Podkastalinn

Podkastalinn

By PodkastalinnComedyComedy Interviews
Download on the App Store

Podkastalinn episodes

  • #42 Stutta píka

    Vinkona Podkastalans Stella Rósenkranz mætir í settið og ræðir litlu málin sem brenna á allra vörum. Er stæðið hliðin á fatlaðrastæðum um það bil 40% fatlaðra stæði? Er það siðblinda að leggja í fjölskyldustæðin hjá Krónunni ef maður er einhleypur? Við könnumst öll við þumalfingur og löngutöng en hvað í fjandanum heitir horny táin í miðjunni? (ath. hljóðið er smá skrítið vegna viftu sem gleymdist að slökkva á og þið verðið bara að fyrirgefa okkur það)

    1 hr 18 min
  • #41 Kramin kókdós

    Gauti sem allir vita hver er ræðir við Arnar sem enginn veit hver er um heimsmálin. Hryllingsferð í trampólín garðinn Rush, the dark side of barneignir og almennar reglur um sundferðir eru meðal umræðuefna í þættinum.

     

    1 hr
  • #40 Riddarar II

    Kæru riddarar, í dag er orðið ykkar. Í þættinum leysum við vandamál hlustenda, hugleiðum hugleiðingar og skoðum skoðanir þeirra. Engin rödd er of veik til að óma innan veggja kastalans. Nú eru það við sem hlustum.

     

     

    1 hr 28 min
  • #39 Siðblindur í 12min

    Dýr brosa eingöngu til þess að verða ekki étin. Það heldur Gauti allavega. Hvað er svalasta eiturlyfið? Af hverju verður fólk siðblint í tólf mínútur? Arnar sem enginn veit hver er fer inn á löggan.is og finnur út úr þessu öllu saman meðan draugabanar landsins halda áfram að svíkja fólk.

    1 hr 7 min
  • #38 Er Nökkvi með bars?

    Nú þegar Kastalinn er orðinn vel established miðill sem fólk trúir og treystir á er tími til kominn að mynda sér stefnu og taka upp gildi eins og almennilegum business sæmir. En hver og afhverju þau en ekki þessi hér? Pressan sem fylgir væntingunum fólks til season 2 er farin að hafa veruleg áhrif, bara ef við hefðum gildi til að vísa okkur veginn. En eins og gauti er alltaf að segja "what doesn't kill you makes you stronger" :)

    1 hr 8 min
  • #37 Q með Atla Fannari

    QAnon er sennilega það allra heitasta í samsæriskenningageiranum þessa dagana. Hver á ekki laufléttan frænda á facebook sem trúir því staðfast að Trump sé frelsari vorra tíma, að Obama borði börn með bestu list og að það sé eitthvað STÓRT handan við hornið? Í þættinum kemur Atli Fannar í heimsókn til að ræða Q, kenningarnar, stuðið og stemninguna.

     

    1 hr 58 min
  • #36 Gestalæti

    Í fyrsta sinn í sögu kastalans hefur gestur hreiðrað um sig í turninum háa. Hann er langur og mjór eins og fyndið typpi, heitir Björn Geir og er vinur okkar frá Keflavík. Í þættinum segir hann okkur lauslega frá því hvernig er að vera gaur sem er til, fyrst í keflavík og svo 7 ár í oakland, california.

     

    1 hr 21 min
  • #35 Podkastalandinn

    Hve marga þvala áhugaljósmyndara þarf til að ljósmynda séð og heyrt stelpu? Hve marga fretandi rassa þarf til að skjóta rappvídjó? Hve léttir geta tveir vinir verið á meðan veröldin skíðlogar, ill öfl hafa fundið sér leið úr iðrum jarðar og það er janúar og veðrið súrt? Mjög!

    1 hr 13 min
  • #34 Svartur beanie

    Húfur: Yfir eyrun eða aðeins rétt á toppi höfuðsins eins og smokkur áður en maður hefst handa við að renna honum niður skaftið? Og talandi um höfuð:Treystiru heilaskurðslækni sem sem ætlar að krukka í þér ef hann kaus Guðmund Franklín? Litlu málin eru HUGE í dag. Gauti segir frá óþolandi leyndarmáli um áramótaskaupið og yo hvaða 3d tónleika stunt var þetta á eftir skaupinu?

    58 min
  • #33 Síðasta sjoppuferðin

    Podkastalamenn eru mættir feitir og endurnærðir eftir gott frí. Hvern hefði grunað að það yrði annað season? Eflaust öllum sem hlusta reglulega á þáttinn. Podkastalinn dembir sér beint í djúpu laugina eða öllu heldur á djúpa vefinn og Arnar reynir að komast að því hvað það kostar að drepa Gauta. Sú upphæð er eflaust ódýrari en að vera með skemmtipakka í áskrift frá Stöð 2. Afhverju eru menn alltaf að hverfa? Eru þetta dularfull sakamál eða bara þetta klassíska „ég hata fjölskylduna mína og það hlýtur að vera betra líf í boði“. Rannsóknarblaðamennirnir í Podkastalanum kafa í málin.

    1 hr 13 min

About Podkastalinn

From the publisher's feed

Emmsjé Gauti og Arnar sem enginn veit hver er ræða málin. Í Podkastalanum eru litlu málin tekin fyrir, þau sem gefa tilveru okkar raunverulega lit, ljós og skugga.