Pyngjan

Pyngjan

By PyngjanBusinessEducation
Download on the App Store

All Pyngjan episodes

  • Ársreikningar: Fjármál sveitarfélaganna (1/2) - Landsbyggðin

    Sendu okkur skilaboð!

    Í þætti dagsins drukknum við Pyngjubræður í grunnu lauginni. Við gerðum heiðarlega tilraun til þess að fara yfir 2021 ársreikninga sex stærstu sveitafélaga á landsbyggðinni (Þó aðeins fimm). Afraksturinn gæti orðið umdeildur en við reyndum okkar besta í að miðla þessum óspennandi upplýsingum.

    Tengill á veflausn Brynjólfs Gauta: https://bggj.shinyapps.io/maelabord_arsreikninga_sveitarfelaga/?fbclid=IwAR0W77WNYVVa8nC5q2hvRVWYb-Oq09palf2X2Z1ZQuZyPih9INgv8RZHhUE

    1 hr 8 min
  • Föstudagskaffið: Er Range Rover bólan að hefjast á ný?

    Sendu okkur skilaboð!

    Föstudagskaffið er nýr þáttur hjá Pyngjunni þar sem Arnar og Ingvi renna á léttu nótunum yfir nokkrar vel valdar fréttir úr viðskiptalífinu síðastliðna viku en auk þess mun föstum liðum bregða fyrir reglulega. Þættirnir koma inn á föstudagsmorgnum og eru ætlaðir Pyngjuaðdáendum til yndisauka yfir föstudagsbollanum fyrir vinnu, á leið í vinnu, við vinnu, í kaffitímanum eða bara við hvaða aðstæður sem ykkur dettur í hug. 

    Í Pyngjukaffi dagsins koma Arnar og Ingvi m.a. inn á yfirtöku Elon Musk á Twitter og velta því fyrir sér hvar hann ætlar að grafa upp eiginfjárhluta kaupanna, hvort Maggi Mix sé Mr.Beast Íslands, hvort Range Rover bólan kunnuga sé yfirvofandi, Kaup og Sölu vikunnar og svo fer Ingvi að lokum yfir topp 3 lista yfir hvernig skal hegða sér í lyftu. Góða helgi!

    40 min
  • Ársreikningar: Core (NOCCO) & Nexus

    Sendu okkur skilaboð!

    Þáttur dagsins er ekki af verri endanum þó við segjum sjálfir frá en í honum kryfjum við yfirgengilega upprisu Core heildsölu sem er hvað þekktust fyrir drykkjarvörumerkið NOCCO sem kom yfir landann líkt og flóðbylgja árið 2015 og virðist ekki vera á neinni útleið. Heimildir Pyngjunnar herma að Core sé búið að tryggja samninga við risastóran birgja sem hingað til hefur verið hjá einni stærstu heildsölu landsins, Innnes en nánari uppljóstrun má hlusta á í þætti dagsins. Nexus eru án efa þekktasta spilabúð landsins og hefur verið þarfasti þjónn nörda þessa lands í 30 ár en þau hafa sprengt ofan af sér þakið hvar sem þau setjast að enda vaxið gríðarlega á síðustu árum. Spurningin er þó hvort Gísli eigandi sé að hafa eitthvað upp úr krafsinu?  Þetta og meira til í þætti dagsins!

    Core - 4:10
    Nexus - 46:48

    1 hr 14 min
  • Ársreikningar: Leynilaugin & Gunnars

    Sendu okkur skilaboð!

    Það er óhætt að segja að þáttur dagsins sé gjörsamt eyrnakonfekt þó hann sé eflaust ekki mikið fyrir augað. Uppgangur Leynilaugarinnar, betur þekkt sem Secret Lagoon, er lýginni líkastur og ef kíkt er á ROI (Return on investment) félagsins er ekki ólíklegt að vasareiknirinn sýni villumeldingu. Hvað Gunnars varðar þá mun ykkur hlustendum líklega ekki gruna hvurslags sukkerí og havarí hefur legið bakvið rekstur litla krúttlega Gunnars Majónessins sem þið smyrjið á brauðterturnar ykkar yfir hátíðarnar en því verða gerð nánari skil í þætti dagsins.

    Leynilaugin - 6:37
    Gunnars - 32:50


     

    1 hr 6 min
  • Ársreikningar: Uppskeruhátíð 1.seríu ásamt Jakobi Birgissyni

    Sendu okkur skilaboð!

    Í þætti dagsins er fyrsta sería Pyngjunnar gerð upp. Okkur til halds og traust er Jakob Birgisson grínisti, uppistandari og auglýsingasmiður sem hefur verið einn okkar dyggasti hlustandi frá byrjun. Farið var yfir landslag fyrstu seríu á léttu nótunum og eins og öllum góðum uppskeruhátíðum sæmir voru viðurkenningar veittar fyrir hin ýmsu verk.

