Pyngjan

Pyngjan

By PyngjanBusinessEducation
Download on the App Store

All Pyngjan episodes

  • Ársreikningar: Eldum rétt & Te og kaffi

    Sendu okkur skilaboð!

    Í þætti dagsins tökum við fyrir tvö skemmtileg fyrirtæki að vanda. Eldum rétt hafa verið í gríðarlegum vaxtafasa undanfarið en þó var það ekkert hægðarverk fyrir eigendur að koma fyrirtækinu á réttan kjöl. Te og Kaffi hafa átt erfið rekstrarár undanfarið en árið 2020 var þeim gjöfult í ljósi óvenju lágs launakostnaðar. Farið eru um víðan völl og m.a. nýjar kennitölur kynntar til leiks. Heyrst hefur að Prófnefnd viðurkenndra bókara sé í áfalli eftir að þriðja skammtímagreiðsluhæfiskennitalan var kynnt til leiks. Nokkuð þétt hjá Eldum rétt og enginn í straffi hjá Te og kaffi!

    Eldum rétt - 6:08
    Te og kaffi - 30:27

    57 min
  • Ársreikningar: Hjallastefnan & Lindex

    Sendu okkur skilaboð!

    Í dag verða pyngjur tveggja ólíkra rekstraraðila skoðaðar. Fyrirtækin sem um ræðir eru Hjallastefnan og Lindex og ættu að vera orðin flestum landsmönnum kunnug. Í þættinum eru lifandi samræður m.a. um óvænt ættartengsl, ritdeilur um hafragraut á leikskólum og margt fleira.

    Hjallastefnan - 5:35
    Lindex - 24:20

    45 min
  • Ársreikningar: Søstrene Grene & Slippfélagið

    Sendu okkur skilaboð!

    Í dag köfum við ofan í tvær mydarlegar pyngjur að vanda. Systurnar Grene virðast pumpa arði úr pyngjunni í lange baner á meðan langtíma skuldlaus pyngja Slippfélagsins er í þann mund að springa.

    Við biðjumst velvirðingar á misháum raddstyrk í þættinum. Two weeks á tökkunum.. Við lofum hlustendum að þetta komi ekki fyrir aftur!

    Søstrene Grene - 4:27
    Slippfélagið - 24:56

    52 min
  • Ársreikningar: SAMbíó & Flatey Pizza

    Sendu okkur skilaboð!

    Sem fyrr verða tvær pyngjur skoðaðar í þætti dagsins. SAMbíóin áttu erfitt Covid ár 2020 á meðan Flatey þyngdi pyngjur eigenda á árinu. Í þættinum eru ræddar merkilegar staðreyndir um rekstur félaganna, allar helstu rekstrartölur þeirra uppljóstraðar og sagan rakin. 

    SAMbíóin - 4:50
    Flatey Pizza - 29:08

    51 min
  • Ársreikningar: Jólahúsið á Akureyri & Jói Útherji

    Sendu okkur skilaboð!

    Í þessum fyrsta þætti eru teknir fyrir ársreikningar Jólahússins á Akureyri og Jóa Útherja. Við skyggnumst inn fyrir pyngjur fyrirtækjanna og ræðum helstu lykilstærðir þeirra fram og aftur. 

    Jólahúsið á Akureyri - 6:26
    Jói Útherji - 17:54

    35 min