Selfoss Hlaðvarpið

Selfoss Hlaðvarpið

By Selfoss HlaðvarpiðSports
Download on the App Store

Selfoss Hlaðvarpið episodes

  • Selfoss hlaðvarpið #019 - Línumannafélagið heldur aga á ungu leikmönnunum
    Nýtt ár, nýtt upphaf. Selfoss hlaðvarpið er loks risið úr dvala eftir jól og EM. Arnar Helgi fékk þrjá fróða tappa með sér í Kaffi Krúsar-stúdíóið. Þar má fyrstan nefna Atli Ævar Ingólfsson, sem sumir segja besta línumann landsins. Með honum komu fastagestirnir Þórir Ólafsson, betur þekktur sem hornamaðurinn knái og Gísli Felix Bjarnason, grunnskólakennari, goðsögn og gangandi alfræðiorðabók um handbolta.
    Selfoss hlaðvarpið er ákveðið í að mæta á Kaffi Krús á sunnudaginn og taka leikdags-kjúklingapasta fyrir leikinn hjá stelpunum um kvöldið. Atli Ævar er aðdáandi pizzunar á Krúsinni og talaði um að hann væri að rúlla í gegnum matseðilinn.
    Strákarnir töluðu um framistöðu Selfyssinganna okkar á EM, þjálfaramálin sem eru aftur eru komin í brennidepilinn, meistaraflokkana okkar þrjá og Atli Ævar svaraði nokkrum spurningum dyggra aðdáenda.
    1 hr 22 min
  • Selfoss hlaðvarpið #018 - Kom ég ekki í janúar?!?
    Nú þegar liða fer að Jólum fannst okkur tilvalið að fara yfir málin með góðum gestum, en það er nákvæmlega það sem Arnar Helgi gerði. Í Kaffi Krúsar-stúdíóið mættu þeir Nökkvi Dan Elliðason, Örn Þrastarson og Gísli Felix Bjarnason. Eðal drengir sem ekki þarf að draga orðin upp úr þegar kemur að því að tala um handbolta.
    Selfoss hlaðvarpið mælir eindregið með því að fólk njóti aðventunnar og skelli sér á Kaffi Krús, en þar eru tveir Jólaréttir í boði þessa dagana. Annars vegar Jóladiskur, sem er nánast jólahlaðborð á einum disk. Hins vegar Hreindýraborgari, sem er einn sá girnilegasti sem sést hefur á Instagram.
    Farið var yfir síðustu leiki strákanna og stelpnanna okkar. Stigasöfnunin skoðuð og auðvitað var spáð í framtíðina. Nökkvi kom með stærðfræðilega nálgun. Landsliðshópurinn skoðaður og Gumma Gumm gefin góð ráð.
    Annað sem Selfoss hlaðvarpið mælir með er Sofballmót Selfoss. Það verður haldið í Hleðsluhöllinni 18. janúar og er öllum opið, 16 ára og eldri. Skráning er hjá [email protected] sem og hjá Atla Kristins. Hvetjum alla til að taka þátt, konur og karla, vinahópa, vinnustaði, árganga ofl. Þrátt fyrir það sem fram kemur í þættinum er áherslan á gleðina og er þetta eitthvað sem allir eiga að ráða við. Það er jú gaman í handbolta!
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Fyrir jó, Björgvin Halldórsson og Svala Björgvins
    1 hr 34 min
  • Selfoss hlaðvarpið #017 - Kjúklingarnir stíga upp
    Það er allt of langt um liðið frá síðasta alvöru handboltaþætti og því höfðu gestir Arnars Helga um margt að tala. Gestir hans í dag voru Magnús Öder Einarsson leikmaður meistaraflokks karla, Árni Geir Hilmarsson þjálfari U-liðsins og aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna og síðastur en ekki sístur Þórir Ólafsson fyrrverandi aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og núverandi spekingur Selfoss hlaðvarpsins.
    Búið var að keyra jólaljósin í gang í Kaffi Krúsarstúdíóinu, enda jólaljósin kveikt á Selfossi í dag. Jólabjórinn er dottinn á krana á Krúsinni og fer ljómandi vel með bæði pizzu og borgara.
    Farið var yfir síðustu mánuði heildstætt hjá öllum liðum, velt vöngum yfir því hvernig hægt sé að bregðast við nýuppkomnum meiðslum Árna Steins. Létt umræða um ungu strákana sem eru að fá fyrstu alvöru tækifærin sín. Eru einhverjar lausnir á því að Haukur sé óvænt tekinn úr umferð? Eru stelpurnar okkar á leiðinni upp um deild? Af hverju er Maggi ekki á leiðinni á EM?
    Leikir liða Selfoss fram að áramótum verða:
    Mfl. karla:
    Sun 24. nóv 18:00 Fjölnir - Selfoss
    Mán 2. des 19:30 Selfoss - FH
