Reykjavíkurfréttir

Reykjavíkurfréttir

By Sanna Magdalena Mörtudóttir, Laufey Líndal ÓlafsdóttirNewsPoliticsDaily News
Download on the App Store

Reykjavíkurfréttir episodes

  • Reykjavíkurfréttir
    Borgarfulltrúar sósíalista ræða það sem bar hæst í nýliðinnu viku. Þar á meðal er ný skýrsla um athugun á vöggustofum en þær tóku til starfa 1949. Einnig ræða þau nýtt hverfi sem á að rísa í Keldum og setja það í samhengi við stöðuna á húsnæðismarkaði. Tillaga sósíalista í borgarstjórn verður einnig rædd ásamt öðrum málum sem þar fóru fram.
    38 min
  • Félagsbústaðir hækka leigu
    Sanna Reykjavík - 29. september
    Félagsbústaðir hækka leigu
    Félagsbústaðir kynntu nýverið breytingar á leigu sem leiðir til þess að stór hópur sér nú fram á að greiða hærri leigu. Breytingin mun hafa áhrif á 2.649 leigjendur hjá Félagsbústöðum, þar sem leiga hækkar hjá 1.538 leigjendum en lækkar hjá 1.111 leigjendum. Breytingin er kynnt af Félagsbústöðum sem aðferð í því að jafna leiguverð á milli ólíkra íbúða þannig að leigan sé sem jöfnast óháð staðsetningum og fleiri þáttum. Leigjendur Félagsbústaða búa við erfiða fjárhagslega stöðu og geta ekki greitt hærri leigu. Í þættinum í dag kemur til okkar leigjandi Félagsbústaða, Svandís Ragnarsdóttir og veitir okkur innsýn í veruleika leigjenda og hvernig er að fá tilkynningu um leiguhækkun.
    28 min
  • Borgarbúi fær nóg
    Borgarstjórn felldi í vikunni tillögu sósíalista um 0,05% hækkun gjalda á fyrirtæki, í þá upphæð sem hún var í fyrir covid heimsfaraldurinn. Þannig hefði borgin getað fengið rúman hálfan milljarða á ári, næstu ár. Sárleg þörf er á fjármunum í grunnþjónustu borgarinnar sem hefur verið skorin niður á síðustu misserum. Meirihlutinn vildi ekki horfast í augu við þessa stöðu og felldu tillöguna. Anita Da Silva Bjarnadóttir sem á heima í Reykjavík fylgdist með fundinum í vikunni. Við ætlum að ræða við hana um stöðuna í borginni og hvernig hún birtist íbúum.
    56 min
  • Umhverfissálfræði og Arkítektúruppreisnin
    Í dag fáum við tvo gesti til að ræða borgarskipulag, arkitektur nútímans og áhrif þess á andlega líðan. Stórir verktakar hafa aukið völd sín í skipulagsmálum og stýra allri þróun. Krafan um hámarkshagnað trompar önnur sjónarmið. Þar með talið hugmyndir um fegurðargildi bygginga, áhrif hönnunar á líðan íbúa, svo ekki sé talað um húsnæðisverð.
    Er einsleitnin of mikil? Hvers vegna er svona margar byggingar eins og gráir kassar? Hvað geta skipulagsyfirvöld gert til að bæta úr? Þetta og margt fleiri í þættinum. Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur snýr aftur til að ræða málin. Ásamt honum kemur Þórhallur Bjarni Björnsson, einn af talsfólki hópsins „Arkitektúruppreisnin á Íslandi”.
    42 min
  • Sanna Reykjavík - Vinnuskóli Reykjavíkur
    23. Júní
    Nýjung í dag! Í upphafi þessa þáttar verður birt stutt innslag þar sem Trausti ræðir við íbúa í Grafarvogi. Við viljum heyra frá hverfisbúum hvernig aðstæður eru og hvað megi gera betur. Með tímanum er markmiðið að búið verði að ræða við fólk úr öllum hverfum.
