Rauður Raunveruleiki

Rauður Raunveruleiki

By Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva BjarnadóttirSociety & CultureNewsReligion & SpiritualityPolitics
Download on the App Store

Rauður Raunveruleiki episodes

  • Fjölskyldusameiningar og glæpir gegn mannkyninu
    Anita Da Silva Bjarnadóttir og Karl Héðinn Kristjánsson fjalla um fjölskyldusameiningar, neyð fólks í Palestínu og glæpsamlega framferði Ísraelsríkis.
    Við munum aðeins snerta á nýju kjarasamningunum og um nauðsyn baráttunnar fyrir betri heimi
    41 min
  • Nordic Baltic Sustainability Conference
    The Nordic Baltic Sustainability Conference was held in Iceland this year and we have the pleasure to speak to the attendees just following the close of the conference.
    We will speak about the environment, the statement of the conference and what the future might hold for Nordic and Baltic cooperation as it relates to climate change and the ecology
    50 min
  • Mótmælt fyrir Palestínu / umræða vikunnar
    Karl Héðinn og Oliver Axfjörð segja frá samstöðumótmælum fyrir Palestínu sem fóru fram í dag á öllum Norðurlöndunum. Við sýnum myndbönd þaðan og fjöllum um ástandið á Gaza og í heiminum.
    Einnig munum við velta fyrir okkur af hverju Sjálfstæðismenn telja sig þurfa sérsveitargæslu og hvers vegna ráðamenn Bandaríkjanna tala eins og við séum að fara rakleiðis í þriðju heimsstyrjöldina.
    48 min
  • Rússland og heimsvaldastefnan: Ungmennaráðstefna í Sochi
    Kristinn Hannesson kom til okkar í Rauðan raunveruleika áður en hann flaug út til þess að sækja alþjóðlega ungmennaráðstefnu í Rússlandi. „World youth festival”. Hátíðina munu um 20.000 ungmenni sækja, víðsvegar að úr heiminum.
    Í þættinum fjöllum við um ástæður þess að hann, ásamt annarri frá Íslandi, ákvað að fara og um sýn okkar á stríðið í Úkraínu, uppruna fasismans, um BRICS-þjóðirnar, undirokaða heiminn, heimsvaldastefnuna og þá brýnu þörf sem er fyrir alþjóðlegu samstarfi á jafningjagrundvelli, fyrir friðsamlegri framþróun, samvinnu og raunverulegum alþjóðalögum
    Finnið heimildarskrá þáttarins á Youtube
    1 hr
  • Þjóðarmorð í beinni, siðrof og firring
    Grimmd Ísraels gagnvart Palestínu hefur bara aukist eftir úrskurð Alþjóðadómstólsins. Neyð fólks á Gaza hefur aldrei verið meiri.
    Í þættinum í kvöld munum við ræða um nýjustu fréttir af árásunum, alþjóðasamfélagið og ræða stöðuna í samfélaginu.
    1 hr
  • Díalektísk efnishyggja / Þorvaldur Þorvaldsson
    Þorvaldur Þorvaldsson er ötull baráttumaður fyrir sósíalisma og situr í stjórn lífskoðunarfélagsins DíaMat
    Við munum ræða við Þorvald um díalektíska efnishyggju, sögu hennar og áherslur, sósíalisma og um aðalfund félagsins sem er núna næsta sunnudaginn kl. 15:00 í MÍR-salnum, Hverfisgötu 105
    53 min
  • Skuldaþrælkun og frétt vikunnar
    Í kvöld mun Karl Héðinn greina frá versnandi skuldastöðu heimilanna í Bandaríkjunum og á Íslandi. Hvernig skuldir heimilanna og ríkissjóða hafa stóraukist á undanförnum árum og fjalla um þá pólitísku hagstefnu sem liggur þar á bakvið.
    Einnig verður sagt frá frétt vikunnar, að okkar mati. Utanríkisráðherra hefur svipt Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) fjárhagsaðstoð núna þegar hún hefur aldrei verið mikilvægari.
    16 min
  • Árásir á Jemen, stigmagnandi stríð
    Bandaríkin og Bretland hafa varpað sprengjum á Jemen minnst sex sinnum á síðustu tíu dögum. Þetta gera þeir til þess að „vernda alþjóðlegar flutningaleiðir“ frá banni Jemens á umgangi ísraelskra skipa í gegnum Rauðahafið
    Í Rauðum raunveruleika kvöldsins ætlum við að fjalla um þessar árásir Bandaríkjamanna og Breta á Jemen, um tilkomu Húta eða Ansar Allah eins og þau kalla sig. Um grimmilegt stríð Sádí Arabíu og Bandaríkjanna gegn byltingu Jemens 2014 sem hefur drepið 377.000 manns, þar af 70% börn. Og um hvert þetta gæti allt verið að stefna.
    Bein útsending hefst klukkan 18:00 á Samstöðinni.
    41 min
  • Rauður raunveruleiki - Gengisfelling þjóðarinnar
    Í kvöld munum við ræða við Ólaf Jónsson og Kára Jónsson um gengisfellingu krónunnar. Er verið að halda gengi krónunnar niðri viljandi og þá hvers vegna? Gengi krónunnar hefur lækkað töluvert undanfarið og það leitt til þess að kaupmáttur heimilanna hefur rýrnað. Mörg stærstu fyrirtæki landsins, þar á meðal stórútgerðirnar, nota aðra gjaldmiðla en krónuna og geta grætt gríðarlega á því að gengi krónunnar sé lágt. Þorri Íslendinga tapar hins vegar kaupmætti með lækkandi gengi krónunnar.
    Könnum málið með Ólafi og Kára klukkan 18:00 á Samstöðinni.
    52 min
  • The legacy of colonialism - Giti Chandra
    Dr. Giti Chandra er fræðimaður hjá GEST-verkefninu við Háskóla Íslands og hélt nýverið erindi í Stjórnmálaskóla Sósíalistaflokksins um nýlendustefnuna.
    Anita Da Silva Bjarnadóttir, Guðröður Atli Jónsson, Karl Héðinn Kristjánsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir munu ræða við Giti um nýlendustefnuna og áhrif hennar á heiminn okkar í dag
    Fylgist með klukkan 18:00 á Samstöðinni!
    1 hr 2 min

About Rauður Raunveruleiki

From the publisher's feed

Ungir sósíalistar ræða það sem skiptir þau máli.