Selfoss Hlaðvarpið

Selfoss Hlaðvarpið

By Selfoss HlaðvarpiðSports
Download on the App Store

Selfoss Hlaðvarpið episodes

  • Selfoss hlaðvarpið #049 - Suðurlandið nötraði við þúsundasta markið
    Það var þokkalega létt yfir mönnum þegar þeir settust í Smiðjuhljóðverið fljótlega eftir baráttuna um Bergrisann. Arnar Helgi fékk þakmennin Örn Þrastarson og Árna Geir Hilmarsson ásamt þúsund marka manninum Einari Sverrissyni til að gera upp kvöldið og fara yfir það sem liðið er af vetri.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Vetrarfrí, Prins Póló & Memfismafían ft K.óla
    1 hr 5 min
  • Selfoss hlaðvarpið #048 - Changing of the Guards - Eyþór & Þórir kynntir til leiks
    Selfoss hlaðvarpið snýr aftur með sérstakan þátt þar sem nýjir þjálfarar meistaraflokka karla og kvenna í handboltanum eru kynntir til leiks. Það eru þeir Eyþór Lárusson sem hefur verið í kringum handboltan á Selfossi frá unga aldri og hins vegar Þórir Ólafsson goðsögn í lifandi lífi, en þó fyrst og fremst reglulegur spekingur í Selfoss hlaðvarpinu.
    Þeir eru báðir að takast á við sín stærstu verkefni í þjálfun til þessa og báðir eru þeir heimamenn. Selfoss hlaðvarpið óskar Eyþóri og Þóri hjartanlega til hamingju með ráðninguna og óskar þeim frábærs gengis.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Í larí lei, Stuðlabandið
    46 min
  • Selfoss hlaðvarpið #047 - Besti tími ársins
    Selfoss hlaðvarpið unir sér ekki hvíldar þegar handboltinn er kominn á business enda tímabilsins. Frídagur verkalýðsins, 1. maí var Arnari Helga engin fyrirstaða til að setjast niður með góðum gestum til að fara yfir stöðu mála í úrslitakeppninni í Olísdeild karla.
    Í smiðju stúdíóinu í dag voru mættir tveir leikmenn, Fyrirliðinn Hergeir Grímsson og gleðigjafinn Richard Sæþór Sigurðsson. Með þeim fengum við svo í fyrsta sinn Gísla Guðjónsson, bæjarmála frambjóðanda, hestamann, en í dag fyrst og síðast stuðningsmaður Selfoss.
    Strákarnir fóru vel yfir þetta svakalega einvígi sem Selfossliðið fór í gegnum á móti FH, eitt besta 8-liða úrslitaeinvígi í talsverðan tíma. Einvígið sem framundan er á móti Val og svo aðeins um handboltann almennt.
    Úrslitaeinvígi Selfoss og Vals:
    1. leikur - Origo höllin | mán, 2. maí kl 19.30
    2. leikur - Set höllin | fim, 5. maí kl 19.30
    3. leikur - Origo höllin | sun, 8. maí kl 19.30
    4. leikur - Set höllin | mið, 11. maí kl 19.30
    5. leikur - Origo höllin | fös, 13. maí kl 19.30
    Miðasala á alla leikina á Stubbi!
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Enn þá, Skítamórall
    51 min
  • Selfoss hlaðvarpið #046 - Olís22 & Úrslitakeppnin
    Úrslitakeppnin baby! Já vorið er alvöru uppskerutími og nú er úrslitakeppnin að byrja hjá strákunum. Fyrir viku kláruðu stelpurnar okkar sitt verkefni og gerðu það vel.
    Til að fara yfir þetta allt og miklu fleira mætti forfalla fjölmiðlamógúllinn Hjörtur Leó Guðjónsson, en Arnar Helgi fór yfir tjörnina í leit að sól. Hjörtur fékk vægast sagt góða gesti, handboltaheilarnir og þjálfararnir Örn Þrastarson og Árni Geir Hilmarsson mættur en með þeim var Tinna Soffía Traustadóttir, stjörnulínumaður meistaraflokks kvenna og í varnarskiptingu fyrir hana mætti svo Guðmundur Hólmar Helgason, einn besti leikmaður Olísdeildarinnar.
    Strákarnir gerðu tímabilið hjá stelpunum upp með Tinnu Soffíu. Þau fóru létt yfir allt það sem hefur gengið vel og ljónin á veginum. Þá var tekinn snúningur á umræðunni sem hefur verið í gangi um muninn á Olís og Grill deildunum. Eftir innaskiptingu Guðmundar Hólmars var svo tekinn léttur snúningur á lokakafla strákanna í deildinni og henni lokað í bili alla vega. En það sem á hug okkar og hjörtu þessa dagana er úrslitakeppnin sem er að detta í gang.
    Úrslitaeinvígi Selfoss og FH:
    1. leikur - Kaplakriki | fös, 22. apríl kl 19.30
    2. leikur - Set höllin | mán, 25. apríl kl 19.30
    3. leikur - Kaplakriki | mið, 27. apríl kl 19.30
    Miðasala á alla leikina á Stubbi!
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: The Wicker Man, Iron Maiden
    1 hr 6 min
  • Selfoss hlaðvarpið #045 - Vorilmur í handboltanum
    Það er vor í lofti og farið að styttast í öllum deildum handboltans. Arnar Helgi fékk tvo góða gesti í Smiðjustúdíóið, handboltagoðsögnina Þóri Ólafsson og samverkamann hans í þjálfuninni, Árna Geir Hilmarsson. Í lok hlaðvarpsins sló Arnar svo á þráðinn til Svavars Vignissonar, þjálfara meistaraflokks kvenna.
