Reykjavíkurfréttir

Reykjavíkurfréttir

By Sanna Magdalena Mörtudóttir, Laufey Líndal ÓlafsdóttirNewsPoliticsDaily News
Download on the App Store

Reykjavíkurfréttir episodes

  • Valdið til fólksins!

    Guðmundur Auðunsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir ræða stefnuyfirlýsingu sósíalista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem ber heitir Valdið til fólksins! Útgangspunkturinn snýr að því að íbúar og starfsfólk sveitarfélaga komi meira að mótun og ákvarðanatöku innan sveitarfélaganna. Til þess að það verði að veruleika þarf að stórauka tekjur til sveitarfélaga og tryggja að fjármagnið verði sótt til þeirra sem hafa færi á því að greiða það. Í þættinum verður farið yfir stefnumálin og það sett í samhengi við veruleika íbúa. Hér má lesa stefnuyfirlýsinguna í heild sinni: https://sosialistaflokkurinn.is/2022/...

    • Samstöðin á Facebook
    • Samstöðin á YouTube
    • Samstöðin á vefnum

    Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

    33 min
  • Lágar upphæðir fjárhagsaðstoðar

    Sveitarfélögum er skylt að veita þeim sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar, fjárhagsaðstoð til framfærslu. Grunnfjárhæðin er mjög lág og er hún 217.799 hjá Reykjavíkurborg og lækkar ef viðkomandi býr ekki í eigin húsnæði eða leigir húsnæði. Þar að auki er litið til tekna maka, þannig að réttur einstaklings til fjárhagsaðstoðar skerðist eða dettur út ef tekjur maka eru hærri en það sem hjón eða sambúðarfólk eiga rétt á hjá sveitarfélögunum. Í dag er miðað við svokallaðan hjónakvarða til hjóna/sambúðarfólks sem er 348.476 á mánuði. Ása Lind Finnbogadóttir kemur til okkar í þáttinn en nýlega greindi hún frá því að maki hennar ætti ekki rétt á fjárhagsaðstoð vegna tekna hennar og erfitt væri að sjá fyrir sér hvernig dæmið ætti að ganga upp. Í þættinum ræðum við þetta og hvernig félagslegu kerfin sem eiga að grípa okkur, gera það ekki.

    • Samstöðin á Facebook
    • Samstöðin á YouTube
    • Samstöðin á vefnum

    Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!
     

    30 min
  • Andfemínískt skipulag borga

    Við ræðum skipulag borga og hvernig rými eru hönnuð og hvernig skipulag og aðrir þættir geta komið í veg fyrir að þau henti ákveðnum hópum. Sara Stef og Þóra Kristín Þórsdóttir koma í þáttinn og við ræðum m.a. snjóruðning, sundlaugar og samgöngur.

    • Samstöðin á Facebook
    • Samstöðin á YouTube
    • Samstöðin á vefnum

    Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

    34 min
  • R.E.C Arts Reykjavík

    Today's show will be in English as we are joined with R.E.C Arts Reykjavík, a new theatrical and artistic creative team based in Reykjavík. Their aim is to bring diversity, visibility and representation of marginalized groups to the mainstream theater, dance and music scenes in Iceland. Chaiwe Sól, Eva Björk and Rebecca Hidalgo tell us how R.E.C Arts Reykjavík started out and how it’s going. We also discuss what needs to change in the Icelandic community to make sure that it truly is a place for all of us who reside here. Here you can check out their Instagram page and see info on their workshops: www.instagram.com/recartsrvk

    • Samstöðin á Facebook
    • Samstöðin á YouTube
    • Samstöðin á vefnum

    Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

     

    49 min
  • Réttlæti fyrir börn vöggustofanna

    Árni H. Kristjánsson og Viðar Eggertsson segja okkur frá málefnum vöggustofanna og afleiðingum þess á börn og fjölskyldur. Vöggustofur voru reknar á vegum borgarinnar á árunum 1949-1979 og voru hugsuð sem úrræði fyrir börn sem bjuggu við erfiðar félagslegar aðstæður, oftast var um að ræða börn alþýðufólks. Inni á vöggustofunum var ekki hugað að þörfum barnanna og Árni og Viðar segja okkur frá félagslegum, andlegum og líkamlegum afleiðingum sem þetta hafði í för með sér. Við ræðum hvað þarf að gera varðandi rannsókn málsins og hvar málið er statt innan borgarkerfisins.

