Selfoss Hlaðvarpið

Selfoss Hlaðvarpið

By Selfoss HlaðvarpiðSports
Download on the App Store

Selfoss Hlaðvarpið episodes

  • Selfoss hlaðvarpið #059 - No Pain, No Pain
    Hjörtur Leó fékk til sín lauflétta gesti, Hrafn Erlingsson, Arnar Daði Brynjarsson og góðkunningja þáttarins Örn Þrastar.
    Það er óhætt að segja að létt hafi verið yfir mönnum er þeir fóru yfir málefni líðandi stundar. Fljúgandi gengi hjá mfl. kvenna og batamerkin hjá mfl. karla.
    Undir lokin lærum við svo nýja hluti um Örn, en Hrafn og Arnar tóku að sér létta gestastjórnun og fræddust um Örn.
    Næstu leikir hjá liðunum okkar eru:
    Fös 3. nóv Víkingur - Selfoss mfl kvk
    Sun 5. nóv Víðir - Selfoss U 2. deild kk
    Fös 10. nóv Selfoss - Valur U mfl kvk
    Lau 11. nóv ÍBV - Selfoss mfl kk
    1 hr 9 min
  • Selfoss hlaðvarpið #058 - Barið í brestina
    Hjörtur Leó fékk þá Atla Ævar Ingólfsson, Árna Geir Hilmarsson og Helga Hlynsson til að fara yfir brekkuna sem mfl karla er í eftir fyrstu leiki tímabilsins. Þeir félagar eru lausnamiðaðir að öllu jöfnu og leysa að sjálfsögðu heimsins vanda.
    Næstu leikir Selfoss eru:
    Mfl kvenna
    Fim 19. okt 19.30 Selfoss - Haukar U
    Þri 24. okt 19.30 Selfoss - Fram
    Lau 28. okt 113.30 HK - Selfoss
    Mfl karla
    Lau 21. okt 16.00 HK - Selfoss
    Fös 27. okt 19.30 Selfoss - Stjarnan
    39 min
  • Selfoss hlaðvarpið #057 - Fljúgandi start
    Meistaraflokkur kvenna hóf leik um síðustu helgi og óhætt að segja að þær hafi fengið fljúgandi start. Hjörtur Leó tók þjálfara liðsins, Eyþór Lárusson tali og fékk að því loknu góða gesti, stórskyttuna Kötlu Maríu, reynsluboltann Guðrúnu Herborgu og Árna Geir, fyrrum aðstoðaþjálfara liðsins.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Stjörnur, Labbi
    56 min
  • Selfoss hlaðvarpið #056 - Skkúbb Og Sparnaðarráð
    Þá er það loks að byrja, nýtt tímabil með nýjum vonum og nýjum væntingum. Hjörtur Leó fékk Þóri Ólafs í smá spjall áður en hann opnaði allar hurðar og fékk Richard Sæþór, Örn Þrastar og Hrafn Erlings til að leggja línurnar fyrir veturinn.
    Strákarnir droppuðu óvæntum tíðindum af leikmannamálum og Richard er á góðri vegferð að spara heimilium landsins aurinn.
    Tímabilið hefst á fimmtudag og Selfoss hefur leik í Olísdeildinni á laugardaginn 9. sept þegar strákarnir taka á móti KA kl 16.00.
    1 hr 8 min
  • Selfoss hlaðvarpið #055 - Skin, skúrir og uppgjör
    Þá er síðustu handboltaleikjum tímabilsins lokið hjá Selfyssingum og Hjörtur Leó fær góða gesti til að gera upp tímabilið. Fyrst mæta Eyþór Lárusson þjálfari og Tinna Soffía Traustadóttir fyrirliði mfl. kvenna. Í sinni hlutuanum mæta svo Þórir Ólafsson þjálfari og Einar Sverrisson stórskytta.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Cha Cha Cha, Käärijä
    53 min
  • Selfoss hlaðvarpið #054 - Háspenna og fagmennska
