Rauður Raunveruleiki

Rauður Raunveruleiki

By Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva BjarnadóttirSociety & CultureNewsReligion & SpiritualityPolitics
Download on the App Store

Rauður Raunveruleiki episodes

  • Rauður raunveruleiki - Stéttabarátta, nýfasismi og Twitter

    Í Rauðum raunveruleika kvöldsins fjöllum við um aðgerðir Eflingar gegn gervistéttarfélaginu Virðingu, um fasista og nýnasista á Twitter, um Elon Musk, stéttabaráttu, falsfréttir, áróður og um eðli fasismans.

    Trausti Breiðfjörð Magnússon og Ægir Máni Bjarnason tala við Karl Héðinn Kristjánsson í Rauðum raunveruleika kl. 20:00. 

    1 hr 30 min
  • „Woke“ Al-Kaída, áróður, heimsvaldastefna, þjóðarmorð.
    Karl Héðinn og Anita Da Silva ræða við Tjörva Schiöth um atburðina í Sýrlandi, hvítþvott Vesturlanda á þjóðarmorði, hryðjuverkum og heimsvaldastefnu.
    Hvað er að gerast í Sýrlandi og hvað gætu þessir atburðir þýtt fyrir framtíð Palestínu og Íran? Mun Ísrael taka stóran hluta Sýrlands og komast upp með það?
    Af hverju er CNN og aðrir stórir bandarískir fjölmiðlar að hvítþvo fyrrverandi foringja ISIS og Al-Kaída?
    52 min
  • Kosningar gerðar upp, framhald baráttunnar.
    Rætt um niðurstöður kosninganna, stöðu Sósíalistaflokksins og framtíð baráttunnar fyrir réttlæti og mannúð á Íslandi og í heiminum.
    Anita Da Silva Bjarnadóttir, Karl Héðinn Kristjánsson,
    Eyjólfur B. Eyvindarson, betur þekktur sem Sesar A og
    Trausti Breiðfjörð Magnússon munu taka stöðuna.
    45 min
  • Rauður raunveruleiki - Ragnar Sverrirsson / Heimsganga fyrir friði og tilveru án ofbeldis
    Ragnar Sverrirson hefur lengi verið viðloðin alþjóðlegu Húmanistahreyfingunni og er nýkominn frá Keníu.
    Á miðvikudaginn verður viðburður í Klambratúni þar sem verður gert mannlegt friðarmerki. Sanna Magdalena verður fundastjóri og ræðufólk frá fjölmörgum samtökum taka til máls. Magga Stína mun synga.
    Mæting klukkan 20! Hvetjum alla til að mæta og standa fyrir friði.
    En eins og sagt var er Ragnar nýkomin frá Keníu þar sem hann var að starfa með félögum í Húmanistahreyfingunni.
    Heimsgangan fyrir friði og tilveru án ofbeldis mun eiga sér stað um allan heim en hún byrjar fyrst núna á miðvikudaginn!
    Við ræðum við Ragnar um Húmanistahreyfinguna og Heimsgönguna.
    Við sýnum tónlist frá húmanistanum og tónlistarkonunni Black Queen í lokin. Hún er 18 barna móðir.
    1 hr 4 min
  • Alfred de Zayas / Alþjóðalög, mannréttindi og áróður
    Alfred de Zayas er prófessor í alþjóðalögum við Háskólann í Genf og hefur áratugareynslu af starfi innan Sameinuðu Þjóðanna. Hann hefur starfað sem óháður sérfræðingur mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna í alþjóðamálum og skrifað fjölmargar bækur um alþjóðakerfið.
    Alfred hefur margt til málanna að leggja og er harður gagnrýnandi á tvískinnung Vesturlanda þegar kemur að mannréttindum og alþjóðalögum.
    Alfred hefur skrifað bækur á borð við "The Human Rights Industry" (2023), "Building a Just Order" (2021) og "Countering Mainstream Narratives: Fake News, Fake Law, Fake Freedom" (2022).
    Við ræddum við Alfred í kjölfar fundar í Safnarhúsinu við Hverfisgötu. Fundurinn var liður í fundarröð Ögmundar Jónassonar: Til róttækrar skoðunar.
    1 hr 23 min
  • ASÍ, mótmæli á morgun, stéttabarátta og pólitík.
    Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasamband Íslands (KÍ) hafa boðað til mótmæla á morgun (10. september) á Austurvelli kl. 16:00.
    Í tilkynningu á vef ASÍ segir: „Vinnandi stéttir munu þar mótmæla skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart hárri verðbólgu og vöxtum.
    Nú er nóg komið!“
    Samstöðutjald Vorstjörnunnar mun rísa upp á vellinum og hvetjum við alla til þess að mæta á Austurvöll á morgun til að lýsa óánægju sinni með stjórnvöld sem virðast hugsa um lítið annað en hagsmuni borgarastéttarinnar, hinna ofurríku.
    Til þess að ræða um mótmælin og stjórnmálin fáum við til okkar þau Maríu Lilju Ingveldar- Þrastadóttur Kemp og Sæþór Benjamín Randalsson.
    Við munum ræða um mikilvægi og mögulegt hlutverk mótmæla, um stéttabaráttu og pólitíkina henni tengdri.
    1 hr 9 min
  • Rauður raunveruleiki - Lögregluofbeldi mótmælt / Pétur Eggerz Pétursson
    Pétur Eggerz Pétursson hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum í tengslum við baráttuna fyrir frjálsri Palestínu, um ofbeldi lögreglunnar gagnvart mótmælendum í Skuggasundi og víðar.
    Anita Da Silva og Karl Héðinn tala við Pétur um mótmælin, stjórnmálin og nauðsyn þess að sporna við lögregluofbeldi og spillingu í Rauðum raunveruleika í kvöld klukkan 19:00
    1 hr 18 min
  • Þórarinn Eyfjörð - Menntun, samfélag, lýðræði og stéttabarátta
    Þórarinn Eyfjörð er formaður Sameykis, stéttarfélags opinberra starfsmanna í almannaþjónustu.
    Við ræðum við Þórarinn um orlofsgreiðslur, um muninn á Jóni og Séra Jóni, um menntun, félagsstarf, lýðræði, velferð og þá vegferð sem Ísland er á. Hvað kynni að vera fram undan í stéttabaráttu almennings og af hverju er Ísland ekki enn þá komið með nýja stjórnarskrá?
    Þetta og fleira í Rauðum raunveruleika í kvöld.
    51 min

About Rauður Raunveruleiki

From the publisher's feed

Ungir sósíalistar ræða það sem skiptir þau máli.