Reykjavíkurfréttir

Reykjavíkurfréttir

By Sanna Magdalena Mörtudóttir, Laufey Líndal ÓlafsdóttirNewsPoliticsDaily News
Download on the App Store

Reykjavíkurfréttir episodes

  • Staðan í borginni
    Fimmtudagur 19 janúar
    Sanna og Trausti, borgarfulltrúar Sósíalista ræða stöðu mála í borginni. Hvað hefur verið á dagskrá upp á síðkastið og hver er afstaða Sósíalista til þeirra mála? Hvað hafa þau lagt fram og hvernig hefur umræðan verið?
    28 min
  • Unglingasmiðjur borgarinnar
    Fimmtudagurinn 22. Desember 22
    Unglingasmiðjur borgarinnar
    Á dögunum kynnti borgin áform um að loka ætti unglingasmiðjum sem eru ætluð félagslega einangruðum ungmennum. Sigurlaug H. Traustadóttir, félagsráðgjafi sem hefur starfað í unglingasmiðjum Reykjavíkurborgar segir okkur frá starfseminni sem þar fer fram. Sigurlaug skrifaði einnig mastersritgerð um upplifun notenda af smiðjunum í Reykjavík. Við ræðum hugmyndafræði unglingasmiðjanna, hversu vel hún hefur virkað og mikilvægi slíkrar starfsemi.
    36 min
  • Reykvískur Sósíalismi á 20. öld
    Sanna Reykjavík 16. des 22
    Reykvískur Sósíalismi á 20. öld
    Í þætti dagsins fáum við Sigurð Pétursson sagnfræðing í heimsókn. Hann hefur mikla þekkingu á verkalýðsmálum og ætlar að segja okkur frá sögu Sósíalista í Reykjavík á síðustu öld. Árið 1946 voru 4 borgarfulltrúar af 15 í Reykjavík Sósíalistar. Einnig voru þeir með fulltrúa í sveitarfélögum um landið allt, þar með talið hreinan meirihluta á Neskaupstað. Hvað á þessum tíma olli því að hljómgrunnur Sósíalista var svona sterkur? Spilaði verkalýðshreyfingin inn í? Eru einhver líkindi með þeim tímum sem Sósíalistar voru á hápunkti sínum og þeim tímum sem við lifum við í dag? Við leitum einnig svara við því hverju Sósíalistar voru að berjast fyrir í Reykjavík á þessum tíma og hverju var áorkað. Hvað getum við lært af þeim og erum við með svör þaðan um hvernig sé best að heyja baráttu alþýðunnar í borginni?
    29 min
  • Staða leigjenda
    Fimmtudagurinn 15. desember 2022
    Staða leigjenda
    Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtakanna segir okkur frá því nýjasta í stöðu leigjenda hér á landi. Við munum ræða aðkomu stjórnvalda að uppbyggingu húsnæðis sem og réttindi leigjenda. Hvernig geta sveitarfélög byggt upp góða borg sem hefur hag leigjenda að leiðarljósi og að hve miklu leyti eru raddir leigjenda hafðar með í ráðum varðandi húsnæðisuppbyggingu? Þetta og margt fleira verður í þættinum.
    54 min
  • Umhverfissálfræðileg sjónarmið í borgarhönnun.
    18.Nóvember 2022
    Umhverfið hefur mikil áhrif á okkur mannfólkið og í þættinum skoðum við sálræn áhrif umhverfis, skipulagningar og hönnunar. Við skoðum hvaða sjónarmið eru ráðandi í uppbyggingu og hönnun borgarrýma og almenningssvæða. Þar að auki skoðum við hvort að fjármagn eða íbúar hafi meira vægi í mótun nærumhverfis. Þá spyrjum við einnig hvort að skipulag geti verið útilokandi fyrir ákveðna hópa samfélagsins og hvernig sé hægt að tryggja að svo verði ekki. Móheiður Helga Huldudóttir Obel, arkitekt og Páll Jakob Líndal, umhverfissálfræðingur koma til okkar að ræða þessi mál.
    37 min
  • Hjólhýsabyggð: Óviissa um framtíð
    Í þessum þætti verður rætt við Bergþóru Pálsdóttur. Hún á heima í laugardalnum, nánar tiltekið á hjólhýsa- og húsbílasvæðinu þar. Á síðustu árum hefur hún ásamt öðrum íbúum barist fyrir því að búsetan verði skilgreind til langtíma. Óvissan er mikil því borgin hefur ekki ennþá boðið þeim langtímadvöl. Við ætlum að ræða við Bergþóru um stöðuna og hvað hún vilji að borgin í málunum.
    33 min
  • Strætó: Farþegi og vagnstjóri
    Í fyrsta þætti nýs kjörtímabils ætla borgarfulltrúar Sósíalista að ræða málefni Strætó. Til okkar koma tveir góðir gestir. Annar þeirra er vagnstjóri hjá Strætó, Pétur Karlsson og hinn er farþegi sem nýtir sér reglulega þjónustuna, Sturla Freyr Magnússon.
    Við viljum heyra hvað þeir hafa að segja um Strætó. Hvernig leggjast nýjustu fréttir í þá um aukna einkavæðingu? Er leiðarkerfið að þjóna farþegum eins vel og ætti að ganga? Er nógu mikið hlustað á það sem farþegar og vagnstjórar hafa að segja um þjónustu Strætó? Svör við þessum og fleiri spurningum í þætti kvöldsins.
    45 min
  • Leigjendur krefjast aðgerða

    Sanna ræðir við Guðmund Hrafn Arngrímsson, formann leigjendasamtakanna, um fund borgarstjóra um stefnu og aðgerðir Reykjavíkurborgar í uppbyggingu húsnæðis. 

    • Samstöðin á Facebook
    • Samstöðin á YouTube
    • Samstöðin á vefnum

    Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

    44 min
  • Stuðningskennsla í grunnskólum

    Laufey ræðir við Thelmu Rún Gylfadóttur um reynslu hennar af sérkennslu og öðrum stuðningi við börn í leik- og grunnskólum. Thelma starfar sem sérkennari í grunnskóla í Garðabæ en er einnig foreldri barns sem sækir grunnskóla í Reykjavík. Rætt er um þau úrræði sem til boða (og þau sem standa ekki til boða) og hvað væri mögulega hægt að gera til að tryggja öllum börnum þann stuðning sem þau þurfa á að halda í sinni skólagöngu.

    • Samstöðin á Facebook
    • Samstöðin á YouTube
    • Samstöðin á vefnum

    Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

    34 min
  • Skólar og þarfir barna

    Fjóla Heiðdal segir okkur frá reynslu sinni af skólakerfinu og stuðningsúrræðum í tengslum við skólagöngu barnsins síns. Við heyrum hvernig er brugðist við þegar þörf er á stuðningi og hvað megi betur fara. Í þættinum ræðum við hvernig kerfið tekur á móti foreldrum og börnum með ákveðnar greiningar.

    • Samstöðin á Facebook
    • Samstöðin á YouTube
    • Samstöðin á vefnum

    Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

    32 min

About Reykjavíkurfréttir

From the publisher's feed

Borgarmálin frá sjónarhóli þeirra sem sjaldan er haft samráð við í rekstri og uppbyggingu borgarinnar. Borgarfulltrúar Sósíalistaflokksins flytja fréttir frá málefnum borgarinnar.