    • Samstöðin á Facebook
    • Samstöðin á YouTube
    • Samstöðin á vefnum

    Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

    39 min
  • Samstaða, mótmæli og kraftur fjöldans

    Við ræðum mikilvægi samstöðu, mótmæli og kraftinn sem á sér stað í því þegar margir einstaklingar koma saman til að senda skýr skilaboð. Karl Héðinn Kristjánsson, Rúnar Freyr Júlíusson og Trausti Breiðfjörð Magnússon ungir sósíalistar koma í Hina Reykjavík til þess að ræða mótmælin gegn ofsóknum á fjölmiðlafólki sem fóru fram síðastliðinn laugardag. Mótmælin voru haldin samtímis á Austurvelli í miðbæ Reykjavíkur og Ráðhústorginu á Akureyri. Við ræðum skipulagsferlið á bak við mótmæli og mikilvægi samstöðunnar.

    • Samstöðin á Facebook
    • Samstöðin á YouTube
    • Samstöðin á vefnum

    Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

    36 min
  • Réttindabarátta leigjenda

    Guðmundur Hrafn Arngrímsson leigjandi og stjórnarmeðlimur í Samtökum leigjenda á Íslandi segir okkur frá stöðu og kröfum leigjenda. Við förum yfir stöðuna á Íslandi og erlendis og skoðum árangursríkar baráttuaðferðir sem hafa virkað til að bæta stöðu leigjenda. Samtök leigjenda á Íslandi gáfu nýverið út viðmiðunarverð svo leigjendur og leigusalar geti glöggvað sig á raunvirði leigu. Í þættinum fjöllum við um viðbrögðin sem sú reiknivél hefur fengið og viðbrögðin við kröfum leigjenda í samfélaginu almennt.  

    Hér má skrá sig í Samtök leigjenda á Íslandi: https://leigjendasamtokin.is/

    • Samstöðin á Facebook
    • Samstöðin á YouTube
    • Samstöðin á vefnum

    Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

    42 min
  • Útrýmum fátækt

    Hvernig útrýmum við fátækt? Ásta Dís Skjalddal samhæfingastjóri hjá PEPP Ísland grasrót fólks í fátækt og Laufey Líndal Ólafsdóttir, peppari ræða þessi mál í Hinni Reykjavík. Við fjöllum um þær aðgerðir sem þurfa að eiga sér stað til að útrýma fátækt, hvernig megi koma þeim í framkvæmd og hvernig eigi að mæta fátæku fólki.

    • Samstöðin á Facebook
    • Samstöðin á YouTube
    • Samstöðin á vefnum

    Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

    34 min
  • Betri strætó

    Hvernig virkar strætó fyrir borgarbúa, hvað þarf að laga og hvernig má ná því fram? Til þess að ræða þessi mál koma Björn Reynir Halldórsson, Claudia Overesch og Laufey Líndal Ólafsdóttir í Hina Reykjavík. Við ræðum þjónustu strætó, hvernig tekið er á móti ábendingum strætófarþega, aðgengi að strætó og strætóskýlum, öryggi í vögnum og margt fleira. Þá fjöllum við einnig um tengsl á milli hverfa og innan hverfa og útvistun á störfum innan strætó. 

    • Samstöðin á Facebook
    • Samstöðin á YouTube
    • Samstöðin á vefnum

    Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

     

    40 min
  • Verkalýðsbarátta

    Sæþór Benjamín Randalsson og Guðbjörg María Jósepsdóttir, félagar í Eflingu segja okkur frá mikilvægi þess að vera í stéttarfélagi. Í tilefni þess að stjórnarkosningar hjá Eflingu fara fram dagana 9.- 15. febrúar spyrjum við út í fyrstu skref þeirra í skipulagðri verkalýðsbaráttu, hvað hún snýst um og hvernig megi ná árangri. Sæþór og Guðbjörg bjóða sig fram til stjórnar Eflingar hjá Baráttulistanum og í þættinum spyrjum við út í áherslur listans og stefnumál.

    • Samstöðin á Facebook
    • Samstöðin á YouTube
    • Samstöðin á vefnum

    Alþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!

    28 min

About Reykjavíkurfréttir

From the publisher's feed

Borgarmálin frá sjónarhóli þeirra sem sjaldan er haft samráð við í rekstri og uppbyggingu borgarinnar. Borgarfulltrúar Sósíalistaflokksins flytja fréttir frá málefnum borgarinnar.