Podkastalinn

Podkastalinn

By PodkastalinnComedyComedy Interviews
Download on the App Store

Podkastalinn episodes

  • #62 Ég hef aldrei séð eiturlyf

    „Ég hef aldrei séð eiturlyf herra forseti“ sagði mesti lúði Íslandssögunnar og þambaði volgan bjór úr dós.

    Young Thug er hins vegar svalasti maður íslandssögunnar og við snertum á hans tilvist í þessum þætti. Hver er NBA Youngboy og af hverju er hann svona svalur? Það eru allir fullir all the time en við skulum finna út hversu mikil prósenta af þjóðinni drekkur áfengi. Ætti Podkastalinn að byrja með only fans?

    Til hamingju með afmælið mamma hans Gauta og til hamingju með daginn smokers!

    1 hr 8 min
  • #61 Podkastalinn x Bannað að dæma

    Podkastalinn er staddur fyrir norðan. Gauti fór í heimsókn og tók upp þátt með podcastinu “Bannað að dæma”.

    Eru Akureyringar hjálpsamari en Reykvíkingar? Er hægt að fara í hot yoga í Vaðlaheiðargöngunum. Hvernig eiga sumarbústaðir að vera og eru fiskar með miðtaugakerfi?

    Þessum spurningum er að okkur minnir svarað í þessum þætti.

    1 hr 52 min
  • #60 Spaghetti og smokkar

    Má bjóða þér eina jelly bean? Má bjóða þér að fá pínulítið af súkkulaðikúlum í allt of stórum plastumbúðum. Fáðu þér páskaegg! Gauti segir okkur frá dularfullum hlutum sem hann gerir með tungunni og hræðilegum hlutum sem hann gerir með nefinu. Hvað eiga smokkar og spaghetti sameiginlegt? Eruði sammála Arnari að lögreglan megi berja drukkið fólk í miðbænum? En ef það er hráka í spilinu? Podkastalinn tekur litlu málin fyrir. Misgóð svör við ágætum spurningum.

    1 hr 8 min
  • #58 Tekastalinn

    Podkastalinn krossar heima og tekur upp í settinu hjá stelpunum í teboðinu. Er te eða landi í tekatlinum? Eru þær alltaf fullar að taka upp þættina sína? Gauti fær sér gulltennur og Arnar noface ferðast til sexist island. Er í lagi að hringja í fólk á meðan maður er að pissa? Börn sem tengjast manni ekki eru viðbjóður. Það er þó undantekning á þessu ef þú hittir þau eru í réttu samhengi. Ef þú þarft frekari útskýringar á þessu máli þá skaltu hlusta á þáttinn.

    50 min
  • #57 Alvarlegi þátturinn: Part 1

    Er í lagi að vanrækja börnin sín ef maður breytir heiminum í leiðinni? Við ræðum Íslenskt rapp. Blaðamenn. Pólitík. Einstaklingsfrelsi. Samfélög. Heilbrigðiskerfið. Breiðholt vs Garðabærinn. Fullt af alvarlegu dóti í þessum alvarlega þætti.

    49 min
  • #56 Eldgos og sígó

    Helvíti vellur í rólegheitum úr jörðu í Geldingadal. Jörðin er hætt að titra en í staðin er byrjað eldgos. Hættulegt en um leið svo fallegt og forvitnilegt... Alveg þangað til fólkið mætir. Helvítis fólkið með sígaretturnar, beikonið og illa klæddu börnin. Podkastalinn bíður ykkur velkomin í klukkutíma nöldur um skítlegt eðli mannfólksins.

    56 min
  • #55 Chilli hnetur

    Lífið heldur áfram að malla eins og leiðinlegt túristagos. Hvað er að frétta? Ekki mikið en örugglega eitthvað. Hvað er langt síðan Arnar Noface var tekinn í kóngastól síðast? Muniði eftir bandí? Skautaíþróttin þar sem þú ert ekki í skautum. Má bjóða þér chilli hnetur á meðan við tökum alvarlegt viðtal um líf þitt? Punghár, blæðingar, lýtaaðgerðir og margt fleira. Leyfðu Podkastalanum að ASMR sleikja á þér eyrun og komdu með okkur í ferðalag.

    59 min
  • #54 Járnbrekkan

    Jörðin skelfur og jarðeðlisfræðingarnir aka giskararnir halda áfram að segja bara eitthvað í fjölmiðlum. Er hægt að lifa af í hrapandi lyftu ef maður hoppar rétt áður en hún lendir? Rúllustigar eru ágæt uppfinning en járnbrekkur bjóða upp á miklu skemmtilegri möguleika sem við förum yfir í þættinum.

    1 hr 5 min
  • #53 Verðlaunahross feat. Herra Hnetusmjör

    Það skiptir engu máli hvort þú skiljir hvað Thugga segir í laginu Lifestyle, það er besta lag sem hefur verið samið og það er ekki til umræðu. Er Kendrick Lamar nettur eða algjör lúði? Hvað kostar að halda uppi verðlaunahrossi í mánuð? En gullfisk sem borðar bara krydd? Herra Hnetusmjör mætir seint í þáttinn eins og alvöru rokkstjörnu sæmir og segir okkur frá köfurum í Dubai.

    1 hr 27 min

About Podkastalinn

From the publisher's feed

Emmsjé Gauti og Arnar sem enginn veit hver er ræða málin. Í Podkastalanum eru litlu málin tekin fyrir, þau sem gefa tilveru okkar raunverulega lit, ljós og skugga.