Rauður Raunveruleiki

Rauður Raunveruleiki

By Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva BjarnadóttirSociety & CultureNewsReligion & SpiritualityPolitics
Download on the App Store

Rauður Raunveruleiki episodes

  • Venesúela - Ráðist að fullveldi og sjálfstæði þjóðar
    Í dag ætlum við að ræða um Venesúela. Bólivarísku byltinguna frá 1999, þjóðnýtingu Venesúlega á olíuauðlindum sínum, sem eru þær stærstu í heimi.
    Við ræðum við Gunnvöru Rósu Eyvindardóttir, en hún vann meistararitgerð um áhrif bólivarísku byltingarinnar fyrir almenning í Venesúela. Tjörvi Schiöth, doktorsnemi í sagnfræði verður einnig með og Eyjólfur B. Eyvindarson, Sesar A.
    Sjáið heimildarskrá á YouTube-útgáfu þáttarins
    46 min
  • Sósíalistar allra landa: Eleobore Mbra Kofi
    Kristinn Hannesson sótti nýlega mjög fjölmenna ungmennaráðstefnu í Rússlandi þar sem ungt fólk úr hinum svokallaða þriðja eða öðrum heimi var og þar á meðal mikið af sósíalistum.
    Kristinn myndaði tengingar við sósíalista víðsvegar að úr Afríku, Asíu og Mið- og Suður Ameríku og við höfum ákveðið að taka viðtöl við þetta unga fólk og heyra um baráttu þess, viðhorf og stöðu í heiminum.
    Fyrsti gesturinn okkar er hún Eleobore Mbra Kofi en hún sótti ráðstefnuna í Sochi. Hún er sósíalisti sem býr í Englandi en fæddist og ólst upp á Fílabeinsströndinni. Eleobore er í Kommúnistaflokki Bretlands og við spjölluðum við hana um misskiptingu í heiminum, heimsvaldastefnuna, hnattræna suðrið og norðrið og um nauðsyn sósíalismans til þess að takast á við stærstu vandamál samtímans.
    1 hr 7 min
  • Heimsvaldastefnan, Trump og Suður Ameríka / Eyjólfur B. Eyvindarson
    Eyjólfur B. Eyvindarson, einnig þekktur sem Sesar A er gestur okkar í kvöld. Við ræddum um heimsmálin, skotárásina á Trump, heimsvaldastefnuna, Suður Ameríku og nýlega valdaránstilraun í Bólivíu. Einnig ræðum við um aðdraganda Úkraínustríðsins og um 75 ára afmæli NATÓ hernaðarbandalagsins.
    Pakkaður þáttur um heimsmálin á Samstöðinni klukkan 11!
    53 min
  • Barnasáttmálinn, siðrof og barátta
    Í þættinum í kvöld koma til okkar þau Askur Hrafn Hannesson og Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir.
    Kristbjörg er meðlimur baráttusamtakana No Borders og hefur verið í fremstu víglínu við að reyna að stöðva brottvísun Yazan, Palestínska barnsins með hættulegan hrörnunarsjúkdóm.
    Askur er sömuleiðis virkur í baráttunni fyrir mannúð og réttlæti í málefnum fólks á flótta, Palestínu og mannréttindum. Í sumar er hann í iðnaðar- og bændastörfum.
    Anita Da Silva og Karl Héðinn ræða við þau Ask og Kristbjörgu um það siðrof sem mætir okkur og um baráttunni gegn því.
    1 hr 2 min
  • Radio Radicale / Róttæk fjölmiðlun á Ítalíu
    Radio Radicale er róttækur ítalskur fjölmiðill sem hefur starfað óslitið frá 1976. Við vorum svo lánsöm að ná tali af Stefano Chiarelli en hann hefur unnið hjá Radio Radicale í marga áratugi! Stefano mun tala ítölsku í viðtalinu en unnusta hans, Estrid Þorvaldsdóttir, mun þýða fyrir okkur.
    Við fjöllum um fjölmiðilinn, uppgang Meloni og hægrisins í Frakklandi, um samfélagsmál á Ítalíu og nauðsyn þess að alþýða fólks hafi aðgang að réttum og áreiðanlegum upplýsingum í átakasömum, og stéttskiptum, heimi.
    59 min
  • Hagkerfið, vaxtamunur og okur, gjaldeyrismál
    Jóhannes Hraunfjörð Karlsson er hagfræðingur og sagnfræðingur. Við tókum ítarlegt spjall, ásamt Ólafi Jónssyni og Kára Jónssyni, um ástandið í hagkerfinu í dag, um vaxtamun og okur og um gjaldeyrismál. Hvert er stefna yfirvalda búin að taka okkur og hvað þarf að gera til að koma okkur úr þessum agalega farvegi sem við virðumst lent í?
    Þetta og fleira í Rauðum raunveruleika kvöldsins kl. 17:00
    1 hr 15 min
  • Red Reality - Gaza 2024: A Catastrophic Man Made Disaster - Dr. Mads Gilbert
    Rauður raunveruleiki - 28. maí
    Red Reality - Gaza 2024: A man made disaster - Dr. Mads Gilbert
    Dr. Mads Gilbert er norskur læknir sem hefur látið sig málefni Palestínu varða í langan tíma.
    Við ræddum við Mads um hryllinginn á Gasa, um styrk mannkynsins og nauðsyn þess að við berjumst fyrir því sem er rétt, fallegt og gott. Það er enginn frjáls heimur án frjálsrar Palestínu.
