Podkastalinn

Podkastalinn

By PodkastalinnComedyComedy Interviews
Download on the App Store

Podkastalinn episodes

  • #32 Season eitt FINALE

    2020, what a ride! Alvöru böllur á þessu ári. Kastalinn var endurbyggður á einni nóttu í sumar og hefur síðan þá sett sterkan svip á borgarmyndina með háum, skökkum turnum og fallbyssuskotum. Í dag fögnum við og kveðjum og hlæjum og grátum í einum rykk því líkt og árið er season 1 á enda. Þetta var frábært season, það besta segja sumir, en þetta er komið gott. Season 2 hefst á nýja árinu og það er einlæg trú okkar að það gefi season 1 ekkert eftir. Takk fyrir okkur og gleðileg jól!

    1 hr 22 min
  • #31 Friends bloopers

    Fólk treystir meira á varalestur en það gerir sér grein fyrir og það hlustar af ekki af jafn mikilli athygli og það lætur í ljós. Hvað gerist þá þegar varir eru huldar með þar til gerðum grímum svo fólk þarf alfarið að treysta á hlustun í munnlegum samskiptum? Hlustið og þér munið amk komast að því hvernig Gauti dílar við það. Í þættinum ræða strákarnir líka cool dót eins og flash mob og stomp tónlist og leysa svo hvorki meira né minna en frá skjóðunni um hver HIN FULLKOMNA JÓLAGJÖF er (þú trúir þessu ekki!!!)

    1 hr 1 min
  • #30 Sænskir Handrukkarar

    Hvernig tókst Gauta að eyða sólarhring í að kaupa tóbak? Afhverju fór hann ekki bara að hitta sænsku handrukkarana sem eru búnir að opna útibú útum allan bæ? Eru vapesölumenn svölustu gaurar í heimi? Svarið er augljóst en því er svarað í þætti númer þrjátíu af Podkastalanum. Uppeldisaðferðir Podkastalans koma fram í þættinum en svo fer umræðan aftur að nikótíni. Það eru miklar líkur á því að þú byrjir að reykja eða nota nikótín á einhvern hátt eftir þennan þátt. En engar áhyggjur! Gauti veit um bók sem hann er alltaf að tala um og hún á að redda manni frá fíkninni… höldum við.

     

     

    55 min
  • #29 Himmelbjerget

    Eftir stuttar barsmíðar á brekkunni Himmelbjerget í Danmörku kafar Podkastalinn í pósthólfin sín. Þar er að finna allskonar heimspekilegar vangaveltur um hina og þessa hluti úr daglegu lífi hlustenda. Hvort sem það er umræðuefni, ástarjátningar, spurningar um lífið eða spam þá hvetjum við hlustendur kastalans að senda okkur skilaboð (instagram/facebook). Finndu Podkastalann á samfélagsmiðlum @podkastalinn

    1 hr 4 min
  • #28 mömmurapp

    30. júlí 2020 sendir Gauti frá sér tweet sem hefur afleiðingar. Fólk snappar. Afhverju skrifaði Gauti tweetið? Afhverju snappaði fólk? Hefur Gauti recoverað að fullu? Arnar rannsakar málið og slakar ekki á fyrr en öll kurl eru komin til grafar.

    59 min
  • #27 Geislavirkur úrgangur

    Podkastalamenn fara yfir gamla drauma um að drekka geislavirkann vökva til þess að öðlast ninjahæfileika. Þeir ræða um gæludýr en fara svo yfir það hvernig sé best að slást við villt dýr í náttúrunni. Kóngarnir í kastalanum eru orðnir betri í að svara innsendum fyrirspurnum og taka fyrir nokkur vel valin mál. 

    1 hr 8 min
  • #26 Hvíslenska

    Vampírur, kvíði, fóbíur, myrkur og Ole Lund Kirkegaard lífvana í skafli. Úff! Þátturinn er drungalegur enda veturinn vel á veg kominn og vonleysið sjaldan meira en á þessum árstíma. Strákarnir spila dularfulla upptöku sem breytir öllu um sakleysislegar hugmyndir þeirra um sund, potta og busl. Varúð, kæru hlustendur, fólk er ógeð.

    1 hr
  • #25 Á hálum ís

    Finnst pöddum við líka ógeðsleg? Eru blobfiskar í neyslu? Strákarnir opna þarfa umræðu um bodyshaming í hafinu. Mun veganismi taka bluetooth karla úr umferð? Strákarnir fara í ísbúð og fremja harakiri. Hvaða bragðarefur er bestur? Hvað er bannað að gera í ísbúð? Til hvers að fara út að hlaupa? Frá hverju ertu að hlaupa? Hvað var Gauti að gera í fína hverfinu úti á nesi klæddur eins og þjófur? Hvað má borða mikið af hráu hakki? Þessum spurningum ásamt ótal öðrum er svarað í þessum þætti af Podkastalanum.

    1 hr 9 min
  • #24 1997

    Árið er 1997. Hárið er aflitað og spiky, hjartað í þér slær fyrir Sarah Michelle Gellar og þú ert með nýja bók um galdrastrák sem er víst helvíti góð. Nema hvað árið er 2020, hárið á þér er niðurdrepandi náttúrulegum lit, Sarah hefur verið hamingjusamlega gift Freddie Prinze Jr. síðan 2002 og J.K. Rowling hefur verið aflýst. Hvað gerðist?

    1 hr 11 min
  • #23 Shang Tsung

    Þegar siðrofið hefst og fólk fer að éta hvert annað, með hverjum myndaru teymi til að komast af: rafíþróttamönnum eða röppurum? Ha?? Þetta og svo margt fleira, t.d. nautaat (horn á bólakaffi í bossanum í níðingum), fótboltalandsliðið (víkingaklappið, hot or not?) og þegar fólk annaðhvort rennur í hálku eða feykist um í vindi við sæbrautina og starfsmenn Advania ná því á video.

    57 min

About Podkastalinn

From the publisher's feed

Emmsjé Gauti og Arnar sem enginn veit hver er ræða málin. Í Podkastalanum eru litlu málin tekin fyrir, þau sem gefa tilveru okkar raunverulega lit, ljós og skugga.