Sérfræðingurinn

Sérfræðingurinn

Download on the App Store

Sérfræðingurinn episodes

  • Sérfræðingurinn Dr. Janus Guðlaugsson - Heilsuefling
    Sérfræðingurinn okkar þessa vikuna var Dr. Janus Guðlaugsson sem stofnaði Janus-heilsuefling ráðgjafa- og þjónustufyrirtæki sem vinnur að bættri heilsu og betri lífsgæðum eldri borgara. Fyrirtækið var stofnað árið 2016 til að nýta niðurstöður doktorsrannsóknar Dr. Janusar Guðlaugssonar, Fjölþætt heilsurækt: Leið að farsælli öldrun. Janus fór yfir þessi mál í þættinum og svaraði spurningum hlustenda til dæmis um það að efla hreyfifærni og bæta styrk og þol. Og hvað er best að gera til að geta tekist á við athafnir daglegs lífs í framtíðinni og geta búið lengur í sjálfstæðri búsetu og notið lífsins?
    38 min
  • Sérfræðingurinn Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir
    Í þetta sinn var Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir og skólastjóri Streituskólans sérfræðingurinn Mannlega þáttarins. Við höfum fengið sendar spurningar og svo ræddum við við hann um aðstæðurnar sem við erum öll að ganga í gegnum núna, vegna COVID-19. Þegar nýjar reglur eru settar með stuttum fyrirvara, eftir að hafa komist í gegnum fyrstu bylgjuna og sá góði árangur sem náðist í vor, þá rennum við nánast aftur í sama farið. Margir hafa áhyggjur af afkomu sinni og auðvitað af heilsunni. Það var um nóg að tala við Ólaf Þór geðlækni í dag.
    25 min
  • Sérfræðingurinn Axel F. Sigurðsson - hjartaheilsa
    Í dag er fimmtudagur og í dag fengum við sérfræðing í Mannlega þáttinn eins og aðra fimmtudaga. Í þetta sinn var það Axel F. Sigurðsson, hjartalæknir. Hann svaraði spurningum sem hlustendur hafa sent inn til okkar og fræddi okkur almment um hjartaheilsu og algengustu vandamálin.
    30 min
  • Sérfræðingurinn Valdís I. Jónsdóttir - Röddin
    Sérfræðingurinn Mannlega þáttarins í dag var Valdís Ingibjörg Jónsdóttir raddfræðingur og talmeinameinafræðingur og áherslan hjá okkur var á röddinni. Hvernig getum við passað uppá röddina? Hvernig fer það með röddina að td. syngja í tóntegund sem er manni ekki eðlileg, t.d. þegar fullorðnir syngja í raddhæð barna eins og oft er gerst á yngri stigum grunnskóla? Hvað eru mútur og af hverju eru raddir karla dimmari en kvenna? Má maður öskra? Hvers vegna er svona almennt lítil þekking á röddinni og raddbeitingu? Við komum ekki að tómum kofanum hjá Valdísi og hún svaraði þessum spurningum hlustenda.
    28 min
  • Sérfræðingurinn Kristján Sverrisson - Heyrnin
    Það er fimmtudagur í dag og við héldum áfram með sérfræðinginn í Mannlega þættinum. Í dag kom til okkar Kristján Sverrisson, forstjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands. Við veltum heyrninni fyrir okkur með honum, hver eru algengustu vandræðin sem fólk glímir við og við forvitnuðumst einnig um starfsemi Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar. Heyrnartæki, suð í eyrum og almennar spurningar sem viðkoma heyrninni mun hann leitaðist við að svara fyrir hlustendur og okkur.
    28 min
  • Sérfræðingurinn Ólafur Már Björnsson augnlæknir
    Sérfræðingurinn var á dagskrá hjá okkur í dag eins og alltaf á fimmtudögum þetta haustið. Ólafur Már Björnsson augnlæknir kom til okkar og svaraði spurningum sem hlustendur hafa sent til okkar undanfarna daga og við erum sérlega ánægð með hversu margir eru farnir að kveikja á þessu og nýta sér ráðgjöf sérfræðinga þáttarins. Táraleki, augnbotnar og augnsteinaskipti eru meðal þess sem spurt var um í dag en Ólafur talaði líka almennt um augnheilsu og hvað við getum gert til að hugsa vel um augun okkar.
    28 min
  • Sérfræðingurinn Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir
    Sérfræðingurinn í dag var lyf- og öldrunarlæknirinn Ólafur Þór Gunnarsson. Oft er það svo að eldra fólk fær marga sjúkdóma samtímis, eða glímir við marga langvinna sjúkdóma sem þá safnast í sarpinn með hækkandi aldri. Algeng dæmi um þetta eru alls konar stoðkerfisvandamál, hjarta- og æðasjúkdómar, minnissjúkdómar eins og Alzheimers, þvagfæravandamál , geðræn vandamál, tauga- og skyntruflanir, lungnasjúkdómar, sýkingar, innkirtlavandamál ofl. Sjúkdómar eldra fólks leiða oft til færniskerðingar, og þess vegna er endurhæfing mjög mikilvægur þáttur í starfi öldrunarlækna. Við ræddum við Ólaf um öldrunarlækningar í þættinum í dag og hann svaraði spurningum hlustenda sem hafa sent þær með tölvupósti og Guðný Kristrún Óskarsdóttir bar meira að segja upp tvær spurningar í beinni útsendingu í gegnum símann.
    26 min
  • Sérfræðingurinn Jósep Blöndal, háls- og bakvandamál
    Við hófum aftur í dag dagskrárliðinn Sérfræðingurinn. Við munum fá á fimmtudögum sérfræðinga til þess að svara spurningum hlustenda og í dag fengum við lækninn Jósep Blöndal, einn helsta sérfræðing landsins í háls- og bakvandamálum. Hann hefur starfað í áratugi í Stykkishólmi hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands, þar sem hann var yfirlæknir. Við spjölluðum aðeins við hann um hans störf og reynslu og svo svaraði Jósep spurningum hlustenda sem við höfum fengið send á netfang þáttarins.
    30 min
  • Aldís Þorbjörg kynlífsráðgjafi - Sérfræðingur dagsins
    Sérfræðingurinn er nýr liður í Mannlega þættinum í dag þar sem sérfræðingar þáttarins svara spurningum hlustenda. Við fáum kynlífsráðgjafa, lækni, geðlækni, sjúkraþjálfara o.s.frv.
    Í dag var sérfræðingurinn Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir, kynlífsráðgjafi, hún svaraði spurningum hlustenda um kynlíf.
    Hlustendur geta sent okkur tölvupóst með spurningar á [email protected] eða bara hefðbundinn póst eftir gamla laginu á: Mannlegi þátturinn, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík. Ef hlustendur óska þess þá berum við fram spurningar þeirra án þess að geta nafns þeirra, fyllsta trúnaði heitið.
    10 min

About Sérfræðingurinn

From the publisher's feed

Sérfræðingurinn er nýr liður í Mannlega þættinum í dag þar sem sérfræðingar þáttarins svara spurningum hlustenda. Við fáum kynlífsráðgjafa, lækni, geðlækni, sjúkraþjálfara o.s.frv.