milljónum á mánuði í versluninni Maniu á Laugavegi. Skömmu síðar var hún búin að vinna Edduverðlaunin sem leikkona og þá var ekki aftur snúð og hún flutti til Bandaríkjanna, þar sem hún vinnur nú að fjölmörgum verkefnum. Hér ræða María og Sölvi um lygilegan feril Maríu, sálufélaga, sorgina eftir dauðsföll í fallhlífarstökk og margt margt fleira.
    2 hr 17 min
  • #27 Sigursteinn Másson með Sölva Tryggva
    Sigursteinn Másson varð þjóðþekktur sem ungur fréttamaður á Stöð 2. Þá var hann óviss um kynhneigð sína og gekk í gegnum erfiða tíma tengda því. Síðar seig á ógæfuhliðina þegar Sigursteinn endaði á geðsjúkrahúsi í Danmörku eftir að hafa gengið nærri sér í umfjöllun um Balkanstríðið. Hér ræða Sigursteinn og Sölvi um ferilinn í fjölmiðlum, Sönn íslensk sakamál, Covid, stöðuna í heiminum og margt margt fleira! Þátturinn er í boði Sjónlags - www.sjonlag.is Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg) Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan) Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)
    1 hr 55 min
  • #89 Haraldur Erlendsson með Sölva Tryggva
    Áskrift og aðgangur að öllum þáttum í hljóði og mynd: www.solvitryggva.is Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem starfaði um árabil í Bretlandi og síðar sem forstjóri Heilsustofnunar í Hveragerði. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um hugvíkkandi efni, sem Haraldur segir stærstu byltingu í sögu geðlæknisfræðinnar. Þá fara þeir líka yfir stöðu læknisfræðinnar árið 2021, lífsstílssjúkdóma og margt fleira. Þátturinn er í boði:

    Alla þætti er hægt að nálgast inni á www.solvitryggva.is

    Sjónlags - www.sjonlag.is 

    Fitness Sport - www.fitnesssport.is 

    Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ 

    Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ 

    Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg)

    Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

     

    1 hr 37 min
  • #25 Sólveig Eiríksdóttir með Sölva Tryggva

    Sólveig Eiríksdóttir eða Solla er löngu orðin þjóðargersemi. Ferill þessarrar mögnuðu konu spannar áratugi og ótrúlega fjölbreytt svið. Hér ræða hún og Sölvi um feril Sollu sem bisness-kona, bókaútgáfuna hjá stærstu forlögum heims, ástríðuna fyrir matnum, matreiðsluna fyrir heimsfrægt fólk og dansinn sem hjálpaði henni út úr ,,burnouti".

    1 hr 52 min
  • #96 Ásgeir Kolbeins með Sölva Tryggva
    Ásgeir Kolbeinsson var um árabil einn þekktasti útvarpsmaður Íslands og hélt jafnframt úti einum langlífasta sjónvarpsþætti landsins. Hann sneri sér síðar að viðskiptum og varð eigandi vinsælla veitinga- og skemmtistaða í miðbænum. Í þættinum ræða Ásgeir og Sölvi um feril Ásgeirs, fjölmiðla, viðskipti, ástríðu í lífinu og margt fleira.

    Þátturinn er í boði:

    Fitness Sport - www.fitnesssport.is 

    Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ 

    Promennt - https://www.promennt.is/

    Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ 

    105 koffínvatn - https://www.olgerdin.is/

    Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg)

    Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan)

    Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

    1 hr 36 min
  • #23 Ingó Veðurguð með Sölva Tryggva

    Ingólfur Þórarinsson kom inn á sjónarsvið íslensku tónlistarsenunnar eftir að hann keppti í Idolinu. En áður en hann keppti þar hafði hann stofnað hljómsveitina Veðurguðirnir og hringt í nánast alla veitingastaði landsbyggðarinnar og beðið um að fá að mæta til að spila með bandinu sínu. Eftir Idolið fór allt af stað og síðan þá er varla nokkur íslenskur tónlistarmaður sem hefur ,,giggað" jafn oft. Í dag er Ingó á krossgötum og segist vilja skoða aðeins betur listamanninn í sér. Hér ræða hann og Sölvi um ástríðuna við tónlistina, drykkjutímabilin, löngunina til að læra og þroskast sem einstaklingur og margt margt fleira.