    Við viljum þakka Félaginu Ísland-Palestína fyrir að bjóða honum hingað. Fyrirlestur Mads í Háskólabíói í gær var átakanlegur en veitti líka innblástur. Við vonum að viðtalið nái að fanga inntak erindis Mads en hann talar af mikilli reynslu og þekkingu af svæðinu, baráttunni og starfinu.
    Það hefur aldrei verið mikilvægara að standa upp fyrir mannréttindum, mennskunni og fyrir áreiðanleika alþjóðalaga. Mads er fyrirmynd fyrir okkur öll.
    Það er skylda okkar að tala gegn aðskilnaðarstefnunni, gegn fjöldamorðunum, glæpunum gegn mannkyni sem við sjáum á hverjum degi á Gasa og síðast en ekki síst gegn meðvirkni og samsekt vestrænna leiðtoga og stofnanna.
    Með því að virkjast í fjölda getum við neydd ríkisstjórnir okkar til þess að bregðast við, að styðja ákæru Suður Afríku gegn Ísrael og kalla eftir tafarlausu og endanlegu vopnahléi. Við þurfum efnahagsþvinganir á Ísrael og við þurfum að beita okkur fyrir því að fyrirtæki okkar, stofnanir og skólar færi fjárfestingar sínar úr Ísrael.
    Það þarf að auka pressuna á Íslenska valdhafa áfram, við getum náð í gegn. Við erum mjög nálægt því. Höldum áfram ✊❤️🖤🤍💚
    "Við vitum það of vel að okkar frelsi er ófullkomið þegar Palestína er ekki frjáls." - Nelson Mandela
    -------------------------------------------------------------
    English:
    We just did an awesome interview with the great Dr. Mads Gilbert
    We want to thank Félagið Ísland-Palestína for inviting him to Iceland to tell us about his work in solidarity medicine and about the man made catastrophe going on in Gaza right now.
    It has never been more important to stand up for human rights, decency and international rule of law and Mads is a shining example to us all.
    It is our duty to speak out against the apartheid regime, the horrible atrocities being committed by the occupation forces and the horrendous complicity of western governments and institutions. Through mass mobilisation we can force our governments to intervene, to support South Africa's case against Israel in the International Court of Justice and to call for immediate sanction and divestment from Israeli companies supporting apartheid and occupation.
    The pressure needs to be increased further and we can do it. In Iceland we are very close to breaking through. Keep fighting ✊❤️🖤🤍💚
    "We know too well that our freedom is incomplete without the freedom of the Palestinians." - Nelson Mandela
    The show will air on Samstöðin tonight and we remind everyone that Dr. Mads will also hold a lecture in Akureyri tomorrow evening in Hof at 19:30.
    1 hr 18 min
  • Umhyggja, siðferði, samfélag og Marx - Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson
    Í Rauðum raunveruleika í kvöld tölum við við nýdoktor í heimspeki, hann Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson. Doktorsverkefnið hans snérist um frásagnir fórnarlamba af ofbeldi. Um tengsl frásagna og samkenndar og hvaða takmörkunum við erum háð þegar við reynum að koma orðum að reynslu okkar þvert á lífheima.
    Við ræddum við Gústav um hryllinginn á Gaza, um siðrof, samkennd, firringu og Marxisma. Um misskiptinguna í heiminum, kapítalisma, arðrán og um hugmyndafræði. Rætt um stóru málin og spurningarnar á Samstöðinni klukkan 19:00.
    1 hr 7 min
  • Kvennaverkföll, feminismi og stéttarbarátta
    Í dag ætlum við að ræða um kvennaverkföll, feminisma og stéttarbaráttu með Sonju Þorbergsdóttir, formanni BSRB, Söru Stef Hildardóttur, verkefnastjóra hjá Landsbókasafni Íslands, Sönnu Magdalenu Mörtudóttir, borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins og Valgerði Þ. Pálmadóttir, nýdoktor í hugmyndasögu. Við byrjum á því að horfa á stutt brot frá kvennaverkfallinu 1975 og ræðum um árangur baráttunnar, um stöðuna í dag, um hugmyndasögu femínisma og um leiðina fram á við í baráttunni fyrir jöfnuði, réttlæti og mannsæmandi lífi fyrir öll!
    1 hr 2 min

About Rauður Raunveruleiki

From the publisher's feed

Ungir sósíalistar ræða það sem skiptir þau máli.