
Sign up to save your podcasts
Or


Er í lagi að tala um börn í podkastinu eða er það gjörsamlega óþolandi topic fyrir þá sem eiga ekki börn. Eru unglingar hættulegir? Voru strákarnir hættulegir unglingar? Hver vinnur stóru flautkeppnina. Á fólk að hætta að afsaka draslið heima hjá sér og sætta sig við að við erum öll meiri svín en við þykjumst vera?
Strákar safna skeggi af því að þeir eru komplexaðir og ljótir, spurðu hvaða skeggjaða mann sem er. Gauti prófar sýndarveruleikagleraugu sem opna dyr inn í veröld sem er mun skemmtilegri en lífið sjálft. Vandinn er hinsvegar einn og aðeins einn, og hann mun verða mannsandanum að falli: Gúmmírassar
Stákarnir fara yfir allskonar lítil mál í þessum risastóra þætti. Hver vann munnlegu karate keppnina? Hvað kom fyrir Gauta þegar hann reyndi fyrir sér í fimleikum og afhverju í fjandanum var Arnar sem enginn veit hver er að gera fuglahljóð á laugarveginum. Öllum þessum spurningum er svarað í þessum þætti af Podkastalanum.
Gauti er testaður af sjálfum djöflinum í jarðneska himnaríkinu sem bílastæðið við Eiðistorg síðdegis á föstudegi í rigningu er. Í leiðinni lærir hann margt um sjálfan sig. Í umferðinni er maður samt testaður af fleirum en djöflinum sjálfum, venjulegu fólki fyrst og fremst, og þá er ágætt að þekkja óskrifuðu reglurnar sem tengjast bílum, flautum, framúrakstri, lögreglunni, akreinum, road rage og puttaferðalöngum. Í raun fer allur þátturinn óvart í að ærast yfir bílatengdu efni. Afsakið það.
Gauti er farinn að hafa verulegar áhyggjur af öllum þessum helvítis tekjumissi sem fylgir reglum og bönnum tengdum covid en deyr ekki ráðalaus og snýr sér að flugvélabraski. Strákarnir eru sammála um að það sé allavega betri fjárfesting en skafmiðar og spilakassar. Enn og aftur og ekki í seinasta skipti tala þeir um að brenna í sjálfsskaparvítinu sem öll símanotkun er en þessi hraða tækniframþróun er samt ekki öll sem verst því t.d. eru róbottar mjög nettir og til margs nýtilegir.
Elska sjálfstæðismenn stórar búbbur en hræðast rassa? Hvað má vera í sömu sokkunum marga daga í röð? En ef það eru sokkar sem einhver snyrtilegur notaði daginn áður? Eru símaöt snilld eða hræðilegt samfélagsmein. Podkastalinn fer yfir litlu málin sem skipa stóran sess í lífum okkar allra.
Hversu margar köngulær borðar maður yfir ævina? Gerist það í alvörunni eða eru þær of hræddar við skinnhella? Hvað er cacao, er hægt að nota það sem andlegan leiðtoga eða leiðir það til óstjórnlegrar sjálfsfróunar. Var Jesú alltaf með júllur? Namaste!
Töframenn: Hvað er að þeim? Gauti mætir undirbúinn með himinháan stafla af gögnum um galdrakarla og loksins eru menn algjörlega sammála um eitthvað. Í fyrsta og hugsanlega seinasta skipti fjallar heill þáttur þannig séð um aðeins eitt topic, svo erfitt var að slíta sig frá þessu steindauða hrossi. Abrakadabra!!
Klósett: þau eru allstaðar og allir nota þau. Heimurinn hverfist um klósett í öllum stærðum og gerðum og reglurnar sem gilda inni á baðherbergjum eru margar og flóknar. Eða hvað? Gauti misbýður nöfnunum með hegðun sinni við búðarkassa, skítur saklausa konu með byssu og Arnar þefar uppi erótík á ólíklegustu stöðum.
From the publisher's feed