Rauður Raunveruleiki

Rauður Raunveruleiki

By Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva BjarnadóttirSociety & CultureNewsReligion & SpiritualityPolitics
Download on the App Store

Rauður Raunveruleiki episodes

  • Rauður raunveruleiki - Sósíalismi í uppvexti
    Aníta Da Silva og Karl Héðinn fjalla um uppgang sósíalista í borginni og víðar í þætti kvöldsins. Hvað er sósíalismi í grunninn og af hverju er hann nauðsynlegur?
    Við munum skoða það út frá víðum sjónarhóli en einnig í gegnum þær tillögur sem borgarstjórnarflokkur Sósíalista hefur lagt til og áherslur flokksins og hugmyndafræðarinnar í víðum skilningi. Hver er grunnstefnan og af hverju er sósíalismi leiðin áfram fyrir fólkið í landinu?
    Fylgist með á Samstöðinni í beinni útsendingu klukkan 17:30
    1 hr 1 min
  • Red reality - Free Palestine / Muhammed Alkurd
    In this episode we contextualize and reflect on the ongoing crisis in Israel - Palestine. Thousands of innocent people have died in brutal attacks from the Israeli "Defence" Force that routinely forcibly expels Palestinian people from their homes in the West Bank, killing many, and forcing them into the open air prison that is Gaza
    32 min
  • Rauður raunveruleiki - Ungir Umhverfissinnar
    Í kvöld fáum við til okkar Finn Ricart Andrason, forseta Ungra Umhverfissinna og Snorra Hallgrímsson stjórnarmeðlim. Við munum ræða um veðurfarsbreytingar, vistkerfin, útblástur Íslands á koltvísýringi og öðrum gróðurhúsalofttegundum og um það hver ábyrgð einstaklinga er, á móti ábyrgð stórra fyrirtækja og ríkisstjórna.
    1 hr 6 min
  • Rauður raunveruleiki - Félagslegt réttlæti á heimsvísu / Júlíus K Valdimarsson
    Í Rauðum raunveruleika í kvöld ræðum við heimsmálin með Júlíusi Valdimarssyni
    G77+ ráðstefnan átti sér stað síðastliðinn september þar sem fulltrúar 80% jarðarbúa kölluðu eftir nýrri heimskipan í efnahagsmálum.
    Við ætlum að ræða húmanisma og hreyfingu húmanisma, baráttuna fyrir réttlátari heimskipan, sögu baráttunnar og framtíðina.
    Þáttastjórnendur kvöldsins eru Anita Da Silva Bjarnadóttir, Karl Héðinn Kristjánsson og Oliver Axfjörð Sveinsson
    1 hr 6 min
  • Rauður raunveruleiki - Mannúðarkrísa / Morgane Priet-Mahéo
    Það er mannúðarkrísa á Íslandi. Stjórnvöld hafa einbeittan brotavilja gagnvart börnum og fullorðnum á flótta og vilja láta almenning halda að flóttafólkið sé sérstakt vandamál fyrir hagkerfið og velferðarkerfið. Þetta er kolrangt og svívirðilegt bull sem örvæntingarfullt auðvald reynir að sannfæra okkur um til að færa athyglina frá sjálfu sér. Á sama tíma eru öryrkjar látnir bíta í það súra, velferðarkerfin hnigna og eru einkavædd og þeim freku, sterku og siðlausu er gefið endalaust færi á að svína á almenningi.
    Til þess að ræða þessi mál með okkur höfum við fengið til okkar Morgane Priet-Mahéo frá samtökunum Réttindi barna á flótta. Hún hefur verið í fremstu víglínu að hjálpa því flóttafólki sem auðvaldið vill skrýmslavæða svo almenningur horfi á það frekar en sig sjálft.
    44 min
  • Rauður raunveruleiki - Efnahagspólitík og fátækt / Sanna Magdalena Mörtudóttir
    Í Rauðum raunveruleika í kvöld kemur borgarfulltrúi okkar og ungi sósíalistinn Sanna Magdalena Mörtudóttir. Við ræðum um borgarmálin, fátækt, velferð og efnahagspólitík meirihlutans í Reykjavík.
    Á morgun munu Sósíalistar í borginni leggja til að fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði verði leiðréttir frá síðustu lækkun sem varð í Covid-faraldrinum. Hækkunin yrði ekki nema um 0,05% en myndi skila borginni um 500 milljónum króna yfir næsta ár.
    Þátturinn er í umsjón Anítu Da Silva Bjarnadóttur, Karls Héðins Kristjánssonar og Olivers Axfjarðar Sveinssonar
    1 hr 6 min
  • Rauður raunveruleiki - ADHD, kapítalismi og samráð stórfyrirtækja
    Ungir sósíalistar og vinir ræða atburði og umræðu síðustu vikna, mögulega ofbeitingu ADHD-lyfja, afleiðingar útlendingafrumvarpsins, samráð stórfyrirtækjanna og spillingu kapítalismans.
    Þátturinn er í umsjón Karls Héðins Kristjánssonar og Anítu Da Silva Bjarnadóttur. Trausti Breiðfjörð Magnússon og Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir verða gestir kvöldsins
    53 min
  • Rauður raunveruleiki: Vestur - Afríka og heimsvaldastefnan
    Oliver Axfjörð og Karl Héðinn snúa aftur með Rauðan raunveruleika í kvöld og segja frá atburðum síðastliðinna ára í Vestur-Afríku. Nýlega var valdarán í Níger en það var bara nýjasta valdaránið í röð atburða sem er að breyta örlögum svæðisins og kannski allrar Afríku.
    Í vestrænum fjölmiðlum er okkur sagt að valdaránið sé hræðileg þróun en við fáum minna að heyra um hvernig heimsvaldastefnan hefur haldið þessum þjóðum í sárri fátækt enn þann dag í dag á meðan vestræn fyrirtæki stórgræða á auðlindum og neyð fólks í Vestur-Afríku.
    Við munum fjalla um útflutning þessara þjóða á gulli og öðrum auðlindum, gögn sem sýna fram á hversu svakalega þessar þjóðir eru arðrændar. Við munum skoða sögu Búrkínó Fasó og byltinguna þar sem átti sér stað árið 1983 en lauk með morðinu á leiðtoga byltingarinnar, Thomas Sankara, árið 1987. Forseti Búrkína Fasó segist í dag vilja ganga í spor hans og forsætisráðherrann nýi hefur sagt að landið muni stefna í nýja átt, í anda byltingar Sankara, áttina sem þjóðin vildi fara en heimsvaldastefnan neitaði þeim.
    39 min
  • Rauður raunveruleiki - Skattkerfið og pólitíska hagkerfi sjávarútvegsins
    Í Rauðum raunveruleika í kvöld fáum við til okkar Indriða Þorláksson í spjall um skattkerfið og pólitíska hagkerfi sjávarútvegsins.
    Indriði er hagfræðingur og hefur starfað í mörgu í fjármálaráðuneytinu og víðar ásamt því að vera ríkisskattstjóri á árunum 1999 til 2006.
    Við ætlum að læra af Indriða um þróun skattbyrðarinnar, hvernig hún hefur breyst undanfarna áratugi og hvað þurfi að gera til að bæta stöðuna. Við viljum líka velta fyrir okkur arðsemi sjávarútvegsins, hvernig henni skipt. Hversu mikið er að fara til þjóðarinnar og hversu mikið til eigendanna? Þetta og fleira áhugavert í Rauðum raunveruleika í kvöld
    59 min

About Rauður Raunveruleiki

From the publisher's feed

Ungir sósíalistar ræða það sem skiptir þau máli.