Podkastalinn

Podkastalinn

By PodkastalinnComedyComedy Interviews
Download on the App Store

Podkastalinn episodes

  • #22 Mjólk og byssur

    Í þættinum kemst Gauti að því hvað gerist ef maður kallar Arnar Sauðkrækling en ekki SauðkræKing. Strákarnir ræða áhugaverða hlið á hori sem er sjaldan rædd, velta því fyrir sér hvenær ólæst hjól verða almannaeign og stefna á lásasmiðanám. Rapparinn Ungi Besti spyr stóru spurningarinnar og karlmönnum í óléttumyndatökum er cancellað.

    1 hr 8 min
  • #21 Gauti Fischer

    Flestir vita að Gauti kann að rappa en fæstum grunar að hann sé skákmeistarinn sem hann er. En er skák íþrótt? Og enn fremur, eru tölvuleikir íþrótt? Seinast voru það töframenn og parkour hópar en nú er það eSamfélagið sem mun snappa. Það verður bara að hafa það. Strákarnir ræða ofsjónir, hor, 400 grömm af kókaíni, lottóvinninga og big ass pharma. Pakkaður þáttur þar sem það er vaðið úr einu í annað í hitt og þetta.

    1 hr 3 min
  • #20 Funny chicken logo

    Er rétt að þessa dagana sé blómlegur svartur markaður fyrir þá sem þrá ekkert heitar en fresh cut og axlanudd? Svo sannarlega. Kastalinn hvetur samt alla til þess að sýna styrk og safna hári og vöðvabólgu. Strákarnir halda áfram að hata símana sína, nú með sérstakri áherslu á minningarnar sem öll helstu öppin ota að manni frá morgni til kvölds en þeir jafna út hatrið með ást sinni á Hananum og öllum sprellunum í nýju nova auglýsingunni.

    1 hr
  • #19 Beyglan í rjóðrinu?

    Gauti og dóttir hans lenda í hremmingum í elliðarárdalnum sem á orðið meira sameiginlegt með aðstæðum í i am legend með big willie en grænu fjölskylduvænu svæði á besta stað í Reykjavík. Við fáum að heyra frásögn af því og allar vekjaraklukkurnar í símanum hans Gauta. Félagarnir lesa og svara fyrirspurnum frá nokkrum hlustendum og verða meira að segja pínu alvarlegir á köflum.

    1 hr 5 min
  • #18 Riddarar Podkastalans
    Af hverju rukka tannlæknar svona sturlaðar upphæðir fyrir að putta mann í munninn? Er tannlæknirinn þinn mögulega goth undir hvíta gallanum. Gauti segir frá því þegar hann fór í covid test og var svo skammaður af sjö manneskjum í Melabúðinni fyrir að vera tillitslaus asni. Strákarnir fara yfir innsend skilaboð frá riddurum kastalans og reyna að ráða úr misgáfulegum málefnum sem berast þangað inn.
    1 hr 11 min
  • #17 Tréhús Skelfingar

    Þátturinn er með sérstöku hrekkjavökusniði og ræða félagarnir einungis það sem vekur að þeirra mati ugg og óhug, t.d. kolkrabba, flugvélar, bandorma og steypireyð. Öskudagurinn er cancelled því þetta er miklu skemmtilegri en fyrst og fremst praktískari hefð.

    1 hr 20 min
  • #16 Emmsjésen

    Afhverju verður besta fólk að fasistum þegar kemur að borðsiðum og kvöldmat? Við könnum málið. Gauti talar frá Serbíu og segir nöfnunum frá upplifun sinni af landi og þjóð. Mannanafnanefnd er á leiðinni í skrúfuna og strákarnir ræða hvort það sé raunveruleg hætta á því að allir taki upp nafnið Adolf Hitler. Smámálin eru funheit þessa vikuna!

    56 min
  • #15 Parkour hasshausinn
    Orkudrykkir eru ágætir upp í mann og inni í manni en hvernig eru þeir á manni? Gauti kannar málið. Strákarnir fjalla um íþróttaálfinn, þann upprunalega, ekki straumlínulaga ofurmennið heldur mannlega parkour hasshausinn og baráttu hans við reiðmenn endalokanna: innipúkann, nammigrísinn, símalínuna, nískupúkann og leiðtoga þeirra, stirðu stelpuna. Svo tala þeir um hvað nýja 21 savage platan er geggjuð.  
    1 hr 11 min
  • #14 69

    Arnar er hættur að virka. Sólin fór með sumrinu en tók óvart hluta af Arnari með. Gauta dreymir uppistand en gleymir öllum bröndurunum. Eitruð karlmennska og menn sem voru aldnir upp af klettum eru teknir fyrir. Hver sturlaðist þegar hann heyrði um býflugurnar og blómin? Afhverju? Hafa strákarnir stundað kynlíf eða eru þeir bara að ljúga? Er 69 fyndnasta stellingin? Litlu málin eru rædd í þessum risaþættir.

    1 hr 3 min
  • #13 17 mínútna sleikur
    Þessa dagana valsa menn um ganga kastalans fullir sjálfstrausts í snjóhvítum buxum. Það eru ekki einu sinni vasar á þeim, síminn og veskið eru bara einhverstaðar. Enginn hefur áhyggjur af neinu. Gauti lætur skoða á sér skinnhellirinn og Arnar fer í 17 mínútna sleik sem er met. Þetta og svo margt fleira, t.d. jólin og blaut föt.      
    59 min

About Podkastalinn

From the publisher's feed

Emmsjé Gauti og Arnar sem enginn veit hver er ræða málin. Í Podkastalanum eru litlu málin tekin fyrir, þau sem gefa tilveru okkar raunverulega lit, ljós og skugga.