Selfoss Hlaðvarpið

Selfoss Hlaðvarpið

By Selfoss HlaðvarpiðSports
Download on the App Store

Selfoss Hlaðvarpið episodes

  • Selfoss hlaðvarpið #009 - Þetta sumar er okkar
    Fótboltasumarið er komið á fulla ferð og eru bæði stelpurnar og strákarnir búin með fyrsta hluta sinna móta. Því þótti Arnari tilvalið að fá svoltið af fótboltafólki í spjall.
    Í Kaffi Krúsar stúdíóinu þetta fallega júníkvöld komu til okkar Már Ingólfur Másson, kennari, sagnfræðingur, vallarþulur og stuðningsmaður Selfoss til áratuga, Eva Lind Elíasdóttir leikmaður meistaraflokks kvenna og Ingi Rafn Ingibergsson leikmaður meistaraflokks karla og starfsmaður knattspyrnudeildar.
    Auðvitað var farið yfir byrjun beggja liða og horft í bollann og spáð í framtíðina. Vinna strákarnir 2. deildina, verða stelpurar bikarmeistarar. Viðmælendur Arnars vildu ekki útiloka neitt.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Sumargleðin, Doctor Victor, Ingó Veðurguð & Gummi Tóta
    1 hr 25 min
  • Selfoss hlaðvarpið #008 - Íslandsmeistarar Edition
    Á þessari stórkostlegu stund fékk Arnar helgi þrjá helvítis meistara í spjall. Fyrirliði vor Hergeir Grímson, nýliðinn sem virðist hafa verið hér frá fæðingu Nökkvi Dan Elliðason og Grímur Hergeirsson aðstoðarþjálfari liðsins komu í heimsókn.
    Í Kaffikrúsarstúdíóinu var óvenjuhátíðleg stemning, enda var Íslandsmeistarabikarinn með í för, bjartur og fagur.
    Þeir töluðu um tilfynningarnar og lífið. Fóru létt yfir úrslitaseríuna og þennan ótrúlega lokaleik. Blésu til brandarakeppni hvaðan allir gengu út sem Íslandsmeistarar. Að endingu var farið djúpt í tónlistaferil Alexanders Más Egan.
    Selfoss Hlaðvarpið óskar Liðinu, deildinni, félaginu, sveitarfélaginu og Suðurlandi Öllu innilega til hamingju með titilinn. #ÞaðMunuRennaTár
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: How You Remind Me, Nickelback
    1 hr 24 min
  • Selfoss hlaðvarpið #007 - This is Where We Stand
    Í þessum þætti fékk Arnar Helgi til sín þrjá góða gesti. Þórir Ólafsson, annar af aðstoðarþjálfurum meistaraflokks karla og kvenna, Helgi Hlynsson, þjálfari Íslandsmeistara 4. flokks Selfoss og fyrrverandi markvörður meistaraflokks og Árni Geir Hilmarsson fyrrverandi leikmaður meistaraflokks.
    Það var létt yfir mannskapnum í Kaffi Krúsar stúdíóinu eftir ótrúleg tíðindi sem borist hafa, en California Club er mættur á matseðil eftir ákall Selfoss Hlaðvarpsins!
    Þeir félagar gerðu upp leikina þrjá við Val í undanúrslitum. Arnar fékk Þóri til að segja okkur frá nálgun þjálfarateymisins á það einvígi. Hitt undanúrslitaeinvígið rætt og spáð í úrslitarimmuna. Fyrir þolinmóða er svo glaðningur í lok þáttar!
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Raunsæ rómantík, Elín Helena
    1 hr 19 min
  • Selfoss hlaðvarpið #006 - Túlípani að vori
    Það bar vel í veiði hjá Arnari Helga þessa vikuna, en hann fékk tvo stórgóða gesti til sín að tala um handbolta. Það voru þeir Hannes, ég meina Hólmar Höskuldsson sem meðal annars hefur verið á línunni hjá Selfoss U í vetur og með honum mætti enginn annar en Einar Sverrisson, stórskytta í meistaraflokki karla.
    Strákunum var ekki gefinn kostur á að tjá sig um eftirlætisrétti sína á Kaffi Krús, en ef við getum í eyðurnar þá hefur ákallið um Kaliforía Club samlokuna vaxið fiskur um hrygg.
    Saman gerðu þeir upp eivígi Selfoss og ÍR sem varð æsilegra en marga hefði grunað. En einnig var farið létt yfir önnur einvígi og spáð í spilin fyrir undanúrslit. Einar sagði söguna í kringum meiðslin sem hann er að berjast við og strákarnir spá í spilin varðandi skólagöngu Hauks Þrastar. Þeir gerðu tilraun til að afgreiða þjálfararáðningu og töluðu aðeins um núverandi þjálfara liðsins, heilagan Patrek.
    Úrslitarimma Selfoss og Vals mun hefjast í Hleðsluhöllinni þriðjudaginn 30. apríl kl 20:15. Við verðum öll þar og hvetjum ykkur hlustendur góðir að missa ekki af þessu.
    Leikur 2 - Föstudag 3. maí kl. 19:30 Hlíðarendi
    Leikur 3 - Mánudagur 6. maí kl. 19:30 Hleðsluhöllin
    Lekur 4 - Fimmtudagur 9. Maí kl. 19:30 Hliðarendi*
    Leikur 5 - Laugardag 11. Maí kl. 20:00 Hleðsluhöllin*
    (óstaðfestir tímar, *ef með þarf)
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Hola í höggi, Gummi Tóta
    1 hr 30 min
  • Selfoss hlaðvarpið #005 - Steinn og eldur
    Upphitun fyrir fótboltasumarið heldur áfram þegar Arnar Helgi tekur á móti Þorsteini Daníel og Arnari Loga, leikmenn meistaraflokks karla.