    Lau 7. des 16:00 ÍR - Selfoss
    Mán 16. des 19:30 Selfoss - Valur
    Mfl. kvenna
    Sun 1. des 19:30 Selfoss - Stjarnan U
    Lau 7. des 16:30 Fram U - Selfoss
    U-liðið
    Lau 23. nóv 16:00 Selfoss U - Þór U
    Mán 25. nóv 20:15 Fram U - Selfoss U
    Fös 13. des 19:30 Selfoss U - Kría
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Ostatnia nocka, Yugopolis & Maciej Maleńczuk
    1 hr 17 min
  • Selfoss hlaðvarpið #016 - Haukur Þrastar Special!
    Þau tíðindi bárust í gær að Haukur okkar Þrastarson hefur ákveðið að ganga til liðs við Pólska stórliðið Vive Kielce næstkomandi sumar. Arnar Helgi fékk Hauk í smá spjall í Kaffi Krúsarstúdíóinu af þessu tilefni.
    Upphafs- og lokastef: Sælan, Skítamórall
    15 min
  • Selfoss hlaðvarpið #015 - Uppgjör tímamótatímabils
    Það er kannski liðinn mánuður síðan fótboltasumrinu lauk en það stoppaði Arnar Helga ekki í því að fá til sín tvo góða gesti að gera upp sumarið og horfa aðeins inn í framtíðina. Gestir þáttarins voru þeir Einar Ottó Antonsson, heimspekingur og aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og Guðmundur Karl Sigurdórsson í meistaraflokksráði kvenna og lífskúnstner.
    Óhætt er að segja að Ottó og Gummi Kalli hafi bæst í hóp aðdáenda Kaffi Krúsar stúdíósins. Við mælum með því við þá og ykkur öll að tékka á Chicken Alfredo kjúklingapastanu, létt en á sama tíma afar bragðgott.
    Þeir stikluðu á stóru yfir hæðir og lægðir sumarsins sem leið. Stelpurnar skrifuðu söguna þegar þær unnu bikarinn og strákarnir náðu ákveðnum áfanga í sínum uppbyggingarfasa. Þeir horfðu einnig fram á veginn og veltu vöngum yfir því hvort þar leyndist ljós. Allt á léttu nótunum eins og vera ber!
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Raunsæ rómantík, Elín Helena
    1 hr 5 min
  • Selfoss hlaðvarpið #014 - Evrópa kallar, moli frá Malmö
    Handboltinn er kominn á fulla ferð og nú standa strákarnir í ströngu í Evrópu. En þeir eru nú staddir í Malmö þar sem þeir eiga leik fyrri leik í 2. umferð EHF Cup.
    Krakkarnir á SelfossTV eltu auðvitað liðið til Svíþjóðar og náði Arnar Helgi að góma nokkra úr liðinu í stutt spjall í lobbýinu á hótelinu. En það voru að stoðarþjálfarinn Örn Þrastarson, fyrirliðinn Hergeir Grímsson, lífsþjálfarinn Nökkvi Dan Elliðason.
    Þeir fóru yfir ferðalagið, leikinn sem þeir voru á leiðinni í og við hverju búast megi við af sænska liðinu. Einnig var talað um álagið sem framundan er og að lokum biðluðu þeir til Selfyssku þjóðarinnar að mæta í Hleðsluhölllina þegar Malmö kemur í heimsókn á laugardaginn næsta.
    Næstu leikir hjá Selfossliðunum eru:
    Mfl. karla: Malmö - Selfoss Laugardagur 5. okt kl. 14:00 Baltiska Hallen
    Mfl. karla: ÍBV - Selfoss Miðvikudagur 9. okt kl. 18:30 Vestmannaeyjar
    Mfl. kvenna: ÍR - Selfoss Föstudagur 11. okt kl. 19:15 Austurberg
    Mfl. karla: Selfoss - Malmö Laugardagur 12. okt kl. 12. okt kl. 18:00 Hleðsluhöllin
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Winner takes it all, Abba
    19 min
  • Selfoss hlaðvarpið #013 - Handboltinn er farinn að rúlla!
    Handboltinn er farinn í gang, loksins segja sumir og þar á meðal viðmælendur Arnars Helga í þessum þætti. Að þessu sinni mættu í hljóðverið þeir Einar Sverrisson, stórskytta á batavegi, Þórir Ólafsson, hornamaðurinn knái og fyrrverandi aðstoðarþjálfari mfl. karla og kvenna og Hólmar Höskuldsson, fjölmiðlamaður á Vísi og eitraður línumaður U-liðs Selfoss.
    Arnar kom beint af Kaffi Krús í Kaffi Krúsar-stúdíóið og var því eðlilega í góðum gír. Við lifum enn eftir því sem Kolbeinn kafteinn kenndi okkur í síðasta þætti, win or lose, go to Kaffi Krús.