    Mál málanna er auðvitað þessi stóri leikur hjá Selfoss stelpunum okkar sem kallaður hefur verið úrslitaleikur Grill 66 deildarinnar. Það er kannski orðum aukið, eða hvað? En líka létt yfirferð yfir bikarvikuna góðu og þessa leiki sem búnir eru af lokatörninni sem er enn í fullum gangi.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: I wanna Go - Femme Fatale (Deluxe Version), Britney Spears
    53 min
  • Selfoss hlaðvarpið #044 - Bikarvika!
    Smiðjuhljóðverið var stútfullt af gæðum þegar Arnar Helgi hitaði upp fyrir bikarvikuna. Foringi strákanna, Halldór Jóhann Sigfússon mætti ásamt Einari Sverrisssyni. Hjörtur Leó Guðjónsson var þeim svo til halds og traust.
    Í lok þáttar fékk Arnar svo Gísla Felix Bjarnason til að rifja upp eina skiptið sem Selfyssingar léku til úrslita í bikarnum, en 1993 mættu Selfyssingar Val í troðfullri Laugardalshöll. Það er auðvitað óþarfi að rifja upp hvernig það endaði, en strákarnir gera það nú samt.
    Hér er sá hluti dagskrár bikarviku sem snertir okkur Selfyssinga beint:
    Miðvikudagur - Undanúrslit
    20:15 Selfoss - KA
    Föstudagur - Bikarúrslit 3. flokks karla
    18:00 Selfoss - Fram
    Laugardagur - Bikarúrslit
    16:00 Selfoss/KA - Valur/FH
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Sílikon, Skítamórall
    1 hr 2 min
  • Selfoss hlaðvarpið #043 - Þrekvirki Á Hellisheiði
    Smiðjustúdíóið var stútfullt af gæðum þegar Arnar Helgi ýtti á rec, íþróttastjórinn Örn Þrastarson var vitanlega mættur og með honum tveir vinstri hornamenn og yngri flokka þjálfarar, þeir Richard Sæþór Sigurðsson og Hannes Höskuldsson.
    Þeir fóru yfir helstu atriði sem á daga Selfoss handbolta hefur drifið síðustu vikur. Fóru yfir ótímabærar sögur um dauða handboltans á Selfossi og svo átakanleg saga af svaðilför meistaraflokks karla yfir Hellisheiði sunnudagskvöldið síðasta.
    Við minnum að sjálfsögðu á undanúrslitaleik Selfoss og KA sem fram fer á Ásvöllum miðvikudaginn 9. mars kl. 20.15. Við þurfum að mæta öll sem eitt. Við munum gefa eitthvað gott út í næstu viku til að hita betur upp fyrir final4 í bikarviku.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Pyro, Kings of Leon
    58 min
  • Selfoss hlaðvarpið #042 - Ómar bestur í heimi?
    EM lokið, stelpurnar á flugi og Olís að taka á flug á ný. Þetta og fleira fer Arnar Helgi yfir með þeim Þóri Ólafs og Erni Þrastar. Einnig var hrært í símtal til Þýskalands. Þar náði Arnar í Janus Daða Smárason, leikmann þýska úrvalsdeildarliðs Göppingen og leikmann íslenska landsliðsins.
    Allt þetta og meira til í boði Smiðjunnar sem eru ekki bara að bjóða upp á nokkra af bestu íslensku handverksbjórunum, því borgararnir á smiðjunni eru upplifun í brauði.
    Við minnum á næstu leiki Selfyssinga:
    Sun 6. feb | Afturelding - Selfoss | Olís kk
    Mið 9. feb | ÍR - Selfoss | Grill kvk
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Aldrei ein, Skítamórall
    1 hr 11 min
  • Selfoss hlaðvarpið #041 - Ísak fær átta
    Smiðju-hljóðverið var í jólabúning, jólakúlur og notalegheit. Arnar Helgi fékk Örn Þrastar íþróttastjóra og fastagest, örvhenta undrið Ísak Gústafsson og galdramanninn í rammanum, Jón Þórarinn Þorsteinsson.
    Farið var yfir síðustu vikur, spáð lauslega í spilin fyrir EM. Það eru búnar að vera grænar tölur á hlutabréfum í öllum Selfossliðum síðastliðinn mánuð. Auðvitað er farið sérstaklega í U-liða verkefni Selfoss handbolta, enda allir gestir nátengdir því.
    Að lokum leggja Örn og Arnar Helgi stórmóta tengt verkefni fyrir strákana. Selfoss hlaðvarpið óskar hlustendum nær og fjær gleðilegra jóla. Við snúum aftur öðru hvoru megin við nýárið.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Komdu um jólin, Gunni Óla
    1 hr 4 min
  • Selfoss hlaðvarpið #040 - Íþróttastjórinn & Eurogan
    Enn kallar Evrópa og nú fékk Arnar Helgi til sín Örn Þrastarson íþróttastjóra Selfoss handbolta sem og aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Með þeim mætti Alexander Már Egan leikmaður meistaraflokks karla til margra ára þrátt fyrir ungan aldur.
    Já Smiðju-hljóðverið var vel mannað enda fullt til að tala um.
    Upphafsstef: Sælan, Skítamórall
    Lokalag: Ko so lipe cvetele, Orlek
    1 hr 2 min

About Selfoss Hlaðvarpið

From the publisher's feed

Podcast by Selfoss Hlaðvarpið