Rauður Raunveruleiki

Rauður Raunveruleiki

By Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva BjarnadóttirSociety & CultureNewsReligion & SpiritualityPolitics
Download on the App Store

Rauður Raunveruleiki episodes

  • Hagfræði, pólitík og spilling / Þorvaldur Gylfason
    Þorvaldur Gylfason er hagfræðingur, prófessor emeritus og samfélagsrýnir.
    Við ætlum að ræða við Þorvald um hagkerfið, stjórnsýsluna á Íslandi og um spillingu. Af hverju virðist ekki vera tekið á spillingarmálum á Íslandi? Er hagkerfið að virka fyrir almenning í landinu? Hver eru áhrif ólígarka á íslenskt samfélag og samfélög almennt og hvað er til ráða, hvernig varðveitum við lýðræðið gagnvart ágengni ólíkarkismans?
    Þetta og fleira spennandi í kvöld í beinni útsendingu á Samstöðinni kl. 18.
    1 hr 32 min
  • MFÍK & SHA: Baráttan fyrir réttlæti og friði
    Guttormur Þorsteinsson er formaður Samtaka Hernaðarandstæðinga og Lea María Lemarquis er meðlimur MFÍK, Menningar og Friðarsamtaka Kvenna.
    Við komum beint af samstöðufundi fyrir Palestínu, laugardaginn 20. apríl, þar sem Lea og Guttormur voru með ræðu.
    Við ræddum um utanríkisstefnu Íslands, alþjóðalög, heimsvaldastefnu, mannréttindi og nauðsyn þess að beita sér fyrir friði.
    Á Samstöðinni kl. 20 í kvöld
    35 min
  • Eimreiðarelítan: Auðvaldsklíkur og Spilling / Þorvaldur Logason
    Nýverið kom út bók eftir félagsfræðinginn og heimspekinginn Þorvald Logason sem ber nafnið Eimreiðarelítan - Spillingarsaga.
    Í þeirri bók er rakin saga þess hvernig fámennum hóp á Íslandi tókst að grípa óheyrileg völd og beita þeim til þess að hagnast sér og sínum, á kostnað almennings.
    Í þættinum í kvöld spjöllum við við Þorvald um sögu Eimreiðarinnar, spillingu, auðvaldsklíkur, um nýfrjálshyggju í heiminum og hvernig Eimreiðin naut hugmyndafræðilegs stuðnings af henni.
    Við munum einnig ræða um hvað sé til ráðs til að taka á slíkri spillingu, hvernig hægt er að fyrirbyggja hana og auðræði almennt.
    Kynnist spillingarsögu undanfarinna áratuga á Íslandi, fáum samhengið um hvernig við komumst hingað þar sem við erum stödd, í beinni útsendingu á Samstöðinni kl. 18:00
    52 min
  • Leigjendasamtökin, húsnæðiskerfi braskara og baráttan fyrir réttlæti / Guðmundur Hrafn Arngrímsson
    Guðmundur Hrafn Arngrímsson er formaður Leigjendasamtakanna.
    Anita Da Silva Bjarnadóttir og Karl Héðinn Kristjánsson ætla að ræða við Guðmund um húsnæðiskerfið á Íslandi í dag, um þörfina á öflugum leigjendasamtökum, um brotin loforð stjórnmálastéttarinnar og ríkjandi hagsmuni braskara á markaðnum og stjórnkerfinu í dag.
    Hvernig berjumst við gegn einokun og ofríki fjármálaaflanna í húsnæðiskerfinu?
    Þetta og fleira í beinni útsendingu á Samstöðinni kl. 18 í kvöld!
    Skráið ykkur í Leigjendasamtökin á vefsíðu samtakanna leigjendasamtokin.is
    1 hr 41 min
  • Rauður raunveruleiki - Pressenza: Nonviolent journalism, humanism and truth
    Gestir Rauðs raunveruleika eru Pía Figueroa og Antonio Cravollo. Pía er einn stofnenda alþjóðlega fréttamiðilisins Pressenza og húmanisti.
    Antonio Cravalo er skipuleggjandi húmanistahreyfingarinnar og er, meðal annars, virkur í heimsþingum húmanista í Asíu og Suður - Ameríku.
    Við töluðum við Píu og Antonio um Pressenza, tilgang þess, húmanistahreyfinguna og um þörfina fyrir frið, sannleik, tengingu og grasrótarvirkni á síkvikum tímum.
    29 min
  • Red reality - World Humanist Forum and the march for peace and non-violence
    The World Humanist Forum just took place in Reykjavík ahead of the world march for peace and non - violence. A recording of the meeting, which took place in the national library of Iceland, will be published on Solidarity Station in the coming week.
    We spoke to some of the main organizers of the forum and the march, Antonio Carvallo and Rafael de la Rubia. Antonio is a Chilean and one of the organizers of WHF-Asia. He has a background in law and has been engaged in humanist work since 1969. Rafael is a Spanish Humanist, founder of the organization World without Wars and Violence and spokesperson of the world march for peace and nonviolence. Visit theworldmarch.org for more information on the growing peace movement. Both Antonio and Rafael work in collaboration with the international press agency, Pressenza.
    42 min
  • Amazon Labor Union and international solidarity / Chris Smalls
    Chris Smalls is the president of the recently formed Amazon labor union. He participated in the yearly Socialist Congress of the Icelandic Socialist party alongside the president of the largest Icelandic union, Efling ,Sólveig Anna Jónsdóttir. The congress discussed the struggle of the working class in modern times.
    We had a talk with Chris about his experience fighting for Amazon workers, the struggle of the working class in the United States and how that reflects the international fight for freedom and justice.
    Anita Da Silva Bjarnadóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Karl Héðinn Kristjánsson and Oliver Axfjörð Sveinsson, from the Icelandic Socialist Party, will be speaking to Chris today. Tune in at 18:00
    Solidarity forever!
    44 min
  • 14 ár í Guantanamo án saka / Mohamedou Ould Slahi & Dr. Deepa Driver
    Mohamedou Ould Slahi var fangelsaður og pyntaður hryllilega í fangabúðum Bandaríkjanna við Guantanamo-flóa frá 2002 til 2016 án allra saka.
    Í fjórtán ár var hann sviptur frelsi sínu, smánaður og beittur grimmilegu ofbeldi af margvíslegum toga.
    Mohamedou var í heimsókn á Íslandi um helgina og sagði frá upplifun sinni og reynslu á fundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Fundurinn var liður í fundarseríu Ögmundar Jónassonar, „Til róttækrar skoðunar“. Fundinn má finna og horfa á á rásum Samstöðvarinnar undir titlinum „Reynslan frá Guantanamo“.
    Dr. Deepa Govindarajan Driver sat einnig fundinn. Hún kennir um regluvæðingu fjármagns, um ábyrgð og ábyrgðarleysi stjórnvalda og fyrirtækja og hefur verið í miðjunni á baráttunni fyrir mannréttindum blaðamannsins Julian Assange og frelsi frjálsa heimsins.
    Við ræddum við Mohamedou og Deepu um upplifun Mohamedou, Guantanamo, stríðið gegn hryðjuverkum og um mikilvægi frelsis og samkenndar á háskalegum tímum.
    51 min

About Rauður Raunveruleiki

From the publisher's feed

Ungir sósíalistar ræða það sem skiptir þau máli.