Pyngjan

Pyngjan

By PyngjanBusinessEducation
Download on the App Store

All Pyngjan episodes

  • Föstudagskaffið: Netbankakúrekarnir leggjast á ráðin

    Sendu okkur skilaboð!

    Föstudagskaffið sullast út um allt borð þennan morguninn en meðal umræðuefna er frekari greining á morgunkornaumræðunni úr síðasta þætti, en okkur áskotnuðust sölutölur á íslenska markaðnum frá ónefndum die hard aðdáanda. Niðurstöður á útboði Ölgerðarinnar koma einnig við sögu ásamt tilkynningu fyrir næsta ársreikningaþátt Pyngjunnar. Svo er Milljónamæringur vikunnar á sínum stað svo þið sjáið það að föstudagskaffi dagsins er stútfullt af kaffi og bakkelsi.

    33 min
  • Ársreikningar: Nings

    Sendu okkur skilaboð!

    Asíski veitingastaðurinn Nings ætti að vera orðinn flestum Íslendingum kunnugur en staðurinn hefur verið í rekinn í 31 ár og átt góðu gengi að fagna... að minnsta kosti út á við en ef ársreikningar staðarins eru skoðaðir má lesa aðra sögu. Í þættinum fara Arnar og Ingvi yfir þunga rekstrarsögu Nings sem er umvafin skuldum og tapi. Já, það eru ekki alltaf jólin í þessu  en þó bregður léttum staðreyndum fyrir annað slagið!

    52 min
  • Föstudagskaffið: Er Cocoa Puffs að hasla sér völl á próteinmarkaði?

    Sendu okkur skilaboð!

    Föstudagskaffið þennan föstudaginn er ekki volgt og viðurstyggilegt frekar en fyrri vikuna. Stutt en hnitmiðuð yfirferð um morgunkornarmarkaðinn og endurkomu Cocoa Puffs aftur til Íslands ásamt ítarlegri yfirferð um hafnaboltaliðið Savannah Bananas. Að lokum rýnum við í pyngju Haralds Ueno sem er drekkhlaðin og flæðir krónum og aurum í ríkissjóð, skattgreiðendum öllum til góða.

    37 min
  • Ársreikningar: Hið Íslenzka Reðasafn

    Sendu okkur skilaboð!

    Þáttur dagsins er undirlagður getnaðarlimum í orðsins fyllstu merkinu. Hið Íslenzka Reðasafn hefur síðastliðin 25 ár haldið úti hundruðum þeirra til sýnis og er fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Mögnuð saga um þetta sértæka áhugamál Sigurðar Hjartarsonar sem vatt heldur betur upp á sig!

    54 min
  • Föstudagskaffið: Við erum stödd í miðri Ásgeirsbólgu

    Sendu okkur skilaboð!

    Það er sótsvart og sykurlaust föstudagskaffi dagsins! Helvítis verðbólgan (Ásgeirsbólgan) kemur við sögu eins og svo oft áður en nú með fróðlegu og skemmtilegu ívafi, Möet og Louis Vuitton er í eigu sama manns og Davíð frá Unity leggur sitt á vogarskálarnar í baráttu við loftslagsdjöfulinn. Þetta og margt fleira í Föstudagskaffinu!

    40 min
  • Ársreikningar: Útboð Ölgerðarinnar (1/2) - Samantekt

    Sendu okkur skilaboð!

    Þáttur dagsins er tvískiptur, en í þessum fyrri hluta rennum við yfir nýjasta ársreikning Ölgerðarinnar og fjárfestakynningu fyrir komandi útboð. Í síðari hluta (sem kemur inn seinna í dag) mun Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar mæta til okkar í létt spjall um fyrirtækið og útboðið sem er framundan.

    46 min
  • Föstudagskaffið: Steve Jobs fann ekki upp tölvumúsina

    Sendu okkur skilaboð!

    Föstudagskaffi dagsins er stútfullt af allskonar fróðleik, misjafnlega nytsömum þó. Ef þú átt Ipod niðri í geymslu þá getur þú selt hann á fúlgu fjár. Eurovision keppnin kemur einnig við sögu  en auðvitað var ekki hægt að skauta fram hjá keppninni þar sem Arnar er Euromaniac. Að lokum fer Ingvi svo yfir fall rafmyntarinnar Terra (LUNA) sem hefur fallið um rúm 99% síðasta sólarhring.

    45 min
  • Ársreikningar: Fjármál sveitarfélaganna (2/2) - Höfuðborgarsvæðið

    Sendu okkur skilaboð!

    Í þætti dagsins gerum við aðra tilraun í að upplýsa hlustendur um fjármál sveitarfélaganna. Að þessu sinni var höfuðborgarsvæðið skoðað nánar en það eru Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes. Til að hrista aðeins upp í þessu fór Ingvi svo yfir veitingar flokanna á kosningardag en sjálfur kýs hann þann flokk sem býður upp á bestu veitingarnar hverju sinni.

    Ársreikningaþáttur Pyngjunnar er í boði Payday, Keldunnar og Dominos.

    Tengill á veflausn Brynjólfs Gauta: https://bggj.shinyapps.io/maelabord_arsreikninga_sveitarfelaga/?fbclid=IwAR0W77WNYVVa8nC5q2hvRVWYb-Oq09palf2X2Z1ZQuZyPih9INgv8RZHhUE

    1 hr 1 min
  • Föstudagskaffið: Seðlabankastjóri spilar á fiðluna á meðan húsnæðismarkaður brennur

    Sendu okkur skilaboð!

    Föstudagskaffið er veglegt að þessu sinni. Raðfullnægingarfrumkvöðullinn og Ólígarkinn Oleg Tinkov og Pútín í hár saman, Ásgeir Seðlabankastjóri óumdeildur skúrkur vikunnar og leiðinlegu snekkju aparnir sem sprengja skalann í rafeignamyndun, svo fátt eitt sé nefnt í föstudagskaffi dagsins.

    Föstudagskaffi Pyngjunnar er í boði Brauð & co. og Lavazza kaffi.

    39 min