Selfoss Hlaðvarpið

Selfoss Hlaðvarpið

By Selfoss HlaðvarpiðSports
Download on the App Store

Selfoss Hlaðvarpið episodes

  • Selfoss hlaðvarpið #039 - Handboltaveislan er hafin
    Loksins aftur! Selfosshlaðvarpið snýr aftur með stútfullann handboltaklukkutíma.
    Arnar Helgi Magnússon, Þórir Ólafsson og Hjörtur Leó Guðjónsson mættu í hljóðverið og hituðu upp fyrir veturinn með léttri yfirferð yfir það sem af hausti.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Innan í mér, Skítamórall
    1 hr 7 min
  • Selfoss hlaðvarpið #038 - Sumarið er tíminn!
    Fótboltasumarið er að hefjast og til að fagna því fékk Már Ingólfur góða gesti með sér að hljóðnemunum. Þá Ingimar Helga Finnsson, betur þekktur sem Litla Flugvél og Einar Karl Þórhallsson sem hefur verið í kringum fótboltan á Selfossi frá barnsaldri.
    Í Kaffi Krúsar stúdíóinu hituðu menn upp fyrir fótboltasumarið bæði hjá stelpunum og strákunum. Hverjir eru farnir, hverjir eru komnir og hverjir eru líklegir til að stíga upp? Hvaða sögulínum eigum við að vera að fylgjast sérstaklega með? Verður JÁ-Verk völlurinn fallegur? Þetta síðasta segir sig auðvitað sjálft, en hlustið samt til að fá staðfestingu á því sem þið vitið nú þegar.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Gírinn, Doctor Victor, Ingó Veðurguð og Gummi Tóta
    1 hr 35 min
  • Selfoss hlaðvarpið #037 - Þótt ég fari um dimman dal
    Það er búin að vera mikil keyrsla en við náðum að pinna niður góða gesti til að renna yfir það sem á hefur gengið síðustu vikur. Arnar Helgi fékk þá Guðmund Hólmar, Hólmar Höskulds og Þóri Ólafs til að tækla þetta með sér.
    Þeir gátu ekki annað en tekið samtalið um meiðslaölduna sem gegnið hefur yfir Selfyssinga. Einnig reyndu þeir að lesa í hvað hefur ekki gengið vel og finna lausnir á því. Einnig það sem betur hefur gengið, því lífið er sem betur fer ekki tómt vesen. Alla vega ekki þegar þú getur skellt þér á Kaffi Krús þegar þér hentar.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Syndir feðranna, Bubbi Morthens
    1 hr 9 min
  • Selfoss hlaðvarpið #036 - Í Auga Stormsins! Hitað upp fyrir Haukar Selfoss
    Í miðri febrúartörninni náði Arnar Helgi að lokka Halldór Jóhann í Kaffi Krúsarstúdíóið í stutt spjall.
    Megintilgangurinn var vitanlega að hita upp fyrir stórleikinn sem verður leikinn undir föstudagsljósunum, Haukar Selfoss. Við heyrum hvernig menn eru að vinna úr þessu gríðarlega leikjaálagi sem febrúar er að færa okkur og hvað klikkaði hjá okkar mönnum gegn Fram.
    Selfoss hlaðvarpið hvetur handboltaáhugafólk eindregið til að stilla inn á leik Hauka og Selfoss á Stöð 2 sport á föstudag kl. 19.30. Við munum í það minnsta gera það!
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Ef ástin er hrein, Jón Jónsson, feat. GDRN
    25 min
  • Selfoss hlaðvarpið #035 - Guðmundar saga Guðmundssonar
    HM er búið og the boys are back in town. Arnar Helgi fékk Þóri Ólafs og Helga Hlyns með sér í Kaffi Krúsarstúdíóið eftir leik Selfoss og Vals í endurkoma strákanna okkar í Olísdeildina eftir 125 daga hlé. Arnar lét ekki þar við sitja og henti í símaviðtöl við atvinn- og landsliðsmennina Elvar Örn Jónsson og Bjarka Má Elísson sem og landsliðsþjálfara Íslands, Guðmund Guðmundsson.
    Þeir fóru eðlilega yfir leikinn nýafstaðna ásamt því sem gerst hefur hjá stelpunum og U-liðinu. Einnig hvað framundan er. Landsliðsmennirnir og Guðmundur sögðu okkur frá því sem er í gangi hjá þeim á sínum heimavígstöðvum og komu með sína sýn á HM úr baksýnisspeglinum og handboltann á Selfossi þessa dagana.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Feel the Love, Daði Freyr X ÁSDÍS
    1 hr 30 min
  • Selfoss hlaðvarpið #034 - Halldór Jóhann talar frá Bahrain
    Nú er HM alveg að skella á og Selfoss hlaðvarpið ákvað í tilefni af því að slá á þráðinn til Bahrain og fá stutt viðtal við landsliðsþjálfara þeirra, en það er enginn annar en Halldór Jóhann Sigfússon. Hann er jafnframt þjálfari handbolta strákanna okkar á Selfossi.
    Þeir Halldór og Arnar Helgi spjölluðu um lífið í Bahrain, handboltann og undirbúninginn í Bahrain fyrir HM og auðvitað komu þeir aðeins inn á Selfoss og Olísdeildina. Spennandi tímar framundan!
