Podkastalinn

Podkastalinn

By PodkastalinnComedyComedy Interviews
Download on the App Store

Podkastalinn episodes

  • #52 Olíusmurt höfuð

    Hvar er Arnar Freyr? Gaurinn sem var alltaf í Podkastalanum. Gaurinn með mannsnúðinn. Við skulum komast að því saman og smyrja höfuð hans með olíu. Er „Drottinn er minn hirðir“ banger? Hvernig var að búa í Reykjavík fyrir hundrað árum? Voru englar guðs úr biblíunni litlir ógeðis perrar? Arnar sem enginn veit hver er fer yfir hluti sem pirra hann í umferðinni.

    54 min
  • #51 Riddarar III feat. Memes

    Eftir að hafa verið snitchaðir af mömmum sínum mæta Podkastalinn memes í settið og taka þá í að svara spurningum sem brenna á riddurum Podkastalans.

    (sendið okkur umræðuefni, spurningar, vandamál sem þarf að leysa, sögur o.s.frv. og við tökum það fyrir í næsta Riddaraþætti kastalans. Við tökum á móti efni í DM á instagram og faceook)

    1 hr 21 min
  • #50 Geit í holu

    Hvort er hættulegra að hoppa yfir fljótandi eldhraun eða vera með hring? Hvort er hættulegra fyrir puttana? Vita vísindamenn eitthvað um geiminn eða er starf þeirra endalaust gisk? Er unglingavinnan tilgangslaus eða gerir hún eitthvað gagn fyrir samfélagið? Ert þú umferðarguð? Kveiktu á Podkastalanum og komdu með í ferðalag um sléttur litlu málanna.

    57 min
  • #49 Gangsta shit feat. Birgir Hákon

    Alltaf að muna að sleikja pokann svo Víkingasveitin brjóti ekki upp hurðina heima hjá ykkur. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins sér um að selja fullorðnu fólki lögleg eiturlyf en hver sér um börnin? Eru bjórsalar að deyja út? Hvað er hættulegasta hverfið í Breiðholtinu og hvað í fjandanum er langa vitleysan? Birgir Hákon mætir seint í þáttinn eins og alvöru rappstjörnu sæmir og fer yfir málin með okkur.

    1 hr 30 min
  • #48 Mannát og orgíur

    Er pláss fyrir fleiri Eminem eftirhermur í heiminum. Svarið er nei. Má horfa á myndir með mönnum sem eru cansellaðir ef myndirnar voru gerðar áður en þeim var cansellað? Af hverju er efri millistéttarfólk með þráhyggju fyrir hænum og hvernig stendur á því að þær eru alltaf að sleppa? Tjúnaðu inn fyrir tímamóta kenningu Arnars sem enginn veit hver er sem tengist mannáti og orgíum.

    1 hr 13 min
  • #47 Tribal geimvera

    Það er manneskja sem hittir ykkur öll einu sinni á ári og þrífur ykkur. Manneskja sem sér ykkur vaxa og dafna. Hver er það? Hvenær á fólk að byrja að afskræma líkamann sinn? Eiga börn að fá sér tattú og gulltennur? Af hverju fékk Gauti sér tribal geimveru á magann? Hvernig eru reglurnar í kringum það að bögga frægt fólk á djamminu? Margir muna eftir því þegar fólk tók í hendina á hvort öðru. Ætti að vera ólöglegt að gera of löng handshakes?

    (Þessi þáttur Podkastalans er í boði Birtu CBD. Birta CBD er íslenskt fyrirtæki sem einblínir á snyrti- og heilsuvörur sem innihalda hágæða kannabídíól (CBD) einangrað úr iðnaðarhampi. hlustendur Podkastalans fá 20% afslátt á www.birtacbd.is út febrúar 2021 hlustaðu á þáttinn til að fá afláttarkóðann)

    53 min
  • #46 Þekki götuna eins og Rotta
    Ef þú drepst þá ferðu yfir móðuna miklu en ef þú dreps áfengisdauða fórstu að öllum líkindum bara í móðuna á Prikinu. Hvað myndi gerast ef neanderdals Gunnar Nelson myndi hitta neanderdals Hafþór Júlíus? Að vera rappari? Er það besta vinna í heimi eða bara blekking sem Arnar sem enginn veit hver er lifir í. Er Gauti rottan sem hann segist vera í laginu silfurskotta?      
    57 min
  • #44 Brókaður fyrir Norðan (Agureyri seinni hluti ásamt Birki Bekk og Dóra Ká)

    Podkastalinn heldur sigurgöngu sinni um norðurlandið áfram. Við klæddum okkur í hot brók og ræddum málin. Pylsa eða pulsa? Hverju er ekki drullusama? Af hverju var Harrybrúin byggð? Hvað veit Arnar sem enginn veit hver er um Akureyri? Gauti fer yfir þessi mál og mörg fleiri ásamt góðvinum þáttarins Birki Bekk og bæjarstjóranum Dóra Ká.

     

    (Þessi þáttur Podkastalans er í boði Birtu CBD. Birta CBD er íslenskt fyrirtæki sem einblínir á snyrti- og heilsuvörur sem innihalda hágæða kannabídíól (CBD) einangrað úr iðnaðarhampi. hlustendur Podkastalans fá 20% afslátt á www.birtacbd.is út febrúar 2021 hlustaðu á þáttinn til að fá afláttarkóðann)    
    1 hr
  • #43 Pulsa á Sjallanum á Agureyri (ásamt Birki Bekk og Dóra K)

    Í botni Eyjarfjarðar í nóvember árið 1989 voru lögð fyrstu drög að Podkastalanum. Podkastalinn ferðast því norður á Akureyri að leita upprunans og fer yfir málin ásamt góðvinum þáttarins Birki Bekk og bæjarstjóranum Dóra K.

     

    (Þessi þáttur Podkastalans er í boði Birtu CBD. Birta CBD er íslenskt fyrirtæki sem einblínir á snyrti- og heilsuvörur sem innihalda hágæða kannabídíól (CBD) einangrað úr iðnaðarhampi. hlustendur Podkastalans fá 20% afslátt á www.birtacbd.is út febrúar 2021 hlustaðu á þáttinn til að fá afláttarkóðann)

    1 hr 10 min

About Podkastalinn

From the publisher's feed

Emmsjé Gauti og Arnar sem enginn veit hver er ræða málin. Í Podkastalanum eru litlu málin tekin fyrir, þau sem gefa tilveru okkar raunverulega lit, ljós og skugga.