Rauður Raunveruleiki

Rauður Raunveruleiki

By Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva BjarnadóttirSociety & CultureNewsReligion & SpiritualityPolitics
Download on the App Store

Rauður Raunveruleiki episodes

  • Yanis Varoufakis - The Red Reality of Global Capitalism
    Tonight we have a very special guest. Yanis Varoufakis is an ex Greek minister of finance, an economist and politician. In February 2016 he launched the Democracy in Europe Movement 2025 (DiEM25) and he also took a great part in founding the Progressive International alongside many progressive politicians, economists and activists. The Progressive International has been described as a „common blueprint for an International New Deal, a progressive New Bretton Woods“.
    We will talk to Yanis about the state and direction of our world, how we can influence things for the better and what we should be striving for. Tune in at 17:00 GMT on Samstöðin
    50 min
  • Júlíus K Valdimarsson - Húmanismi, Samvinna og Velmegun
    Í þætti kvöldsins fáum við til okkar Júlíus K Valdimarsson húmanista og friðarsinna. Júlíus hefur trú á byltingu mannsins og á auknu samstarfi á milli fólks og þjóðarhópa. Völd ættu að vera færð niður í grunn þjóðfélagsins!
    Við ræðum við Júlíus um húmanisma, sögu stefnunnar, þáttöku hans í henni og framtíð mannkynsins!
    57 min
  • Ögmundur Jónasson - Stefnan
    "Í ársbyrjun 1995 var haldinn kraftmikill fundur á Hótel Borg í Reykjavík. Fundarefnið var að leita svara við því hvernig glæða mætti róttæka vinstri pólitík í landinu."
    Svo hljóðar lýsing fyrsta opna funds vinstra fólks í Hótel Borg á laugardaginn síðasta. Tilefnið var hið sama.
    Nú ætlum við að tala við Ögmund um þessa fundi, söguna og hvert skal stefna.
    Við hvetjum alla til þess að taka þátt í þessu samtali, mæta og blása lífi í róttæka vinstri pólitík á ný! Það veitir ekki af.
    44 min
  • Atli Þór Fanndal - Frjáls Fjölmiðlun
    Í Rauðum Raunveruleika í kvöld fáum við til okkar Atla Þór Fanndal, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International. Atli hefur áður starfað sem blaðamaður hjá Kvennablaðinu, DV, Reykjavík vikublaðin auk BBC, The Telegraph, CBC og Der Freitag svo dæmi séu tekin.
    Atli ætlar að tala við okkur um spillingu, störf hans hjá Transparancy International og um stöðu frjálsar fjölmiðlunar á Íslandi. Fylgist með á Samstöðinni.
    Þátturinn er í umsjón Karl Héðins Kristjánssonar og Trausta Breiðfjörð Magnússonar.
    48 min
  • Fjölmiðlar, útskúfun og auðvald
    "Slaufunarmenning/Cancel culture” hefur mikið verið í umræðunni síðustu misserin. Er ekki alvarlegasta slaufunarmenningin að eiga sér stað undir auðvaldinu og afskiptum þess á frelsi fólks til að gagnrýna það? Mörg dæmi um fólk sem hafa misst lífsviðurværi sín á því að tjá sjálfsagðar skoðanir sínar. Þetta og fleiri mál verða rædd í Rauða Raunveruleika kvöldsins.
    51 min
  • Ungir Sósíalistar
    Í Rauðum Raunveruleika kvöldsins fáum við nokkra unga sósíalista til okkar að ræða um félagsstarf, sósíalisma, pólitíska þátttöku og fleira. Í kvöld koma til okkar Atli Gíslason formaður Ungra Sósíalista (Roði), Agni Freyr varaformaður Roða, Kristbjörg Eva Andersen Ramos formaður samfélagsmiðlanefndar Roða og Kjartan Svein Guðmundsson, ungt hugsjónafólk allt! Skemmtilegur þáttur framundan, fylgjist með.
    Þátturinn er í umsjón Karl Héðins Kristjánssonar
    54 min
  • Neysluhyggja, samfélag og andleg sjálfshjálp
    Í Rauðum Raunveruleika í kvöld verður talað um skaðsemi neyslusamfélagsins og "öld sjálfsins" í því samhengi. Ræðum mikilvægi meðvitaðar neyslu og meðvitundar almennt, skoðum öflugar núvitundar og öndunaraðferðir sem sporna gegn ýmsum andlegum og líkamlegum lífsstíls sjúkdómum nútímans.
    46 min
  • Davíð Þór - Var Jesús sósíalisti?
    Davíð Þór Jónsson sóknarprestur í Laugarneskirkju sest með þeim Trausta Breiðfjörð og Karli Héðni og ræðir gamalt álitamál: Var Jesús Kristur sósíalisti?
    Sósíalismi varð náttúrlega ekki til fyrr en löngu eftir að Jesús var krossfestur, en má samt finna líkindi með boðskap hans og erindi sósíalista síðustu tæpar tvær aldir? Á sósíalisminn kannski rætur í fagnaðarerindi Jesús? Með hverjum myndi Jesús standa í dag; valdinu eða hinum kúguðu? Er hægt að boða kristni en samt styðja kapítalismann? Hvers vegna blessa prestar stjórnvöld alla sunnudaga? Davíð mun svara þessum og mörgum öðrum knýjandi spurningum á mánudagskvöldið, af alkunnri mælsku og sannfæringarkrafti.
    Samstöðin á Facebook: https://www.facebook.com/samstodin
    Samstöðin á YouTube: https://www.youtube.com/c/Samstöðin
    Samstöðin á vefnum: https://samstodin.is
    Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. https://samstodin.is/skraning/
    1 hr 4 min

About Rauður Raunveruleiki

From the publisher's feed

Ungir sósíalistar ræða það sem skiptir þau máli.