Rauður Raunveruleiki

Rauður Raunveruleiki

By Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva BjarnadóttirSociety & CultureNewsReligion & SpiritualityPolitics
Download on the App Store

Rauður Raunveruleiki episodes

  • Rauður raunveruleiki - Saga Nató / Tjörvi Schiöth
    Sagan er ekki alltaf öll eins og hún sýnist. Í Rauðum raunveruleika kvöldsins köfum við í raunverulega sögu Nató með Tjörva Schiöth, förum yfir aðstæður heimsins við stofnun Nató, tilgangur Nató og veltum fyrir okkur kjarnorkusprengjum, kalda stríðinu, hergagnaiðnaðinum (military-industrial complex eða hernaðarlegur Keynesianismi), samskiptum ríkja og ofbeldi og stríði.
    Oft er talað um að Nató sé varnarbandalag en aðildarríki Nató eru langt frá því að vera saklaus um stríðsglæpi og aðra glæpi gegn mannkyninu. Og eftir fall Sovétríkjanna má kannski segja að Nató hafi orðið að grímulausara herveldi. Þetta og margt fleira á Samstöðinni í kvöld klukkan 19:30
    Grein sem minnst er á í þættinum um hernaðaríhlutanir; http://geopoliticaleconomy.com/2022/09/13/us-251-military-interventions-1991/?fbclid=IwAR32ZqHCgsPozOY8d0mcj57zcNa6cLmLEMGfoou5nEDJ11GVzb5vUY6_7N0
    1 hr 5 min
  • Rauður raunveruleiki - Blái herinn og umhverfið okkar / Tómas J. Knútsson
    Blái herinn hefur týnt plast við strendur Íslands og á landi og hafa þau týnt á þeim 28 árum sem þau hafa starfað gífurlegt magn af plasti sem væri annars ennþá á reiki í náttúrunni og sjónum.
    Tómas J. Knútsson er stofnandi Bláa hersins en ferðalag hans byrjaði þar sem hann var að kafa við Íslandsstrendur og sá allt það magn plasts sem hafði safnast upp víðsvegar um landið, við bryggjur og allsstaðar annarsstaðar. Við tókum gott spjall við Tómas um Bláa herinn, störf þeirra og umhverfismál í víðara samhengi
    Þetta er fyrsti þáttur í komandi syrpu Rauðs raunveruleika um umhverfismál, fylgist með fyrsta innslaginu á Samstöðinni eða á öllum helstu hlaðvarpsveitum klukkan 19:00 í kvöld!
    55 min
  • One year since the invasion of Ukraine
    Á föstudaginn næstkomandi er liðið eitt ár frá innrás Rússa í Úkraínu. Stríðið hefur haft hræðilegar afleiðingar fyrir heimsbyggðina alla og það er engin friður í sjónarmáli. Í kvöld ræðum við við tvo einstaklinga sem fæddust í Rússlandi og eru að skipuleggja mótmæli gegn stríðinu á föstudaginn næsta fyrir utan Rússneska Sendiráðið við Túngötu 24 klukkan 17:30.
    María Guindess kom til Íslands í Mars síðastliðnum eftir að stríðið braust út og hefur hún vakið athygli á því hvernig Pútín og ríkisstjórn hans hafa framleitt samþykki fyrir stríðið og ráðist að þeim borgaréttindum fólks sem eftir eru í Rússlandi. Andrei Menshenin er einn skipuleggjanda mótmælanna föstudagsins næsta og er líka frá Rússlandi. Við munum velta fyrir okkur stöðunni í Rússlandi og í stríðinu, afleiðingar þess og orsakir.
    Þátturinn er á ensku
    -ENGLISH-
    This Friday we reach the one year mark since Russia invaded Ukraine. The war has had terrible consequences for the entire world and there seems to be no end in sight. Tonight we’re speaking with two people who are from Russia and are organizing a protest against the war this friday outside the Russian embassy in Túngata 24 at 17:30.María Guindess came to Iceland last march after the war broke out and has been outspoken about the way Putin and his government have been manufacturing consent for the war and cracking down on those civil rights that still remained. With us also is Andrei Menshenin who is also originally from Russia and is one of the chief organizers of the protest this Friday. Join us as we reflect on the state of Russia and the war in Ukraine, it’s consequences and causes.
    39 min
  • Red reality special edition - Protests! / Mótmæli!
    In a special edition of Red Reality tonight Karl Héðinn Kristjánsson and Trausti Breiðfjörð Magnússon are speaking to two members of Efling, Ian Mcdonald and Sæþór Benjamín Randalsson about their collective struggle for fair wages and dignity.
