Rauður Raunveruleiki

Rauður Raunveruleiki

By Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva BjarnadóttirSociety & CultureNewsReligion & SpiritualityPolitics
Download on the App Store

Rauður Raunveruleiki episodes

  • Rauður raunveruleiki - Barbie, endurvinnsla og allt þar á milli
    Ungir sósíalistar fá til sín gesti og ræða um Barbie, endurvinnslu, ásamt ýmsu sem er að gerast í veröldinni. Og hvaða kommúnista er Jón Gunnarsson að tala um?
    Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir varaborgarfulltrúi Pírata, Trausti Breiðfjörð Magnússon borgarfulltrúi Sósíalista, Sunna Dögg Ágústsdóttir ungur sósíalisti og starfsmaður Þroskahjálpar og Marsí Thoroddsen ungur sósíalisti og maóisti eru með okkur í setti
    44 min
  • Rauður raunveruleiki - Lindarhvoll ehf, greinargerð Sigurðar
    Í Rauðum raunveruleika kvöldsins köfum við í grein setts ríkisendurskoðenda, Sigurðar Þórðarsonar, um Lindarhvoll. Greininni var nýlega lekið af Sigurði sjálfum og þingkonu Pírata Þórhildi Sunnu. Sigríður grípur til þessarar ráða því enginn annar farvegur virtist honum opinn til að koma grein sinni út, grein sem hann skilaði Alþingi árið 2018.
    Í þættinum förum við í efni greinarinnar, útskýrum hvað Lindarhvoll er og hvað grein Sigurðar segir. Þetta er fyrsti þátturinn af nokkrum þar sem við munum skoða málefni Lindarhvols og pólitíkina á bak við það. Umsjónarmenn þáttarins eru Karl Héðinn Kristjánsson og Oliver Axfjörð Sveinsson. Fylgist með á Samstöðinni kl. 20
    43 min
  • Rauður raunveruleiki - Þróun skattbyrðarinnar, stéttaskipting og sérhagsmunir

    Í Rauðum raunveruleika í kvöld ætlum við að fjalla um breytingar á skattkerfinu og hagkerfi Íslands og annarra Vesturlanda á undanförnum áratugum. 

    Hvernig skattbyrðin hefur aukist hlutfallslega á milli- og lágtekjuhópum en hríðfallið fyrir þau allra ríkustu. Umsjónarmenn þáttarins eru þeir Karl Héðinn Kristjánsson og Oliver Axfjörð Sveinsson.