    Kaffi Krúsar stúdíóið skartaði sínu fegursta og loksins fær brönsinn þá virðngu sem hann á skilið hjá gestum hlaðvarpsins.
    Nú er löngu undirbúningstímabil að ljúka á þessum tímum breytinga hjá strákunum. Þeir fara yfir lestaslysið sem síðasta tímabil var, þær miklu breytingar sem hafa orðið á hópnum, undirbúningstímbailið, 2. deildina sem bíður manna í sumar og Dean Martin. Þá er auðvitað farið yfir svaðilförina til Portúgal, þar sem menn áttu eftir að tala við Guð áður en þeir komust heim á ný.
    Selfoss Hlaðvarpið mun auðvitað fylgjast með hverri hverri hreyfingu strákanna í sumar rétt eins og stelpunum. Við óskum þeim góðs gengis í ástríðunni í 2. deild.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Selfosslagið 2009, Ýmsir
    1 hr 4 min
  • Selfoss hlaðvarpið #004 - Lip sync battle mun sigra
    Arnar Helgi skiptir um gír og hefur upphitun Selfoss hlaðvarpsins fyrir fótboltasumarið. Brynja Valgeirsdóttir og Erna Guðjónsdóttir leikmenn meistaraflokks kvenna fengu sér sæti í Kaffi Krúsar stúdíóinu þar sem þær skáluðu í vatni úr okkar fínustu Ittalaglösum.
    Samstarfsaðili Selfoss hlaðvarpsins er Kaffi Krús, stelpurnar völdu sína eftirlætis rétti, hið exotíska Krúsar salat og Ostapizzuna "Say cheese". Hvoru tveggja rétt svör, en spurningin er auðveld þar sem það eru engin röng svör.
    Farið var létt yfir síðasta tímabil og æfingatímabilið krufið. Farið yfir hvaða leikmenn við höfum kvatt og hverjar koma nýjar inn. Stelpurnar sögðu góðar sögur af æfingaferðinni þeirra til spánar og Arnar fékk þær til að spá aðeins í tímabilið framundan.
    Selfoss hlaðvarpið er fullt tilhlökkunar fyrir sumrinu að fá að fylgjast með stelpunum okkar berjast í Pepsi Max deildinni.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Hatrið mun sigra, Hatari
    45 min
  • Selfoss hlaðvarpið #003 - Bjartasta vonin
    Í þessum þriðja þætti Selfoss hlaðvarpsins fékk Arnar Helgi Magnússon til sín þrjá góða gesti í Kaffi Krúsar stúdíóið. Örn Þrastarson, þjálfara meistaraflokks kvenna, nokkura annara liða Selfoss og kennara í handboltaakademíunni, Gísla Felix Bjarnason, grunnskólakennara og goðsögn í lifandi lífi og Árna Þór Grétarsson, skrifstofurafvirkja og starfsman áróðursdeildar Selfoss handbolta.
    Selfoss hlaðvarpið vill koma sérstökum þökkum á framfæri á Kaffi Krús og við getum með góðri samvisku mælt með svo til öllu sem þar er boðið upp á.
    Örn ræddi um hvað gekk vel og hvað ekki, hvað gerist næst, hver næsta stórstjarna Selfoss sé og allt um álagið sem því fylgir að vera efnilegasti þjálfari landsins.
    Olísdeildin var gerð upp með almennari hætti bæði hjá stelpunum og strákunum okkar. Síðustu leikir ræddir og spáð í fyrstu umferð úrslitakeppninar. Spáð í spilin fyrir Landsleikina framundan og teiknað upp hvaða þýðingu þeir hafa.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Sonur Satans, Mánar
    1 hr 23 min
  • Selfoss hlaðvarpið #002 - Vonin verður að veruleika
    Arnar Helgi Magnússon fékk góða gesti til að fara yfir stöðu mála og hita upp fyrir stórleik Selfoss og Hauka. Gestir þáttarins voru rándýrir að þessu sinni, Sebastian "Basti knows" Alexandersson og Andri "Krummi" Hallsson.
    Svona dýrt prógram væri ekki möguleg án stuðnings en þessi þáttur er í boði Red Bull, en kunnugir segja að Red Bull veiti vængi
    Farið er yfir tíma Basta hjá Selfossi, stöðu mála hjá kvennaliði Selfoss og síðasta leik karlaliðs Selfoss. Hitað vel upp fyrir stórleikinn gegn Haukum, farið yfir ógnir og tækifæri. Allt þetta og meira til með útúrdúrum og bransasögum.
    Við hvetjum alla til að fjölmenna á leikinn gegn Haukum á Sunnudaginn 24. mars kl 19:30. Og helst að taka fulla upplifun á þetta og mæta í Selið kl 18:00, fá sér borgara skeggræða við annað stuðningsfólk og sjá þjálfarafund.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: 1 2 Selfoss, Love Guru
    1 hr 9 min
  • Selfoss hlaðvarpið #001 - Selfoss 'Til I Die
    Fyrsti þáttur Selfoss Podcastsins undir stjórn Arnars Helga Magnússonar. Gestir þáttarins að þessu sinni voru handboltagoðsögnin Gísli Felix Bjarnason, línumaðurinn knái í U-liði Selfoss Hólmar "H2" Höskuldsson og tæknitröll SelfossTV Árni Þór Grétarsson.
    Í þessum fyrsta þætti er rætt um handboltaliðin okkar, það sem búið er af tímabilinu á öllum vígstöðvum og framhaldinu velt upp.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Draumaland, Sælan
    1 hr 18 min

About Selfoss Hlaðvarpið

From the publisher's feed

Podcast by Selfoss Hlaðvarpið