
Sign up to save your podcasts
Or


Fanney og Karlotta fá til sín góða gesti, þær Þurý Hannesdóttur og Margréti Ólafsdóttur en þær reka ásamt fleirum verslun sem kallast Sambúðin þar sem hægt er að nálgast umhverfisvænar og náttúrulegar vörur fyrir líkama, heilsu og heimili. Þurý og Margrét komu og sögðu meðal annars frá snyrtivörumerkinu Zao sem er náttúrulegt og áfyllanlegt og eiturefnalausu og gullfallegu leikföngunum sem fást í versluninni ásamt því að ræða almennt um mikilvægi þess að vera meðvitaður um hvað maður setur í sig og á....
Hlekkir á umræðuefni þáttarins:
Mena.is: https://mena.is
Hrísla.is: https://hrisla.is/pages/hrislutorg
Sambúðin.is: https://sambudin.is
Karlotta og Fanney ræða saman um sumarið framundan. Hvort ætli prinsessurnar séu að peppa útilegu eða sólarfrí? Tjald eða hjólhýsi? Eða kannski bara bústað? Er ekki Pimms sumardrykkur ársins? (af því Karlotta á það í lítratali) og er ekki bara hægt að lengja happy hour?
Karlotta og Fanney fá til sín Hönnu Lilju Oddgeirsdóttur lækni til þess að ræða málefni sem allar konur ættu að kynna sér, breytingaskeiðið. Hanna Lilja gefur okkur góða innsýn inn í við hverju megi búast á þessu timabili sem getur verið töluvert lengra en margar konur halda og telur upp nokkur af fjölmörgum einkennum sem konur geta þurft að glíma við. Ótrúlega áhugavert og mikilvægt spjall!....
Tengill á heimasíðu Gynamedica:
https://www.gynamedica.is
Tengill á heimasíðu Balance þar sem hægt er að sækja sér appið:
https://www.balance-menopause.com
Fanney og Karlotta ræða saman um vináttu og ýmislegt tengt henni.. Er Karlotta þunn eftir ævintýri helgarinnar? Hvaða litur haldi þið að Fanney sé? Eru danir kannski bara ekkert ligeglad?
Karlotta og Fanney ræða um Tenerife ferðina hennar Karlottu og detta svo aðeins inn á breytingaskeiðið, bæði kvenna og karla! já Karla!
Hvernig gekk ferðin út og hvað mælir lottan með að gera á eyjunni Tenerife? Er Fanney matarsár? Þetta og svo margt fleira í nýjasta þættinum....
Tenglar á hluta umræðuefnisins:
Spjallið hans Theodórs:
https://www.lyfja.is/fraedsla/fraedslugreinar/lifum-heil/hormonabreytingar-karla-og-lidan-theirra
Vítamínið sem Fanney ræðir um:
https://heilsuhusid.is/product/femmmaca-life-120stk
Tengill á heimasíðu Gynamedica:
https://www.gynamedica.is/t%C3%ADmabókanir
Karlotta og Fanney fara um víðan völl og ræða allt frá skrítnum matar samsetningum til sannsögulegra draugasagna. En eru aldursfordómar í samfélaginu og geta konur bara runnið út?
Karlotta og Fanney hittast heima hjá Fanney í þetta skiptið og ræða uppákomur síðastliðinna daga. Hvað fannst þeim um Will Smith atvikið á Óskarnum eða málið með vinkonurnar í Þokunni? Eru ungar konur of uppteknar af að eiga alls konar dót eða er bara alveg nauðsynlegt að geta borið jólamatinn fram á Royal Copenhagen??
Karlotta og Fanney hittast í kósý spjalli heima í stofunni hennar Karlottu og ræða allt milli himins og jarðar. Karlotta segir frá ævintýralegri ferð sinni til Tenerife (plís ekki tilkynna hana til spænskra yfirvalda) og það kemur í ljós hvernig mátunarklefarnir á Tene eru að standa sig. Fanney uppljóstrar hvaða störnu hún helst vildi taka dúett með og Karlotta kjaftar af sér áður ósögðum draumi....
Karlotta og Fanney fá til sín góðan gest, hana Auði Evu Ásberg. Auður er mikil athafnakona, listakona, sjálfskapaður hönnuður og dugnaðarforkur sem hefur stigið fæti niður á ótrúlegustu stöðum. Auður segir okkur frá hvernig hvatvísi hennar hefur kastað henni út í ótrúlegustu ævintýri og hvernig hún hefur með aldri og þroska náð að beisla orkuna sína á þann hátt að hún nýtist henni betur. Eru ekki örugglega allir að safna lénum??....
ATH! Í þessum þætti er rætt um andlát barns í móðurkviði!
Fanney og Karlotta fá til sín litlu systur Karlottu, hana Katrínu Jónsdóttur en hún missti son sinn Atlas á síðustu vikum meðgöngunnar fyrir tæpum 6 árum síðan. Katrín kom til þeirra og ræddi um þessa hræðilegu upplifun á opinskáan hátt og hvernig henni hefur gengið að læra að lifa með þessum mikla sársauka.
From the publisher's feed