    Fyrstu leikir tímabilsins hjá strákunum og stelpunum voru gerðir upp. Farið yfir breytingar á leimannahópunum og hreyfingar í þjálfaraliðinu. Spárnar skoðaðar og gerð tilraun til að rýna í framtíðina. Spurningum eins og "hvað tekur Magnús Öder í bekk?" varpað fram en ekki svarað, en það þarf að velta þessum steinum!
    Næstu leikir hjá Selfossliðunum eru:
    Mfl. kvenna: Víkingur - Selfoss Föstudagur 20. sept kl. 19:30 Víkin
    Mfl. karla: Valur - Selfoss Laugardagur 21. sept kl. 20:15 Origohöllin á Hlíðarenda
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Kenya, Ingó Tóta
    1 hr 12 min
  • Selfoss hlaðvarpið #012 - Tíu ár frá fyrsta úrvalsdeildarsætinu
    Það var vinaleg yfirtaka í Kaffi Krúsar stúdíóinu að þessu sinni, en þeir félagar Einar Matthías Kristjánsson og Már Ingólfur Másson sáu um þessa hátíðarútgáfu af Selfoss hlaðvarpinu í tilefni af því að 10 ár eru liðin frá því að Selfoss komst í deild þeirra bestu. Með þeim í hljóðverið mættu þeir Jón Steindór Sveinsson fyrirliði Selfoss sumarið 2009 og núverandi formaður knattspyrnudeildar Selfoss og Gunnlaugur Jónsson þjálfari Selfossliðsins sumarið 2009.
    Kaffi Krúsar stúdíóið var lofaði í hástert og þökkum við fyrir það og tökum við keflinu að blása lífi í gamla slagorðið: "Win or lose, go to Kaffi Krús!"
    Strákarnir fóru yfir bakgrunn hópsins sem lék með Selfoss þetta frábæra sumar. Því næst var farið ítarlega yfir tímabilið og skemmtilegar sögur rifjaðar upp og ekki var hægt að sleppa því að ræða um vistaskipti Gulla í lok tímabils. Óhemju góð upprifjun á einu skemmtilegasta tímabili í manna minnum.
    P.S. Vegna tæknilegra örðugleika þá hljómar Jón Steindór ekki eins vel og til stóð, en eigum við ekki að segja að því hafi verið bjargað í horn.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Manstu, Hjálmar (2009)
    1 hr 24 min
  • Selfoss hlaðvarpið #011 - Skemmtilegasta vika ársins
    Hápunktur fótboltasumarsins á Selfossi verður um næstu helgi þegar meistaraflokkur kvenna leikur til úrslita í Bikarkeppni KSÍ gegn KR.
    Arnar Helgi fékk frábæra gesti í Kaffi Krúsarstúdíóið þetta ágústkvöld. En þau Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari og Hólmfríður Magnúsdóttir leikmaður og reynslubolti Selfossliðsins mættu í létt spjall yfir kaffibolla.
    Þemað í þessu spjalli var auðvitað bikarúrslit. En einnig fóru gestirnir aðeins yfir gengið í deildinni í sumar. Fríða talaði um aðkomu sína að Selfossliðinu og hlutverk.
    Selfoss hlaðvarpið hvetur Sunnlendinga alla til að mæta á bikarúrslitaleikinn sem fram fer á Laugardalsvelli á laugardaginn 17. ágúst kl. 17:00. Stuðningsfólk Selfoss ætlar að hita upp fyrir leikinn á Hótel Selfossi frá kl. 13:00 og þaðan fara sætaferðir kl. 15:00. Áfram Selfoss!!
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Selfoss er, Sniglabandið
    50 min
  • Selfoss hlaðvarpið #010 - Nýr þjálfari horfir inn á við
    Handboltinn er búinn að vera í sumarfríi frá maílokum, en þó er eitt og annað búið að vera í gangi. Þar ber auðvitað hæst ráðning á nýjum þjálfara meistaraflokk karla.
    Arnar Helgi fékk til sín þjálfarann nýráðna, Grím Hergeirsson og hans hægri hönd Örn Þrastarson. Alvöru byssur í Kaffi Krúsar stúdíóinu þessa kvöldstund.
    Farið var yfir þessar vikur sem liðið hafa frá Íslandsmeistaratitlinum. Farið yfir aðdraganda ráðningarinnar og gaman að heyra Grím fara yfir það hvernig hann sér hlutina. Örn talar um sitt nýja hlutverk og um markmiðasetningu fyrir meistaraflokk kvenna. Þeir tala aðeins um Evrópukeppnina og umræðuna í kringum Hauk Þrastar og U21. Arnar fékk þá svo til að tala um leikmannamál og fara yfir teymið, leynist kannski sprengja í þættinum? Ef til vil talað um einhvern svaka player?
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Selfoss, GusGus
    1 hr 11 min

About Selfoss Hlaðvarpið

From the publisher's feed

Podcast by Selfoss Hlaðvarpið