    44 min
  • Rauður raunveruleiki - Baráttan fyrir strandveiðum
    Í Rauðum raunveruleika í kvöld ræðum við við strandveiðisjómenn um baráttuna fyrir réttinum til að sækja sjóinn. Strandveiði var nýlega stöðvuð vegna þess að ekki var gefinn nægur kvóti inn í kerfið. Veiðin á að standa í 48 daga, frá 1. maí er til 31. ágúst, og tók það mikla baráttu að fá þetta fram, en undanfarin ár hefur veiðin verið stöðvuð löngu áður en tímabilið á að klárast. Vegna þessa hefur Strandveiðifélagið boðað til mótmæla næstkomandi laugardag. Við ætlum að spjalla við strandveiðisjómenn um baráttu þeirra fyrir að fá að fiska sjóinn og fræðast um eðli strandveiðanna, af hverju þær eru umhverfisvænni en veiðar á stærri skipum og hversvegna strandveiði getur verið svona félagslega farsæl fyrir okkur sem samfélag.
    Í þáttinn koma Kjartan Sveinsson formaður Strandveiðifélagsins, Guðlaugur Jónasson strandveiðimaður og Rut Sigurðardóttir strandveiðikona. Hún gerði heimildarmynd um strandveiði sem kemur út á næstunni og ber nafnið „SKULD”.
    20 min
  • Rauður raunveruleiki - Gideon Levy - Israel Palestine; The one state solution
    In tonight's episode of Red reality, we have a special guest from Israel. Gideon Levy is an Israeli journalist and author who has focused on the Israeli occupation of the Palestinian territories for decades.
    We speak to him about waking up to the reality of the horror of apartheid, why Israel can not be considered a democracy, and the need for a one state solution. Tune in at 18:00
    39 min
  • Baráttan fyrir réttlátari heim; Bandaríkin og Bretland
    Í Rauðum raunveruleika kvöldsins fjöllum við um forsetaframbjóðendur í Bandaríkjunum sem ráðandi öfl sameinast um að halda niðri. Við fjöllum um Robert Francis Kennedy Jr, Marianne Williamson og Dr. Cornel West og hvernig fjölmiðlaumfjöllun um þessa frambjóðendur fer fram. Við sýnum myndbönd úr fjölmiðlum og bita úr viðtölum við þessa frambjóðendur og ræðum um innihald og samhengi þess sem fer þar fram
    Þættinum er stýrt af Oliveri Axfjörð Sveinssyni, sem er nýr þáttarstjórnandi hjá Rauðum raunveruleika, ásamt Karli Héðni Kristjánssyni. Við fengum til okkar þá Sæþór Benjamín Randalsson og Trausta Breiðfjörð Magnússon en Sæþór ólst upp í Bandaríkjunum og getur sagt okkur frá sinni upplifun og þekkingu þaðan.
    Við fjöllum líka um hvernig Jeremy Corbyn var bolað frá völdum innan Enska Verkamannaflokksins en Al Jazeera komst yfir gögn í fyrra sem sýna fram á hnitmiðaða herferð innan flokksins sem olli því að honum var bolað út.
    Hvað þýðir þetta allt saman fyrir baráttuna um réttlátari heim?
    Samstöðin klukkan 14:00
    1 hr 29 min
  • Fjölmiðlaskot frá hrunsárunum og frameftir, hvað í?
    Rauður raunveruleiki snýr aftur með ungum sósíalistum, í þætti kvöldsins ætlum við að skoða skot úr fjölmiðlum frá hrunsárunum og eftir þau. Hverjir voru panamaprinsarnir? Hvað gerði Davíð Oddson? Hvar er nýja stjórnarskráin okkar? Hvað þýðir það að stjórnmálamenn taki ábyrgð og hvar eru allir kommúnistarnir sem Jón Gunnarsson vælir yfir? Þetta og margt fleira í Rauðum raunveruleika kvöldsins með Karli Héðni Kristjánssyni, Oliveri Axfjörð Sveinssyni, Kristbjörgu Evu Andersen Ramos og borgarafulltrúanum okkar Trausta Breiðfjörð Magnússyni
    1 hr 12 min
  • Rauður raunveruleiki - Ofbeldismenning og uppeldisfræði / Sindri Viborg
    Sindri Viborg er kennaranemi og formaður Tourette-samtakanna á Íslandi. Hann hefur einbeitt sér að því að rannsaka einelti og hvernig ofbeldi getur birst í skólakerfinu okkar. Hvað er það sem veldur einelti og ofbeldi?
    Við munum velta fyrir okkur hvernig væri mögulega hægt að rækta upp menningu sem getur betur tekist á við ofbeldi og uppsprettur þess;... á Samstöðinni
    54 min
  • Saga Nató frá 1990, partur 1 - Tjörvi Schiöth
    Í Rauðum raunveruleika kvöldsins höldum við áfram með Tjörva Schiöth að fjalla um sögu NATO. Í síðasta þætti var fjallað um Kalda stríðið (1945 – 1990), en í þessum þætti verður litið á tímabilið eftir lok Kalda stríðsins 1990 fram til dagsins í dag. Við reynum að einblína á þá hluta sögunnar sem hafa ekki fengið mikla athygli í meginstraumsfjölmiðlum eða almennum söguskýringum, en sú mynd sem hefur verið dregin upp fyrir okkur er mjög hvítþvegin og reynt hefur verið að sópa mörgum óþægilegum staðreyndum undir teppið.
