Sérfræðingurinn

Sérfræðingurinn

Download on the App Store

Sérfræðingurinn episodes

  • Sérfræðingurinn Elísbet Reynisdóttir - næringafræði
    Sérfræðingur Mannlega þáttarins í dag var Elísabet Reynisdóttir næringafræðingur og næringaþerapisti. Eftir erfið veikindi fór hún til Danmerku að læra næringaþerapíu í rauninni til að bjarga sjálfri sér eins og hún segir sjálf. Eftir að hún kom aftur til Íslands lærði hún næringarfræði í H.Í. ogkláraði þar master í næringarfræði. Hún hefur lagt áherslu á lífsstílstengda sjúkdóma og næringu og hún segir að hún hafi uppgötvað í starfi sínu hvað andlegi þátturinn er mikilvægur þegar kemur að heilsutengdum ákvörðunum. Elísabet sagði okkur sína sögu og frá starfi sínu í fyrri hluta þáttar og í síðari hlutanum svaraði hún spurningum sem hlustendur sendu inn í netfang þáttarins [email protected]
    UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    48 min
  • Sérfræðingurinn Guðrún Rakel - kulnun
    Í þetta sinn var sérfræðingur Mannlega þáttarins Guðrún Rakel Eiríksdóttir sálfræðingur og verkefnastjóri á sviði kortlagninga- og forvarna hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði. Hennar starf felst meðal annars í því að fara yfir beiðnir hjá fólki sem leitar til VIRK til þess að greina hvar vandinn liggur svo viðkomandi fái rétt úrræði, það er að segja að starfsendurhæfingarferillinn sé réttur fyrir viðkomandi. Þetta getur verið flókið, því skilgreiningar á hugtakinu kulnun eru til dæmis um 100 í erlendum rannsóknum. Hún segir að það sé mjög fjölbreyttur hópur sem leitar til VIRK vegna kulnunar í starfi, því skipti miklu að greina vanda hvers og eins rétt. Við fengum Guðrúnu Rakel til að útskýra þetta fyrir okkur betur í þættinum. Og í seinni hluta þáttarins svaraði hún spurningum sem hlustendur höfðu sent inn á netfang þáttarins, [email protected].
    40 min
  • Sérfræðingurinn Kári Stefánsson - langlífi
    Samkvæmt tölum Hagstofunnar frá árinu 2016 var meðalævilengd karla á Íslandi 80,7 ár og meðalævilengd kvenna 83,7 ár. Þessar tölur hafa hækkað stöðugt síðustu hundrað ár. Í þættinum í dag ætlum við að velta því fyrir okkur hversu lengi það getur haldið áfram. Og það sem meira er, geta framfarir í læknavísindum undanfarið jafnvel gefið okkur von um að mannfólkið geti lifað talsvert lengur? Jafnvel orðið 150 ára eða eldri? Það sem kveikti áhuga okkar á þessu var að einn þekktasti vísindamaður í heiminum á þessu sviði, David Sinclair hjá læknadeild Harvard háskóla, hefur talað um það í ræðu og riti að ekki sé nóg með að hægt sé að hægja á og jafnvel stöðva aldurstengda hrörnun líkamans, heldur sé jafnvel hægt að snúa slíkri þróun við. Í rauninni sé hægt að yngja fólk samkvæmt þessu. Þetta, ef satt reynist, er auðvitað einhver stærsta frétt sem hefur komið fram og þetta snertir alla, eða hlýtur að gera það. Þá var ekkert annað að gera en að fá okkar þekktasta vísindamann til þess að fara með okkur yfir það hvað væri til í þessu. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar kom í þáttinn í dag og fór yfir það hvort honum fyndist eitthvað til í þessu og hvort þessar fullyrðingar Sinclair héldu vatni. Er 150 ára mannfólk handan við hornið?
    Sérfræðingur Mannlega þáttarins í þetta sinn var óhefðbundinn í þetta sinn, þ.e. líflegar samræður um langlifi, erfðir og mannskepnuna, en í þetta sinn var hlustendum ekki gefið færi á að senda inn spurningar.
    31 min
  • Sérfræðingurinn Fríða Rún - næringarfræði
    Í þetta sinn var sérfræðingur Mannlega þáttarins Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingur. Öll þurfum við að borða og næra okkur, samt er svo merkilegt að við látum ekki endilega það ofan í okkur sem er best fyrir okkur. Og stundum jafnvel það sem við vitum að er alls ekki gott fyrir okkur og líkamann, en samt gerum við það. Við festumst gjarnan í mynstri sem er erfitt að komast útúr. Gylliboð og kraftaverkakúrar sem lofa öllu fögru eru við hvert fótmál. Því var forvitnilegt að fræðast með Fríðu Rún um næringu og mataræði í þættinum í dag og í seinni hlutanum gerði Fríða sitt besta til að svara spurningum hlustenda sem hafa borist okkur í netfang þáttarins, [email protected]. Þær spurningar sem hún náði ekki að svara ætlar hún að svara við fyrsta tækifæri á www.heilsutorg.is
    38 min
  • Sérfræðingurinn Gunnar Svanbergsson - sjúkraþjálfari
