Sérfræðingurinn

Sérfræðingurinn

Download on the App Store

Sérfræðingurinn episodes

  • Sérfræðingurinn Þórólfur Guðnason - sóttvarnir og Covid 19
    Í dag hófst aftur liðurinn Sérfræðingurinn í Mannlega þættinum. Við munum fá, eins og við gerðum í fyrra og fyrir áramót, fjölbreytta sérfræðinga í þáttinn á fimmtudögum til að fræða okkur um sitt sérfræðisvið og til þess að svara spurningum um það frá hlustendum. Í dag kom til okkar Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir, sem ætti ekki að þurfa að kynna fyrir hlustendum. Hann hefur auðvitað verið í eldlínunni í gegnum allan heimsfaraldurinn, sem sóttvarnarlæknir og auðvitað hluti af þríeykinu fræga, ásamt Ölmu Möller landlækni og Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni. Þau hafa fylgt okkur í gegnum þessa fordæmalausu tíma, á upplýsingafundum Almannavarna og með því að vera stjórnvöldum innan handar við hverja vendinguna á fætur annarri. Nú erum við enn og aftur á einhverskonar tímamótum í glímunni við Covid 19 og því fannst okkur tilvalið að bjóða Þórólfi í þáttinn. Hann sagði okkur frá þessu merkilega tímabil, frá hvernig veiran hefur aftur og aftur komið okkur á óvart, frá þeirri stöðu sem við erum í í dag og svo svaraði hann spurningum sem hlustendur hafa sent til okkar í netfang þáttarins, [email protected].
    45 min
  • Sérfræðingurinn Sóley Tómasdóttir - þolendur og gerendur
    Sérfræðingur vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sóley Tómasdóttir kynja- og fjölbreytileikasérfræðingur. Umræðan undanfarið ætti ekki að hafa farið fram hjá mörgum, til dæmis í kjölfar síðustu tveggja þátta Kveiks á RÚV. Við, samfélagið, erum að feta okkur áfram í umræðu og samtali um kynferðislegt ofbeldi, ábyrgð, afleiðingar og úrlausnir. Þetta er flókin og erfið umræða sem margir hræðast, kannski af því að í gegnum árin hafa þessi mál ekki verið rædd. Þegar #metoo-hreyfingin fór af stað var þögnin rofin. Allir virðast kannast við kynferðislegt ofbeldi, annað hvort á eigin skinni eða í gegnum einhvern nálægt sér. En þrátt fyrir að þögnin hafi verið rofin er ljóst að við kunnum ekki sérstaklega vel að takast á við vandann. Við kunnum að reiðast, að sjokkerast, að vera nóg boðið, en hvað svo? Fjölmargar spurningar vakna, en svörin liggja ekki ljóst fyrir. Hvernig tökum við næstu skref í þessum málum? Í fyrri hluta þáttarins fórum aðeins yfir stöðuna með Sóley og fengum hana til að segja okkur frá sínum störfum. Hún hefur verið með fræðslu á vinnustöðum og stofnunum um ómeðvitaða hlutdrægni og hvernig er hægt að sporna við henni. Í seinni hlutanum svaraði Sóley svo spurningum sem hlustendur hafa sent inn í pósthólf þáttarins [email protected].
    46 min
  • Sérfræðingurinn Þórhildur Bjartmarz - hundar
    Sérfræðingur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þórhildur Bjartmarz hundaþjálfari og fyrrverandi formaður Hundaræktarfélags Íslands. Hún veit gríðarlega mikið um hundaeign á Íslandi sem hún fræddi okkur um í þættinu, og að auki talaði hún um sitt starf sem hundaþjálfari og svo bara um hunda yfirleitt. Í seinni hluta þáttarins svaraði svo Þórhildur spurningum sem hlustendur hafa sent inn í netfang þáttarins [email protected]. Við fengum fjölda spurninga, til dæmis sem viðkoma gelti í hundi, fæði hunda, umhirðu feldsins og spurningar frá fólki sem á ekki hund en er að velta því fyrir sér, þá t.d. hvaða tegund það eigi að fá sér.
    32 min
  • Sérfræðingurinn Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur
    Sérfræðingur vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur. Hún talaði um og kom með ráðleggingar fyrir vetrarverkin, inniplönturnar og fleira. Það þarf að ýmsu að huga á veturna í þessu tilliti og svo í seinni hluta þáttarins svaraði Guðríður spurningum sem hlustendur hafa sent inn á netfang þáttarins, [email protected]. Til dæmis þessum: Er í lagi að klippa tré og runna á þessum tíma? Geta jólaljósin haft neikvæð áhrif á plöntur, t.d. platað þær til að fara að vaxa? Er of seint að setja niður haustlauka? Má rækta þá í pottum? Þessum spurningum og fleirum svaraði Guðríður í þættinum í dag.
    33 min
  • Sérfræðingurinn Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfari
