Rauður Raunveruleiki

Rauður Raunveruleiki

By Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva BjarnadóttirSociety & CultureNewsReligion & SpiritualityPolitics
Download on the App Store

Rauður Raunveruleiki episodes

  • Guðmundur Auðunsson / Hagfræði og Sósíalismi
    Í kvöld ræðum við við Guðmund Auðunsson, stjórnmála hagfræðing og sósíalista. Við fröum yfir víðan völl, tölum um klassíska hagfræði, byrjun kapítalismans, Adam Smith og Karl Marx.
    Samtalið leiðist síðan að nútímanum og við ræðum um kvótagreifanna og húsnæðiskerfið í þessu sögulega og þjóðhagslega samhengi.
    59 min
  • Rúnar Freyr og Kjartan Sveinn
    Aðgerðarsinninn Rúnar Freyr Júlíusson og greinarhöfundurinn Kjartan Sveinn Guðmundsson koma til okkar í spjall í kvöld. Báðir eru þeir ungir sósíalistar og við ætlum að fá að heyra frá þeim um pólitíska þátttöku, stöðuna á Íslandi og framtíðina.
    58 min
  • Tjörvi Schiöth - Saga kapítalisma og Sósíalisma
    Tjörvi Schiöth er að klára mastersnám í hugmyndasögu og stundaði áður nám í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði. Við áttum við hann gott spjall um sögu kapítalisma og sósíalisma, um efnahagskerfi og hugmyndafræði, heimsvaldastefnuna og fleira.
    Það er af nógu að taka! Fræðandi og skemmtilegur þáttur á Samstöðinni á mánudaginn klukkan níu.
    44 min
  • Frumbyggjar í Panama og loftslagsváin
    Carmen Jóhannsdóttir hefur unnið með hjálparstarfssamtökum sem hafa aðstoðað frumbyggja sem lifa við eyjur í Panama sem eru að sökkva í sjó vegna bráðnun jökla. Carmen hefur líka unnið í "zero waste" verkefnum og stofnaði meðal annars veitingarstað þar sem rusli er haldið í algeru lágmarki. Heyrum í Carmen og sjáum hvað er að frétta af Panama og frumbyggjunum sem lifa þar. Rauður Raunveruleiki klukkan 21 í kvöld.
    53 min
  • Alexandra Briem og Ragna Sigurðardóttir
    Alexandra Breim frá Pírötum og Ragna Sigurðardóttir frá Samfylkingunni setjast inn í stúdíó Rauðs raunveruleika. Við ræðum bankasöluna og spyrjum þær út í stefnu flokkanna fyrir komandi kosningar.
    40 min
  • Hallfríður Þórarinsdóttir
    Í kvöld ætlum við að ræða málfar og tengsl þess við stétta- og virðingarstöðu á Íslandi. Hvernig fólk er stimplað úr umræðunni fyrir að tala ekki “nógu góða” íslensku eða fallbeygir ekki hlutina 100% rétt. Þetta á við um fólk af erlendum uppruna en líka um Íslendinga sem koma úr lægri stéttum. Þar er annað orðalag notað en hjá þeim hærri settu.
    Gestur kvöldsins er Hallfríður Þórarinsdóttir. Hún er menningarmannfræðingur og skrifaði doktorsritgerð sem heitir: “Purity and Power: The Policy of Purism in Icelandic Nationalism and National Identity.”
    Við ræðum við hana um inntak þessarar ritgerðar, sem fjallar um hvernig stefnan um “hreinleika” hefur mótað þjóðarvitund Íslendinga. Út frá því tökum við umræðu um málfar og hvernig það getur hólfað fólk í mismunandi virðingarstiga og stéttir innan þjóðfélagsins.
    1 hr 1 min
  • Rauður Raunveruleiki - Sanna Magdalena
    Kynnumst stefnumálum Sósíalista í sveitarstjórnarkosningunum. Hvað er til ráða, hvað liggur mest á að laga og hvað er því til fyrirstöðu?
    Fáum innsýn inní borgarmálin og pólitíska þátttöku með Sönnu Magdalenu í Rauðum Raunveruleika
    42 min
  • Rauður Raunveruleiki - Blaz Roca
    Í kvöld verður skrúfað frá skoltinum á Erpi Eyvindarsyni. Hann mætir í Rauðan raunveruleika og segir okkur til syndanna. Erum við ungir sósíalistar nógu róttækir? Er kominn tími á heykvíslar? Mun óhjákvæmilega sverfa til stáls við auðvaldið? Höllum okkur aftur. Það er föstudagur og leyfum Blaz Roca að segja hlutina eins og þeir eru.
    1 hr 34 min
  • Nicole Voigt - Róttækur vinstri vængur Svíþjóðar
    Við fáum til okkar Nicole Voigt frá Ung Vänster í Rauðum raunveruleika kvöldsins.
    Hvað er í gangi á róttæka vinstri væng Svíþjóðar? Hvernig geta ungliðahreyfingar haft áhrif?
    Kynnumst málunum í Svíþjóð í Rauðum raunveruleika kvöldsins klukkan 17:00 á Samstöðinni.
    Viðtalið verður á ensku
    55 min

About Rauður Raunveruleiki

From the publisher's feed

Ungir sósíalistar ræða það sem skiptir þau máli.