Podkastalinn

Podkastalinn

By PodkastalinnComedyComedy Interviews
Download on the App Store

Podkastalinn episodes

  • #69 Halló Steinn

    Eitthvað um sundlaugar. Eitthvað um slagsmál. Eitthvað um fortíðina. Eitthvað um standandi 69. Eitthvað um svitahof.

    Riddarar Podkastalans geta nýtt sér afslátt hjá Birtu CBD. Hlustaðu til að komast að kóðanum.

    1 hr 25 min
  • #68 fisk fisk postulín

    Þáttur númer 68 en samt eiginlega 69 en við ætlum samt bara að kalla hann 68. Er möguleiki fyrir manneskju að komast í gegnum lífið án þess að smakka bensínstöðvarsamloku. Það er vitað mál að pepperónírist er þjóðarréttur Íslendinga. Hvort kastar maður mús eins og pizzu eða bolta? Afhverju hlær fólk alltaf þegar það kveður í síma.

    59 min
  • #67 back 2 work

    The boys are back in town. Afhverju neitar Gauti að taka lög eftir Gnarls Barkley á tónleikunum. Hvað má gera í steggjunum. Arnar sem er ekki með andlit segir frá hörmungum sem hann upplifði í flugvél. Hversu oft má nota handklæði? 

    1 hr 8 min
  • #66 Muscled fingers

    Af hverju eru Scarpa skór reimaðir alla leið undir tábergið? Hversu öruggur þarftu að vera? Er kenningin hans Arnars sönn að allir sem eiga mannbrodda eigi líka Scarpa skó? Hversu margir úr grunnskólanum þínum fóru úr fangelsi? Hvað þarf að ryksuga heimilið sitt oft? Hver er Lalli letisuga? Hvað er spítt vinátta? Fangelsi, náttúruböð, heitir gaurar, einelti, B5 og fleiri mál eru tekin fyrir í þessum þætti af Podkastalanum.

     

    58 min
  • #65 Righty tighty lefty loosey

    Ef þú ert í vafa um skrúfganginn er gott að muna righty tighty lefty loosey. Er séns að Gauti muni þessa einföldu reglu ef honum text ekki einu sinni að muna hvar barnið hans er? Hvað gerðist? Að bregða fólki getur verið ágætis hlæ hlæ en það er samt siðlaus hrekkur. Hvaða tala er besta tala í heimi? Sannleikurinn getur verið sár en ef þú ert karlmaður á þrítugsaldri eru 99% líkur á því að þú sért búinn að kaupa rafmynt. Vegglímmiðar, grímur, einkavæðing skólakerfisins og önnur lítil mál eru tekin fyrir í þessum þætti.

    54 min
  • #63 427 Blaze it

    Í þessum þætti höldum við upp á alþjóðlega kannabisreykingadagin nema við gerum það viku of seint. Hvort er betra, spliffa og vídjó eða hasskaka og skríða inn á bað? Við förum í allar áttir, ræðum kannabis og kryfjum risa skandal úr fortíð Arnars og Gauta sem tengist því hvaða ömurlega munch Arnar keypti fyrir Gauta þegar hann var of freðinn til að þora inn í sjoppu í Breiðholtinu?

     

    Þessi þáttur er bannaður öllum yngri en 22,5 árs svo það er það á ykkar ábyrgð ef krakkarnir ykkar taka þátt í Jeezy Cup einn daginn.

    1 hr 11 min

About Podkastalinn

From the publisher's feed

Emmsjé Gauti og Arnar sem enginn veit hver er ræða málin. Í Podkastalanum eru litlu málin tekin fyrir, þau sem gefa tilveru okkar raunverulega lit, ljós og skugga.