    Vorið er tíminn og úrslitakeppnin og umspilið komið á fullt og bæði stelpur og strákar að spila til skiptis en samt einhvernvegin alltaf við FH. Hjörtur Leó fékk þá Árna Geir, aðstoðarþjálfara mfl. kvenna og Richard Sæþór leikmann mfl. karla til sín í höfuðstöðvar SelfossTV og fóru þeir yfir síðustu daga og skoðuðu hvað bíður okkar.
    Næstu leikir eru:
    Mfl karla:
    Þri 18. apríl kl 19.40 | Selfoss - FH | Set höllin
    Fös 21. apríl kl ??.?? | FH - Selfoss | Kaplakriki*
    Mfl kvenna:
    Mið 19. apríl kl 19.30 | FH - Selfoss | Kaplakriki
    Lau 22. apríl kl 19.90 | Selfoss - FH | Set höllin*
    *Oddaleikur ef þörf er á.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Fljúgum áfram, Skítamórall
    44 min
  • Selfoss hlaðvarpið #053 - Nú falla öll vötn til Ölfusárósa
    Hjörtur smellti á rec og fór yfir málin með Eyþóri Lárussyni, þjálfara mfl kvenna í handbolta og tveim leikmönnum liðsins, þeim Kötlu Maríu Magnúsdóttur og Örnu Kristínu Einarsdóttur.
    Þau straujuðu létt yfir tímabilið og þá sérstaklega eftir áramót. Auðvitað mikill fókus á leikinn stóra á miðvikudag, en þá mæta stelpurnar ÍBV í undanúrslitum í bikar. Við hvetjum ykkur öll til að fjölmenna í Laugardalshöllina á miðvikudagskvöldið á Powerade bikarinn. Áfram Selfoss!
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Gull af mönnum, Steindinn okkar, Matti Matt & ReddLights
    42 min
  • Selfoss hlaðvarpið #052 - Stormurinn eftir handboltalognið
    HM er að baki, alla vega hjá okkur Íslendingum og fékk Arnar Helgi þá Þóri Ólafsson og Gísla Felix Bjarnason til að gera upp okkar hlut í mótinu. Þeir slá einnig á þráðinn í Hafnarfjörð og spjölluðu við Ásgeir Örn Hallgrímsson, þjálfara Hauka og eins af sérfræðingum Rúv í HM stofunni. Hann er einmitt að mæta með Haukana sína um aðra helgi í Set höllina. Þetta er að fara af stað!
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Stick Together, Alicja
    59 min
  • Selfoss hlaðvarpið #051 - Lognið á undan handboltafárviðrinu
    HM í handbolta byrjar í næstu viku og þjóin er nú þegar við það að fara á límingunum. Við tökum virkan þátt og hitum í þessum þætti upp fyrir HM ásamt því að minna fólk á það sem framundan er á Selfossi.
    Hjörtur Leó Guðjónsson tók á móti Árna Geir Hilmarssyni aðstoðarþjálfara mfl kvenna, Erni Þrastarsyni íþróttastjóra og Hörpu Brynjarsdóttur betri helmingur Ómars Inga og fyrrverandi leikmaður mfl. kvenna. Já það eru vissulega spennandi tímar framundan!
    1 hr 5 min
  • Selfoss hlaðvarpið #050 - Jólagleði & uppbygging
    Hjörtur Leó Guðjónsson fékk gestina góðu í stúdíóið. Þeir Örn Þrastarson, Richard Sæþór Sigurðsson og Gísli Guðjónsson fóru yfir fyrri hluta tímabils og snertu lítið eitt á veislunni sem framundan er í janúar. Það er ljóst að þjóðin verður stillt inn á HM í handbolta sem aldrei fyrr.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: cashmere draumur, Herra Hnetusmjör & Birgitta Haukdal
    1 hr 9 min

About Selfoss Hlaðvarpið

From the publisher's feed

Podcast by Selfoss Hlaðvarpið