    Í þessum þætti verður farið yfir breytt hlutverk NATO eftir lok Kalda stríðsins, ótal hernaðaríhlutanir Bandaríkjanna og NATO síðan 1990, sviðsett valdarán í öðrum ríkjum víða um heim, heimsvaldastefnu Bandaríkjanna, sprengjuherferðina gegn Serbíu 1999, “regime change” stríð gegn Írak 2003 og Líbýu 2011, notkun hættulegra vopna eins og klasasprengna og skerts úraníum, “stríðið gegn hryðjuverkum”, drónahernaðurinn um allan heim, pyndingar-prógrammið í “CIA black sites”, Guantanamo Bay og Abu Ghraib og fleira.
    Ali, Tariq. (2000). Masters of the Universe: NATO's Balkan Crusade.
    Ali, Tariq. (2018). “Natopolis.” The Extreme Centre: A Warning, bls. 137-150. Verso Books.
    Bacevich, Andrew J. (2002), American Empire: The Realities and Consequences of US Diplomacy. Harvard University Press.
    Benjamin, Medea. (2013). Drone Warfare: Killing by Remote Control. Verso Books.
    Benjamin, Medea og Davies, Nicolas J. S. (2022). “NATO: Myth vs. Reality.” War in Ukraine: Making sense of a senseless conflict, bls. 97-116. OR Books.
    Blum, William. (2000). Rogue State: A Guide to the World's Only Superpower. Common Courage Press.
    Blum, William.(2003). Killing Hope: US Military and CIA Interventions Since World War II. Zed Books.
    Chalmes Johnson (2000). Blowback: The Costs and Consequences of American Empire. Metropolitan Books.
    Chomsky, Noam. (2004). Hegemony or Survival: Americ’s Quest for Global Dominance. Metropolitan Books.
    Chomsky, Noam og Prashad, Vijay. (2022). The Withdrawal: Iraq, Libya, Afghanistan, and the Fragility of U.S. Power. The New Press.
    Congressional Research Service (CRS). (2022, 8. mars). “Instances of Use of United States Armed Forces Abroad, 1798-2022.” https://crsreports.congress.gov/produ...
    Hersh, Seymour. (2004). Chain of Command: The Road from 9/11 to Abu Ghraib. Harper Collins.
    McCoy, Alfred. (2006). A Question of Torture: CIA Interrogation, from the Cold War to the War on Terror. Henry Holt and Company.
    Norton, Ben. (2022, 13. september). “US launched 251 military interventions since 1991, and 469 since 1798.” Geopolitical Economy Report. https://geopoliticaleconomy.com/2022/...
    Parenti, Michael. (2002). To Kill a Nation: The Attack on Yugoslavia. Verso Books.
    Prashad, Vijay. (2022). Washington Bullets: A History of the CIA, Coups, and Assassinations. Monthly Review Press.
    Savage, Charlie. (2023, 8. mars). "Pentagon Blocks Sharing Evidence of Possible Russian War Crimes With Hague Court." The New York Times. https://www.nytimes.com/2023/03/08/us...
    1 hr 6 min
  • Rauður raunveruleiki - Náttúruvernd / Árni Finnsson
    Klukkan fimm á Samstöðinni;
    Arni Finnsson er formaður Náttúruverndarsamtakanna og hefur í langan tíma barist fyrir náttúrunni. Náttúruverndarsamtökin hafa beitt sér og beita sér enn fyrir hálendisþjóðgarði og margskyns annari náttúruvernd. Við ræddum við hann um umhverfismálin í víðum skilningi, um orkuskiptin, fiskeldi og fleira.
    Árni gaf nýlega út grein á Heimildinni sem segir frá nýjum rannsóknum sem benda til þess að kolefnisjöfnun stórfyrirtækjanna sé ekki raunveruleg. Nýleg rannsókn leiðir í ljós að 90% af þeim heimildum sem hefur verið vottað fyrir séu ekki raunverulega að kolefnisjafna. Þátturinn er liður í syrpu Rauðs raunveruleika um umhverfismál, fylgist með á Samstöðinni í kvöld!
    PS;
    Grein Árna um kolefnisjöfnun og aðsend grein um marxisma og umhverfismál;
    https://heimildin.is/grein/17418/graenthvottur-med-kolefnisjofnun/?fbclid=IwAR368gKt5S9JgvtDiAsHBWSVh6Puh4L72qVis_j4PUpKA6TsUPFEcNkPy6M
    https://www.theguardian.com/environment/2023/feb/28/a-greener-marx-kohei-saito-on-connecting-communism-with-the-climate-crisis?fbclid=IwAR3UP2zCz5AVjKFLTTFd07fMbQOacsEdTyISl6_ZTDfdkWLo6FAs9xsVA9Q
    52 min

About Rauður Raunveruleiki

From the publisher's feed

Ungir sósíalistar ræða það sem skiptir þau máli.