    Eftir innslagið ræðum við svo um Vinnuskóla Reykjavíkur. Hvers vegna ákvað meirihlutinn í Reykjavík að frysta laun unglinga? Á sama tíma var ekki tekið undir tillögu Sósíalista um að gera slíkt hið sama fyrir borgarfulltrúa. Er þetta tvískinnungur hjá kjörnum fulltrúum? Til að ræða þessi mál kemur til okkar Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir sem situr í ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða.
    Ráðið sendi frá sér yfirlýsingu þar sem ákvörðun borgarinnar var harðlega mótmælt. Úlfhildur hefur unnið í vinnuskóla Reykjavíkur og er því með reynslu af þessu starfsumhverfi. Við munum ræða launakjörin, starfsaðstæður og hvort ungmenni eigi sjálf að hafa meiri völd á vinnustaðnum. Fylgist með í dag til að læra af unga fólkinu.
    29 min
  • Íslenski leigumarkaðurinn sá versti í Evrópu
    5. maí 2023
    Samtök leigjenda á Íslandi gerðust nýlega meðlimir að IUT, alþjóðasamtökum leigjenda á ráðstefnu í Lissabon. Þar var fjöldi fólks úr ýmsum áttum samankominn og fulltrúi íslensku leigjendasamtakanna vakti athygli á stöðu leigjenda á Íslandi. Fulltrúum annarra landa í Evrópu sem þangað voru samankomin fannst margt undarlegt við íslenska leigumarkaðinn og þá sérstaklega hvernig leigubótakerfinu er háttað hér á landi. Yngvi Ómar Sighvatsson frá samtökum leigjenda á Íslandi kemur til okkar og ræðir ferðina til Lissabon, hvað hann lærði og hvað af því sé hægt að nota í baráttunni hér heima
    43 min
  • Einkavæðing í Reykjavík
    Föstudagur 28. apríl 2023.
    Þór Saari kemur til okkar að ræða einkavæðingu Ljósleiðarans í Reykjavík. Meirihlutinn í Reykjavík virðist aðhyllast hægri pólitík sem felur í sér niðurlagningu stofnana, einkavæðinga og lækkun fyrirtækjaskatta. Við ræðum á hvaða vegferð meirihlutinn í borginni er, hvernig EES tilskipanir kveða á um markaðsvæðingu innviða og hvað er hægt að gera til að komast upp úr hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar.
    30 min
  • Starfið í leikskóla
    Andrea Helgadóttir varaborgarfulltrúi Sósíalista kemur til okkar og við kynnumst henni og bakgrunni hennar. Áður en hún hóf störf í borgarstjórn starfaði hún í leikskóla og með börnum. Í þættinum ræðum við stöðu leikskólamála, hvað þarf að laga og hvernig megi vinna að því.
    33 min
  • Samtök leigjenda
    Í þætti dagsins fáum við Guðnýju Benediktsdóttur í heimsókn. Hún hefur verið leigjandi í 27 ár og situr nú í stjórn Samtaka leigjenda. Guðný hefur búið víðsvegar og segir okkur frá áratugareynslu sinni af því að vera leigjandi. Við ræðum einnig stöðuna á leigumarkaðnum og hverju samtök leigjenda eru að berjast fyrir þessi misserin.
    33 min
  • Strætómálin
    Föstudagur 20. janúar
    Við ræðum við Söru Stef Hiladardóttur um málefni strætó. Hún notar farmátann daglega og hefur gagnrýnt strætókerfið að undanförnu á síðu Félags strætófarþega. Tölum um útvistun, farþegaaðstöðu og þjónustuna.
    19 min

About Reykjavíkurfréttir

From the publisher's feed

Borgarmálin frá sjónarhóli þeirra sem sjaldan er haft samráð við í rekstri og uppbyggingu borgarinnar. Borgarfulltrúar Sósíalistaflokksins flytja fréttir frá málefnum borgarinnar.