    Sérfræðingur vikunnar í Mannlega þættinum var sjúkraþjálfarinn góðkunni Gunnar Svanbergsson. Margir eru orðnir stirðir og stífir eftir alla þessa inniveru vegna heimsfaraldursins, vegna heimavinnu við tölvuna og svo mætti lengi telja upp. Nú er að skella á vetur sem takmarkar að einhverju leyti útiveru en þá er nú gott að geta leitað í viskubrunn sjúkraþjálfarans en Gunnar sagði okkur í fyrri hlutanum frá til dæmis sambandi öndunar og streitu og í seinni hlutanum svaraði hann spurningum sem hlustendur sendu inn í pósthólf þáttarins [email protected].
    31 min
  • Sérfræðingurinn Sigríður Birna - hinsegin, kynsegin og trans
    Sérfræðingur Mannlega þáttarins í dag var Sigríður Birna Valsdóttir ráðgjafi hjá Samtökunum?78. Hún hefur í sínu starfi sinnt ráðgjöf fyrir ungt transfólk, kynsegin og hinsegin og aðstandendur. Samtökin hafa heimsótt starfsfólk skóla og annarra vinnustaða og frætt það um hinsegin og kynsegin málefni, og málefni transbarna og ungmenna. Við fengum Sigríði Birnu til að segja okkur frá sínu starfi og hvernig umræðan um hinsegin málefni hefur breyst í gegnum tíðina. Í seinni hluta þáttarins svaraði Sigríður Birna svo spurningum sem hlustendur hafa sent til okkar í pósthólf þáttarins [email protected]. Til dæmis spurningar eins og geta börn vitað að þau eru trans? Er ekki gott að bíða þar til þau eru eldri? Hvað er kynsegin? Geta börn verið kynsegin? Er möguleiki fyrir 10/11 ára gamalt barn að vita að það er non-binary? Þessum spurningum og fleirum svaraði Sigríður Birna í þættinum.
    34 min
  • Sérfræðingurinn Simmi smiður, rakaskemmdir og mygla
    Í eins og aðra fimmtudaga kom sérfræðingur í Mannlega þáttinn. Í þetta sinn var það Sigmundur Grétar Hermannsson, eða Simmi smiður. Í starfi sínu sem smiður sinnir hann viðhaldi húsa, forvörnum á húsum og hann þekkir vel til rakaskemmda og myglu í húsnæði. Í fyrri hluta þáttar fengum við Sigmund til að segja okkur frá sínu starfi og helstu verkefnum og svo í síðari hlutanum svaraði hann spurningum sem hlustendur hafa sent inn í þáttinn á netfangið okkar, [email protected].
    33 min
  • Sérfræðingurinn Eggert um áhættustýringu í heimilisbókhaldinu
    Sérfræðingurinn í Mannlega þættinum í þetta sinn var Eggert Þröstur Þórarinsson aðstoðarframkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands og forstöðumaður þjóðhagsvarúðar. Hann hefur talað um áhættustýringu í heimilisbókhaldi og það er einmitt heimilisbókhaldið sem við einbeitum okkur að í dag með Eggerti. Í fyrri hluta þáttarins sagði hann okkur frá sínu starfi og fræddi okkur um áhættustýringu í heimilisbókhaldi og í seinni hlutanum svaraði Eggert spurningum sem hlustendur sendu inn í pósthólf þáttarins, en netfangið er [email protected].
    31 min
  • Sérfræðingurinn Ingibjört Th Hreiðarsdóttir yfirljósmóðir
    Í dag hófst aftur dagskrárliðurinn Sérfræðingurinn í Mannlega þættinum og verður hann á dagskrá á fimmtudögum í vetur. Sérfræðingur dagsins var Ingibjörg Th. Hreiðarsdóttir yfirljósmóðir ? meðgönguvernd, fósturgreining og bráðaþjónusta kvennadeildar á Landspítalanum. Hennar sérgrein er sykursýki á meðgöngu en hún er sjálf móðir tæplega 18 ára stúlku sem greindist 20 mánaða með týpu 1 sykursýki. og við byrjuðum einmitt á því að ræða um það og svo hennar starf sem ljósmóðir. Sem sagt í fyrri hlutanum sagði hún okkur frá sínu starfi og í seinni hlutanum svaraði hún spurningum sem hlustendur sendu inn á netfang þáttarins [email protected].
    33 min
  • Sérfræðingurinn Gunnar Dofri - fasteignaviðskipti
    Í þetta sinn var sérfræðingur Mannlega þáttarins Gunnar Dofri Ólafsson. Hann starfar fyrir Sorpu sem sérfræðingur í samskiptum og samfélagsvirkni og heldur úti hlaðvarpinu Leitin að peningunum. Í því fer hann yfir fjármál einstaklinga og fjölskyldna, heimilisfjármálin. Af hverju sumum virðist alltaf takast að spara pening á meðan öðrum gengur það mjög illa. Hann þekkir vel fasteignamarkaðinn, fasteignaviðskipti og fasteignalán. Í fyrri hluta þáttar fengum við hann til að segja okkur frá sínu starfi og því helsta sem hann hefur verið að fjalla um í hlaðvarpsþáttunum og í síðari hluta þáttar svaraði hann spurningum sem hlustendur okkar hafa sent inn á netfang þáttarins, [email protected]. Flestar þær spurningar sneru einmitt að fasteignaviðskiptum, sem eru svo stór kostnaðarliður í heimilisbókhaldi svo margra
    46 min

About Sérfræðingurinn

From the publisher's feed

Sérfræðingurinn er nýr liður í Mannlega þættinum í dag þar sem sérfræðingar þáttarins svara spurningum hlustenda. Við fáum kynlífsráðgjafa, lækni, geðlækni, sjúkraþjálfara o.s.frv.