    Sérfræðingur Mannlega þáttarins í þetta sinn var sjúkraþjálfarinn Gunnar Svanbergsson sem svaraði spurningum frá hlustendum. Spurningarnar sem við fengum sendar á netfang þáttarins sneru t.d. að fótum, doða, vöðvabólgu og bólgueyðandi lyfjum, stirðleika í baki, tinnitus o.fl. Gunnar sagði líka frá því í fyrri hluta þáttarins að hann fékk Covid-19 um jólin og er enn að glíma við afleiðingar, sem lýsa sér í þolleysi og hann hefur ekki náð fullu starfsþreki enn, u.þ.b. þremur mánuðum síðar. Í framhaldi af því nefndi hann að talsverður fjöldi fólks sem er einnig að glíma við afleiðingar Covid-19 er farinn að leita til sjúkraþjálfara til að reyna að ná árangri og framförum.
    39 min
  • Sérfræðingurinn Margrét Héðinsdóttir - hjúkrunarfræði og heilsuvera.is
    Í þetta sinn var sérfræðingur Mannlega þáttarins Margrét Héðinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og vefstjóri heilsuveru.is. Heilsuvera er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Embættis landlæknis og er vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar. Þar getur hver og einn átt samskipti við starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar og nálgast gögn úr eigin sjúkraskrám á öruggu vefsvæði. Sífellt fleiri nýta sér netspjall heilsuveru.is, en á síðasta ári átti starfsfólk heilsuveru 70 þúsund samtöl í gegnum netspjallið um allt sem viðkemur heilsu og líðan. Margrét fræddi okkur um starf sitt og sérfræðisvið og um þennan mikilvæga heilsuvef, auk þess svaraði hún spurningum frá hlustendum í seinni hluta þáttarins.
    34 min
  • Sérfræðingurinn Egill Þorsteinsson - kírópraktík
    Sérfræðingur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Egill Þorsteinsson kírópraktor, hann hefur verið meðlimur í Kírópraktorafélagi Íslands frá 2012 og formaður félagsins frá 2014. Egill ákvað að verða kírópraktor eftir að hafa átt í erfiðum og langvarandi íþróttameiðslum sem unglingur. Egill lærði kírópraktík í Bandaríkjunum þar sem hann bjó í fimm ár og hefur svo starfað hér á landi frá 1998 auk þess að fara reglulega erlendis til þess að bæta við menntun sína. Hann fræddi okkur um sitt fag, kírópraktíkina, eða hnykklækningar og svo í seinni hluta þáttar þá svaraði hann spurningum frá hlustendum þáttarins.
    39 min
  • Sérfræðingurinn Vilhelm Grétar Ólafsson - Tannheilsa
    Við erum alltaf með sérfræðing í þættinum á fimmtudögum. Í dag var það tannlæknirinn Vilhelm Grétar Ólafsson, en hann lagði stund á sérfræðinám í tannfyllingum og tannsjúkdómafræði í Bandaríkjunum og sinnir í dag ýmsum sérverkefnum eftir tilvísunum, svo sem meðhöndlun á erfiðum tannvandamálum vegna undirliggjandi sjúkdóma, meðhöndlun á glerungseyðingu, tannasliti o.fl.
    Vilhelm er jafnframt lektor í Tannfyllingum og Tannsjúkdómafræði við Háskóla Íslands, er virkur í rannsóknarstarfi, hefur í samstarfi við aðra vísindamenn birt fjölda faggreina í innlendum og erlendum fagtímaritum og heldur reglulega fyrirlestra, innanlands og erlendis.
    Hlustendur sendu inn spurningar í vikunni og við höfðum þetta eins og venjulega, töluðum almennt um tannheilsu í fyrri hluta þáttarins og lögðum svo spurningar hlustenda fyrir Vilhelm í seinni hlutanum.
    39 min
  • Sérfræðingurinn Arna Guðmundsdóttir - innkirtlar og sykursýki
    Það er fimmtudagur og það þýðir að við fengum við sérfræðing í Mannlega þáttinn í dag. Í þetta sinn var það innkirtlalæknirinn Arna Guðmundsdóttir. Við ræddum aðallega við hana um sykursýki enda snúa nær allar spurningarnar frá hlustendum í þetta sinn um þann sjúkdóm. En fyrst ræddum við við Örnu um ýmislegt sem snýr almennt að innkirtlum. Innkirtlakerfið er eitt af líffærakerfum mannsins og innkirtlakerfið vinnur með taugakerfinu við að samhæfa störf allra annarra líffærakerfa líkamans. Afurðir innkirtla nefnast hormón en þau má skilgreina sem lífræn boðefni sem berast með blóðrásinni um líkamann. Skjaldkirtill, heiladingull, nýrnahettur eru t.d. dæmi um innkirtla, en Arna sagði okkur meira frá þess og útskýrði starfssemi þessa líffærakerfis og í seinni hluta þáttarins svaraði hún spurningum frá hlustendum, sem voru sendar á netfang okkar [email protected].
    37 min
  • Sérfræðingurinn Breki Karlsson - fjármál heimilanna
    Í dag veltum við fyrir okkur fjármálum heimilanna og fengum því Breka Karlsson, sem var forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi en er nú formaður Neytendasamtakanna. Við ræddum við hann um fjármálalæsi þjóðarinnar, fórum með honum yfir algengustu vandamál sem fólk lendir í með heimilisbókhaldið og svo svaraði hann spurningum sem hlustendur hafa sent á netfang þáttarins, [email protected].
    40 min

About Sérfræðingurinn

From the publisher's feed

Sérfræðingurinn er nýr liður í Mannlega þættinum í dag þar sem sérfræðingar þáttarins svara spurningum hlustenda. Við fáum kynlífsráðgjafa, lækni, geðlækni, sjúkraþjálfara o.s.frv.