Selfoss Hlaðvarpið

Selfoss Hlaðvarpið

By Selfoss HlaðvarpiðSports
Download on the App Store

Selfoss Hlaðvarpið episodes

  • Selfoss hlaðvarpið #029 - Hitað upp fyrir handboltaveturinn
    Það er komið að því, handboltaveturinn er að fara í gang og í tilefni af því fékk Arnar Helgi til sín góða gesti. Þórir Ólafsson handboltagoðsögn á Selfossi, Örn Þrastarson þjálfari nánast allra iðkenda og Halldór Jóhann Sigfússon þjálfara meistaraflokks karla.
    Halldór Jóhann er kannski nýr á Selfossi, en hann er nú þegar búinn að kynnast Kaffi Krús og sundlauginni. Ekki skrýtið að hann kunni vel við sig í draumalandinu.
    Þeir fóru yfir undirbúningstímabilið hjá stelpunum og strákunum sem og framhaldið.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Wind Of Change, Scorpions
    1 hr 20 min
  • Selfoss hlaðvarpið #028 - Sáu Skítamóral ekki fyrr en í comebackinu
    Fótboltinn er aftur farinn af stað...aftur! Már Ingólfur setti græjurnar í Kaffi Krúsar-stúdíóinu í gang og fékk góða gesti, tveir fyrrverandi leikmenn Selfoss. Annars vegar Svava Svavarsdóttir sem meðal annars er í stjórn knattspyrnudeildarinnar og leikur fótbolta með Hamri. Hins vegar Ingimar Helga Finnsson leikmann Árborgar og annar þáttastjórnenda í einu vinsælasta fótboltahlaðvarpi Íslands, Fantasy Gandalf.
    Þau tækluðu heimsmálin á Selfossi og fóru létt yfir síðustu vikur og hvernig þau sjái fyrir sér að framtíðin liggi.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Einn dag í einu, Krassasig
    1 hr 1 min
  • Selfoss hlaðvarpið #027 - Allir tilbúnir að slást í 2. deildinni
    Fótboltasumarið er komið vel af stað og ekki seinna vænna en að fara yfir veturinn og upphaf tímabilsins hjá strákunum. Már Ingólfur Másson tók til sín stjórnartaumana í þætti dagsins og fékk tvo þrælgóða gesti, en þeir Ingi Rafn Ingibergsson nýorðinn fyrrverandi leikmann Selfossliðsins og Einar Ottó Antonsson aðstoðarþjálfari strákanna.
    Við rétt eins og gestir okkar höldum áfram að gleðjast yfir því að Krúsin sé kominn á fullan snúning eftir endurbætur á eldhúsinu og minnum við á að hægt er að bæta kjúkling eða nautahakki út á Krúsar Nachosið, hax sem vill gleymast.
    Strákarnir fóru yfir undirbúningstímabilið og breytingar á hópnum og stöðuna á leikmönnum sem lítið sem ekkert hafa komið við sögu í upphafi tímabils. Hverjir eru líklegir til að verða nýjar hetjur og hvernig horfir liðið á sumarið. Einnig fóru menn létt yfir þessa leiki sem eru búnir og næstu viðureignir skoðaðar.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Love me like you elskar mig, Hölt Hóra
    1 hr 5 min
  • Selfoss hlaðvarpið #026 - Þriðja sætið yrði vonbrigði
    Nú er fótboltinn að fara á fulla ferð og tími til kominn að hita upp fyrir spennandi fótboltasumar. Gestir Arnars Helga í Kaffi Krúsarstúdíóinu voru rándýrir að vanda, en þær Anna Björk Kristjánsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir leikmenn meistaraflokks kvenna mættu ásamt þjálfara sínum, Alfreð Elíasi Jóhannssyni.
    Hálfur matseðillinn á Kaffi Krús fékk shoutout frá stelpunum og óhætt að segja að gleði rýkji með það að búið sé að opna staðinn eftir framkvæmdir síðustu vikna.
    Farið var yfir Valsleikinn um nýliðna helgi, þegar stelpurnar lönduðu fyrsta titli ársins, undirbúininginn í vetur og síðustu vikur, nýju leikmennina og hvernig þjálfarinn og liðið sjái sumarið fyrir sér.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Kannski Hann, Celebs
    49 min
  • Selfoss hlaðvarpið #025 - Spurningakeppni Selfoss hlaðvarpsins, stúlkur
    Þá er komið að seinni þætti spurningakeppni Selfoss hlaðvarpsins þar sem mætast fulltrúar meistaraflokka Selfoss í fót- og handbolta. Í þessum seinni þætti mætast fulltrúar meistaraflokka kvenna. Arnar Helgi er að vanda við stjórnvölinn og til leiks mættu fótboltakonan Þóra Jónsdóttir og handboltakonan Agnes Sigurðardóttir.
    Kaffi krúsar stúdíóið var ögn rykfallið, enda miklar framkvæmdir á Krúsinni og lokað næstu eina og hálfa vikuna. Það skyldi þó engann örvænta þar sem Vor hefur aftur tekið upp sinn hefðbundna opnunartíma, en sigurvegarar spurningakeppninnar fengu ljúfenga sushi veislu að launum.
    Nú fer svo að styttast í að fótboltinn fari að rúlla og Selfoss hlaðvarpið er byrjað að undirbúa upphitun fyrir fótboltasumarið.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Farinn, Skítamórall