    We will hear from them how the strike patrols have been going, what they're thoughts are on the development of the one-sided mediation proposal put forward by the state mediator and what they think will happen at Landsréttur.
    We will also discuss what is to be done, how can workers fight for their wages and dignity effectively and how can we, who are not currently striking, assist Eflings' members in their struggle for justice and humanity.
    - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
    Í sérstakri útgáfu Rauðs Raunveruleika tala Karl Héðinn Kristjánsson og Trausti Breiðfjörð Magnússon við tvo félaga Eflingar, þá Ian Mcdonald og Sæþór Benjamín Randalsson um sameiginlega baráttu þeirra fyrir betri kjörum og mannvirðingu.
    Við ætlum að heyra frá þeim hvernig verkfallsvarslan hefur gengið, hverjar hugsanir þeirra eru um þróun mála varðandi hlutdræga tillögu Ríkissáttasemjara og áfrýjun Eflingar til Landsréttar.
    Við munum líka ræða um það hvað sé til ráða, hvernig getur verkafólk barist fyrir kjörum sínum og mannvirðingu á gagnlegan hátt og hvernig getum við, sem erum ekki í verkfalli eins og er, hjálpað félögum Eflingar í baráttu þeirra fyrir réttlæti og mannhelgi
    1 hr 10 min
  • Rauður raunveruleiki - Fellum útlendingafrumvarpið
    Fellum útlendingafrumvarpið er grasrótarhópur sem berst fyrir því að Alþingi og ríkisstjórnin felli rasíska útlendingafrumvarpið. Þau Aníta Sóley Þórðardóttir, Askur Hrafn Hannesson og Íris Björk Ágústsdóttir settust hjá okkur og sögðu okkur frá frumvarpinu, mótmæla aðgerðum þeirra gegn því og yfirlýsingar ungliðahreyfinganna og ýmisa mannréttindasamtaka um frumvarpið.
    Frumvarpið hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að brjóta á mannréttindum
    Skoðið síður Fellum Frumvarpið á Instagram; @Fellum_frumvarpid og á facebook; "Fellum útlendingarfrumvarpið" https://www.facebook.com/profile.php?...
    26 min
  • Samninganefnd Eflingar / Eflings' Negotiation Committee
    Í Rauðum Raunveruleika í kvöld ræðum við við þrjá meðlimi samninganefndar Eflingar, þau Sæþór Benjamín Randalsson, Melissu Wiliams og Reynaldo Curato Renegado. Þau hafa verið partur af samningaferlinu og starfi Eflingar og komu að segja okkur frá því hvernig starfið og bárátta þeirra lýsir sér. Viðtalið er á ensku.
    In Red Reality tonight we will be speaking to three members of Eflings' negotiation committee. Sæþór Benjamín Randalsson, Melissa Williams and Reynaldo Curato Renegado. They have been directly involved in the negotiation process and came to tell us about their experiences in the union and their mutual class struggle. The interview is in English.
    49 min
  • Jóhann Páll Jóhannsson
    Í Rauðum raunveruleika kvöldsins ræðum við við þingmannin Jóhann Pál um stöðu Samfylkingarinnar og um ríkisfjármál, sósíalisma, spillingu og umhverfismál svo eitthvað sé nefnt. Jóhann var áður blaðamaður hjá Stundinni og hefur setið á þingi fyrir Samfylkinguna síðan á síðasta ári.
    1 hr 10 min
  • Karl og Kjartan taka stöðuna
    Karl Héðinn og Kjartan Sveinn taka stöðuna. Hvað er að gerast í framboðskjöri sjálfstæðismanna? Nýr forseti í Brasilíu, nýr formaður Samfylkingar og eftirspurn eftir olíu (og þáttum frá okkur) heldur áfram að aukast
    46 min
  • Stefanía María Arnadóttir - Fer samkennd minnkandi?
    Fer samkennd minnkandi? Stefanía María Arnadóttir skrifaði nýverið grein á Vísi þar sem hún fór yfir rannsókn sem sýna fram á að samkennd sé að minnka á meðal fólks. Við ræddum um niðurstöður þessarar rannsóknar og um hvað gæti mögulega verið að valda þessu, hvað sé til ráða.
    31 min
  • Lenya Rún
    Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata kemur og situr undir spurningaflóði Kjartans Sveins Guðmundssonar um Íran, Írak og Kúrdistan, bankasöluna, hvernig stemningin sé á hinu himinháa Alþingi með meiru.
    46 min

About Rauður Raunveruleiki

From the publisher's feed

Ungir sósíalistar ræða það sem skiptir þau máli.