    1 hr 17 min
  • Föstudagskaffið: Hóf í búðum SKEL á næsta tungli

    Sendu okkur skilaboð!

    Föstudagskaffið er nýr þáttur hjá Pyngjunni þar sem Arnar og Ingvi renna á léttu nótunum yfir nokkrar vel valdar fréttir úr viðskiptalífinu síðastliðna viku en auk þess mun föstum liðum bregða fyrir reglulega. Þættirnir koma inn á föstudagsmorgnum og eru ætlaðir Pyngjuaðdáendum til yndisauka yfir föstudagsbollanum fyrir vinnu, á leið í vinnu, við vinnu, í kaffitímanum eða bara við hvaða aðstæður sem ykkur dettur í hug. 

    Í þessum fyrsta þætti af Föstudagskaffinu er farið um víðan völl. Milljarðamæringur sem býr með tíu vinum sínum og keyrir um á Corollu, Kampavínsslettur upp um alla veggi hjá SKEL fjárfestingarfélagi og "Papa" Elon talar fyrir málfrelsi við kaup sín á 9,2% hlut í Twitter. Ingvi fer svo að lokum yfir Topp 3 lista um hvað skal gera í nýrri vinnu (Ekki ráðgjöf). Góða helgi!   

    37 min
  • Ársreikningar: SS & Klappir (First North special)

    Sendu okkur skilaboð!

    ATHUGIÐ - þessi þáttur er ekki fjárfestingarráðgjöf. 

    Í þætti dagsins kíkjum við á tvö félög sem eiga það sameiginlegt að vera með hluta eignarhalds á First North markaðnum. Fyrirtækin eru þó eins ólík og þau gerast en SS hefur verið grunninnviður í íslenskri matarmenningur frá árinu 1907 á meðan Klappir er tiltölulega nýlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í grænum lausnum. 

    SS - 4:30
    Klappir - 38:37

    1 hr 26 min
  • Ársreikningar: Hreyfill & Mandí

    Sendu okkur skilaboð!

    Í þætti dagsins eru tekin fyrir tvö ólík fyrirtæki sem þó haldast hönd í hönd í virðiskeðju íslensks skemmtanalífs. Framboðsskortur Hreyfils virðist vera að gera landann gráhærðan um þessar mundir en lifir þó nokkuð góðu lífi með pungdjúpar pyngjur í sínum vörslum, þrátt fyrir taprekstur árin 2019 og 2020. Mandí hefur átt ævintýralegu gengi að fagna frá því þau komu Shawarma og fleiru góðgæti á kortið á Íslandi. Hlal eigandi neitar því ár eftir ár að greiða sér út arð og útlit er fyrir að hann hreinlega noti ekki peninga. Það er þó óhætt að fullyrða það að hann hafi komist vel upp á lagið með veitingasölu til þessa en stóra spurningin er þó sú hvort Mandí stefni á First North markað sem fasteignafélag í náinni framtíð? Þetta og meira til í Pyngju dagsins! 

    Hreyfill - 18:23
    Mandí - 36:30

    1 hr 13 min
  • Ársreikningar: Blush & Sómi

    Sendu okkur skilaboð!

    Þegar þriðjudagsklukkurnar hringja, þá er komin ný Pyngja í boði Arnars og Ingva! Í þætti dagsins er boðið upp á tvo ársreikninga af dýrari gerðinni. Gerður í Blush hefur séð tímana tvenna, þrátt fyrir ungan aldur og það má með sanni segja að hún sé fullkomin skilgreining á HSHD (Hugsjónakona sem hlær í dag). Eigendur Sóma virðast einnig hlægja alla leið í bankan  ár eftir ár enda full ástæða til þegar smurðar eru 12.000 samlokur á dag ofan í kolvetnissjúkan landann. Ferlega myndarlegar pyngjur þessa vikuna!

    Blush - 7:55
    Sómi - 38:11

    1 hr 3 min
  • Ársreikningar: Löður & Brauð og co.

    Sendu okkur skilaboð!

    Það er óhætt að segja að þáttur dagsins sé ekki af verri endanum. Sem fyrr verða skoðuð tvö landsþekkt fyrirtæki sem þó hafa átt misjöfnu gengi að fagna. Það hreinlega sér ekki fyrir endan á velgengni Löðurs þar sem stefnt er að arðgreiðslu sem á sér engin fordæmi í sögu Pyngjunnar. Brauð og co. hafa hins vegar átt á brattann að sækja þegar vel er að gáð, þrátt fyrir gífurlega öfluga byrjun en stutt saga fyrirtækisins er rakin ítarlega í þættinum.

    Löður - 7:30
    Brauð og co. - 29:18

    57 min