    1 hr 45 min
  • #24 Ellý Ármanns með Sölva Tryggva

    Ellý Ármannsdóttir varð þjóðþekkt þegar hún vann um árabil sem þula á Ríkissjónvarpinu. Þar kom strax í ljós að hún sker sig úr sama hvar hún kemur og sumt sem hún gerði sem þula þótti umdeilt. Síðan þá hefur Ellý unnið við ótal hluti, allt frá því að spá fyrir fólki yfir í að vera hóptímakennari í íþróttum. Hér ræða Sölvi og Ellý um tímabilin í fréttunum, spádómana, leiðir til þess að stíga út úr ótta og margt margt fleira.

    1 hr 36 min
  • #72 Gerður Arinbjarnar með Sölva Tryggva
    Gerður Arinbjarnardóttir hefur á fáeinum árum farið frá því að selja kynlífstæki úr skúffum heiman frá sér yfir í að velta hálfum milljarði á ári. Þessi unga kona á stórmerkilega sögu. Fann sig ekki í hefbundnum skóla, en vissi að hún hefði vit á viðskiptum. Fór til London á námskeið með Tony Robbins og eftir það var teningunum kastað. Í viðtalinu ræða Gerður og Sölvi um viðskipti, ferðalög í framandi lönd, þægindarammann og margt margt fleira. Þátturinn er í boði:

    Sjónlags - www.sjonlag.is 

    Fitness Sport - www.fitnesssport.is 

    Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ 

    Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ 

    105 koffínvatn - https://www.olgerdin.is/

    Þáttastjórnandi - Sölvi Tryggvason (@solvitrygg)

    Framleiðandi - KIWI (@kiwistofan)

    Hljóð - Eiður Steindórsson (@oathhljod)

    1 hr 27 min
  • #22 Mikael Torfason með Sölva Tryggva

    Mikael Torfason er einn reyndasti fjölmiðlamaður Íslands, sem hefur í gegnum tíðina ritstýrt 3 af stærstu dagblöðum landsins. Hann breytti landslagi rithöfunda sem ungur maður þegar hann skrifaði bókina ,,Falskan Fugl", þar sem fjallað var um hluti sem aldrei höfðu áður birst í bókum á Íslandi. Mikael hefur alla tíð elskað ritmálið og nú býr hann í Vínarborg, þar sem hann vinnur þessa dagana mest við að skrifa handrit fyrir leikhús, bíómyndir og sjónvarpsþætti. Hér ræða hann og Sölvi um þennan stórmerkilega feril, stöðu íslenskra fjölmiðla í gegnum tíðina og margt margt fleira.

    2 hr 24 min
  • #21 Óttar Guðmundsson með Sölva Tryggva

    Óttar Guðmundsson geðlæknir hefur í áraraðir starfað við að aðstoða fólk með geðsjúkdóma, fíknivanda og fleira. Eftir hann liggur fjöldi bóka, allt frá Ævisögu Megasar yfir í ,,Hetjur og Hugarvíl", þar sem Óttar skoðar geðsdjúkdóma og persónuleikaraskanir helstu hetjanna úr Íslendingasögunum. Óttar hefur auk þess verið yfir kynleiðréttingarteymi landsspítalans frá því það var stofnað. Hér ræða hann og Sölvi um geðsjúkdóma, bækurnar, Covid tímann, það hvort við séum farin að ofgreina allt og alla, hvort samfélagið sé orðið of bómullarvætt og margt margt fleira

    1 hr 40 min

About Podcast með Sölva Tryggva

From the publisher's feed

Podcast með Sölva er þáttur sem lætur sér ekkert óviðkomandi. Fylgstu með áhugaverðu fólki úr öllum áttum setjast í stólinn hjá Sölva Tryggva.

Best of Podcast með Sölva Tryggva

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Podcast með Sölva Tryggva

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

463 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

215 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners

True crime Ísland by True Crime Ísland

True crime Ísland

2 Listeners