    54 min
  • Selfoss hlaðvarpið #024 - Spurningakeppni Selfoss hlaðvarpsins, drengir
    Selfoss hlaðvarpið ákvað að hræra í létta spurningakeppni á milli meistaraflokka Selfoss í fót- og handbolta. Í þessum fyrri þætti af tveim mætast fulltrúar meistaraflokka karla. Arnar Helgi er að vanda við stjórnvölinn og til leiks mættu fótboltamaðurinn Þorkell Ingi Sigurðsson og handboltamaðurinn Alexander Már Egan.
    Líf og fjör í Kaffi krúsar stúdíóinu eins og fyrri daginn, en þetta snýst auðvitað fyrst og síðast um að hafa gaman. Það kom upp smávæg skekkja í stigatöflunni snemma, en það hafði á endanum ekki úrslitaáhrif og réttur sigurvegari krýndur í lokin. Í næsta þætti mætast svo fulltrúar meistaraflokka kvenna.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Valentine Lost - Eiríkur Hauksson
    59 min
  • Selfoss hlaðvarpið #023 – Handboltatímabilið blásið af
    Ritstjórn Selfoss hlaðvarpsins kallaði til krísufundar eftir að tilkynnt var að handboltatímabilinu hefði verið slaufað og ljóst hvernig leyst yrði úr öllum deildum. Tveggja metra reglan var tekin skrefi lengra og dró Arnar Helgi fram rauða símann í Kaffi Krúsarstúdíóinu og hringdi um borg og bí.
    Fyrsti viðmælandinn var Þórir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Selfoss, annar var Örn Þrastarson þjálfari meistaraflokks kvenna, þriðji var Nökkvi Dan Elliðason leikmaður meistaraflokks Selfoss og að lokum heyrum við í Grími Hergeirssyni, þjálfara meistaraflokks karla.
    Þeir fóru yfir þessa niðurstöðu og hvernig úrlausn deidarkeppninnar fer með liðin okkar. Formaðurinn fór nokkrum orðum um tekjumissinn af þessum lokakafla deildar og úrslitakeppni, en engan bilbug var þó á honum að finna. Nökkvi segir okkur frá lífinu með Covid-19, en það virðist innihalda töluvert háskólanám á svefnlofti í sumarbústað.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: School‘s out, Alice Cooper
    52 min
  • Selfoss hlaðvarpið #022 - Atvinnumennirnir okkar í Danaveldi
    Það voru engar smá fallbyssur sem Arnar helgi fékk í Kaffi Krúsar stúdíóið. Tveir lykilmenn í toppliðum dönsku úrvalsdeildarinnar sem og íslenska landsliðsins, Selfyssingarnir Janus Daði Smárason sem leikur með Álaborg og Elvar Örn Jónsson sem leikur með Skern.
    Strákarnir dásömuðu pizzurnar á Krúsinni og það er óhætt að taka undir það. Þessa dagana er verið að bjóða upp á heimsendingu frá kl. 17-20 og mun Selfoss hlaðvarpið nýta sér það!
    Staðan í heiminum var rætt beint og óbeint, enda hefðu gestirnir báðir verið á fullu í dönsku deildinni í eðlilegu árferði. Strákarnir fóru yfir hvað gæti gerst í handboltaheiminum næstu vikur, spjölluðu aðeins um Selfoss, fóru yfir tímabilin sín í vetur og svo auðvitað landsliðið.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Í kvöld er gigg, Ingó Tóta
    1 hr 8 min
  • Selfoss hlaðvarpið #021 - Erfiðast að þjálfa þessa 20 cm á milli eyrnanna
    Kveikt var á kertum og ný sending af gestum tekin upp í Kaffikrúsarstúdíóinu strax eftir stórleik Selfoss og Hauka sem endaði ekkert allt of vel fyrir okkar menn. Arnar Helgi tók á móti Gísla Rúnari Guðmundssyni, markmannsþjálfara Selfoss, Einari Sverrissyni stórskyttu og Gísla Felix Bjarnasyni, goðsögn í lifandi lífi.
    Þeir töluðu vitanlega um leikinn sem þá var nýlokið, fóru yfir sýn markmannsþjálfarans á starfinu, skoðuðu stöðu liðanna þriggja, mfl. karla, kvenna og u-liðiðsins.
    Óhjákvæmilega veltu þeir vöngum yfir heimsmálunum og þeim faraldri sem gengur nú yfir. Við vitum meira í dag en þeir vissu í gær, en búið er að fresta öllum leikjum á vegum HSÍ þar til samkomubann almannavarna lýkur.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Sólin er komin, Mugison
    1 hr 15 min
  • Selfoss hlaðvarpið #020 - Halldór Jóhann kynntur til leiks
    Strákunum var hleypt út úr Kaffi Krúsar stúdíóinu og yfir Hellisheiðina. Þar sem Halldór Jóhann Sigfússon verðandi þjálfari Íslandsmeistara Selfoss var tekinn húsi.
    Arnar Helgi spjallaði við hann um nýja starfið, Selfoss og handboltann. Selfoss hlaðvarpið óskar Halldóri til hamingju!
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Stopp nr. 7, 200.000 naglbítar
    28 min

About Selfoss Hlaðvarpið

From the publisher's feed

Podcast by Selfoss Hlaðvarpið