
Sign up to save your podcasts
Or


Karlotta og Fanney fá til sín yndislegan gest, hana Marín Möndu Magnúsdóttur. Marín Manda er þekkt fyrir glæsileika, þokka og hæfileika á hinum ýmsu sviðum og var hún mikið í sviðsljósinu á ákveðnu tímabili en kúplaði sig út í um áratug en er nú komin aftur af krafti með nýju þáttunum sínum Spegilmyndinni á stöð 2. Marín kom til okkar og ræddi um tísku, sjálfsöryggi og hvernig það var að vera svona mikið í sviðsljósinu sem ung kona. Yndislegt og gefandi spjall....
Karlotta og Fanney fá til sín vinkonu sína Gretu sem er ekki þekkt fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum og er svo sannarlega ekki að fara að byrja á því núna.
Er orðið fjölla ljótt? Var það ekki örugglega Benóný sem var á ballinu? Er það satt að Siggi Brúni hafi kúkað á sig í skátaferðalagi?
Hver er uppáhalds tyllidagurinn þinn? Ertu búin að heyra um "nýja" bóndadaginn? Er Karlotta búin að brjóta saman þvottinn? Eru ekki allir búnir að horfa á Verbúðina? Þetta og margt fleira í þessum nýjasta þætti af Saumaklúbbnum....
Karlotta og Fanney ræða saman um sjálfsmynd sína og hvernig það eru til allskonar týpur af fólki (sumu jafnvel bara frekar leiðinlegu) og hvar þær telja sig tilheyra í þeim flokkum....
Fanney og Karlotta fá til sín kæra vinkonu sina hana Rakel Hámundardóttur í kaffispjall, ræða um upplifanir þeirra af Tony Robbins sem voru ekki á nokkurn hátt líkar og rifja upp nokkrar vandræðasögur...
Karlotta of Fanney ræða um vandamál sem Fanney greyið þjáist af og opna sig um hvað þeim finnst um lýtaaðgerðir. Svo er Fanney á fullu í sjálfsvinnu og alltaf að reyna að tosa lottuna með sér í stemmninguna....
Karlotta og Fanney ræða saman um lífið og tilveruna. Fanney segir frá símaati sem hefur setið í henni síðan hún var unglingur og svo ræða þær stöllur um samfélagsmiðla, bæði jákvæðu og neikvæðu hliðarnar.
Karlotta og Fanney ræða um áramótin, hefðir og drauma tengda þeim og segja frá mjööög áhugaverðri frumsýningu sem þeim var boðið á.
Karlotta, Fanney og Agnes fá til sín tvíburasysturnar Ósk Matthildi og Thelmu Guðlaugu en þær reka saman fyrirtækið Femme training. Systurnar eru báðar einkaþjálfarar og að eigin sögn, sérhæfa sig í að þjálfa konur og mæður sem vilja líða vel að utan sem innan, eiga heilbrigt og sterkt hjarta, og orkumeiri sál. Ótrúlega skemmtilegt og áhugavert samtal um kvenlíkamann og andlega heilsu.
Fanney, Agnes og Karlotta fá til sín frábæran gest, hana Katrínu Eddu Þorsteinsdóttur, sem er samfélagsmiðla stjarna par exellence og fyrirmynd af hæsta kalíber. Katrín talar um sjúka ást og hvernig hún upplifði andlegt ofbeldi í sambandi og hvernig samfélagsmiðlar hafa hjálpað henni að viðhalda sambandinu við Ísland og íslenskuna.
From the publisher's feed