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Þjóðsöngur Bahrain, Barnakór
    23 min
  • Selfoss hlaðvarpið #033 - Hitað upp fyrir HM
    Eftir mjög langt ár er 2021 farið af stað og jólin halda áfram út janúar hjá handboltaáhugafólki. Nú er HM í handbolta að hefjast og fékk Arnar Helgi alvöru fallbyssur í Kaffi Krúsar hljóðverið til að hræara í þátt. Landsliðsmanninn fyrrverandi og góðvin hlaðvarpsins Þóri Ólafsson, núverandi ladsliðsmanninn Hauk Þrastarson ásamt bróður hans og þjálfari í öllum fullorðinsflokkum á Selfossi, Örn Þrastarson.
    Góðar fréttir af Krúsinni, en þar er nú aftur opið í sal alla daga vikunnar frá 10-21.
    Auðvitað var Haukur spurður út í fyrstu mánuðina í Póllandi og hverng verkefnið sem hann er í núna gengur. Strákarnir töluðu um fyrsta Portúgalsleikinn og hituðu upp fyrir HM í Egyptalandi. Og við erum ekki að skella upptöku í gang öðruvísi en að fara aðeins yfir málin á Selfossi, Raggi kominn heim, handboltinn vonandi að fara að rúlla, #íslmeis21 að fara að trenda?
    Selfoss Hlaðvarpið óskar hlustendum nær og gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir samfylgdina á því síðasta!
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Álfareiðin, Björgvin Halldórsson
    1 hr 12 min
  • Selfoss hlaðvarpið #032 - Fótboltasumarið gert upp
    Fótboltasumarið er löngu liðið og undirbúningur fyrir það næsta hafinn. Í tilefni af því fékk Már Ingólfur góða gesti. Arnar Helgi brá sér í gestahlutverkið, en hann er liðsstjóri hjá meistaraflokki karla. Einnig mættu fyrirliðar meistaraflokksliðanna tveggja, Þorsteinn Daníel og Anna María.
    Þau fóru yfir sumarið, sem varði óvenjulega lengi þetta árið eins og fólk þekkir. Hæðir og lægðir ræddar og erfiðu spurningarnar tæklaðar. Ekki hefur það þó mikið upp á sig að vera fastur í fortíðinni alveg öllum stundum og því var horft til næsta sumars. Munu stelpurnar ná að fylla lið, er Gary Martin að mæta til strákanna.
    Selfoss Hlaðvarpið óskar hlustendum nær og fjær gleðilegra jóla!
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Takk fyrir jólin Jesú
    1 hr 6 min
  • Selfoss hlaðvarpið #031 - Samherji Samherja
    Handboltinn er í pásu, en það eru þó blikur á lofti um að hann gæti farið af stað um miðjan nóvember. Arnar Helgi fékk til sín hornamanninn knáa Þóri Ólafsson, Hólmar "H2" Höskuldsson og Guðmund Hólmar Helgason leikmann meistaraflokks karla og nýjasta stjarnan á Selfossi.
    Nýja Kaffi krúsarstúdíóið er að taka á sig mynd og þar er ekkert verið að slaka á. Á Krúsinni minnum við svo á California Club og góði osturinn er kominn aftur á turnborgarann!
    Þeir fóru yfir síðustu vikur fyrir þetta Covid-hlé og spáðu í spilin. Hvernig gengur Halldóri Jóhanni að setja sitt handbragð á liðið? Haukur Þrastar þarf ekkert númer þegar hann fer á Vor og góðar bransasögur fyrir allan peninginn.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: The Wicker Man, Iron Maiden
    1 hr 19 min
  • Selfoss hlaðvarpið #030 - Tár, bros og lakkskór
    Fótboltasumarið er í besta falli á lokametrunum og ekki útilokað að því sé lokið. Már Ingólfur Máson hélt um stjórnartaumana þegar tveir af stærstu leikmönnum Selfoss mættu í Kaffi Krúsar stúdíóið.
    Sævar Þór Gíslason þarf varla að kynna fyrir knattspyrnuáhugafólki á Íslandi, en hann var grimmur fyrir framan mörk andstæðinganna. Í dag er hann öflugri utanvallar og er meðal annars í stjórn knattspyrnudeildarinnar.
    Guðmundur Karl Sigurdórsson á ekki eins glæstan feril innanvallar, en þeim mun öflugri á hliðarlínunni. Prímusmótor í gegnum árin bæði hjá Selfoss og Árborg, fjölmiðlajöfur og bara drengur góður.
    Strákarnir fóru yfir stöðu mála hjá fótboltaliðunum okkar. En það verður varla gert án þess að fara yfir stöðu mála í þjóðfélaginu. Auðvitað spáir Már í fortíðinni og strákarnir spá í framtíðinni. Annars kemur allskonar við sögu: Notaðir jepplingar, sælkerabræður, þjálfarinn á lakkskónum og millumerkið #gummaheim. Selfoss hlaðvarpið tekur undir það, við viljum Gummu heim!
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Veiðistöng, OFL
    1 hr 22 min

About Selfoss Hlaðvarpið

From the publisher's feed

Podcast by Selfoss Hlaðvarpið