Sérfræðingurinn

Sérfræðingurinn

Download on the App Store

Sérfræðingurinn episodes

  • Sérfræðingurinn Berglind Stefánsdóttir - kulnun
    Sérfræðingur Mannlega þáttarins að þessu sinni var það Berglind Stefánsdóttir sálfræðingur og verkefnastjóri hjá VIRK. Við ræddum við hana um kulnun. Kulnun er og hefur verið mikið í umræðunni síðastliðin ár og skilgreiningin á hugtakinu hefur tekið nokkrum breytingum. Berglind fræddi okkur um þessa þróun og gefa okkur nýjustu upplýsingar varðandi kulnun og svaraði spurningum varðandi kulnun sem hlustendur hafa sent á netfang okkar, [email protected].
    34 min
  • Sérfræðingurinn Erla Björnsdóttir - fleiri spurningar um svefn
    Í þetta sinn var Erla Björnsdóttir, sérfræðingur í svefni og svefnvandamálum, aftur sérfræðingur Mannlega þáttarins. Hún var sem sagt líka sérfræðingur Mannlega þáttarins í síðustu viku, en þá var efnið alls ekki tæmt, við ákváðum því að fá hana aftur í þessari viku. Sem var eins gott, því hlustendur voru duglegir við að senda okkur spurningar og Erla gerði sitt besta til þess að komast í gegnum þær allar. Spurningarnar fjölluðu meðal annars um kæfisvefn, leiðréttingu á klukkunni, svefnlyf, dagsljósalampa, melatónín og almenn svefnvandamál.
    39 min
  • Sérfræðingurinn Erla Björnsdóttir - Svefn
    Fyrsti sérfræðingur Mannlega þáttarins á nýju ári er Erla Björnsdóttir. Erla er með doktorspróf í líf-og læknavísindum frá Háskóla Íslands. Í doktorsnámi sínu rannsakaði Erla svefnleysi, andlega líðan og lífsgæði hjá sjúklingum með kæfisvefn. Erla hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi og vinnur að rannsóknum á því sviði ásamt samstarfsfólki í Evrópu og Bandaríkjunum. Við fengum hana til þess að segja okkur frá sínu starfi og því helsta sem hennar skjólstæðingar eru að glíma við. Auk þess höfum við lögðum fyrir Erlu spurningar sem við fengum sendar inn frá hlustendum.
    31 min
  • Arna Skúladóttir sérfræðingur aðra vikuna í röð
    En í dag fengum við til okkar sérfræðing, eins og alltaf á fimmtudögum og það sem meira er er að við héldum áfram með Örnu Skúladóttur, sem var sérfræðingur þáttarins í síðustu viku. Hún svaraði þá spurningum um svefn og venjur barna undir 2ja ára aldri. Eins og við sögðum þá frá þá fengum við fleiri spurningar sendar inn frá hlustendum en nokkru sinni áður. Því ákváðum við að hún svaraði spurningum sem snéru að svefni yngri barna í síðustu viku, en í dag talaði hún um börn eldri en tveggja ára, svefnvenjur, svefnvandræði og uppeldið. Auk þess sem hún að sjálfsögðu svaraði spurningum frá hlustendum, sem við höfum fengið sendar í pósthólf þáttarins [email protected].
    40 min
  • Sérfræðingurinn Arna Skúladóttir - svefnvandamál
    Sérfræðingur Mannlega þáttarins í dag var Arna Skúladóttir hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í barnahjúkrun með svefn og svefnvandamál sem undirsérgrein. Hún starfar á Barnaspítala Hringsins og hefur tekið á móti þúsundum barna og foreldra sem leitað hafa til hennar með margvísleg svefnvandamál og fyrirspurnir. Árið 2006 sendi hún frá sér bókina Draumaland, svefn og svefnvenjur barna frá fæðingu til tveggja ára árið og hefur sú bók átt miklum vinsældum að fagna hér heima æ síðan, einnig hefur hún verið þýdd á fjölmörg tungumál. Nýja bókin, Draumaland, frá fæðingu til sex ára aldurs, byggir á þeirri góðu bók en er mun yfirgripsmeiri og ítarlegri en sú fyrri. Svo það var vel við hæfi að fá Örnu sem sérfræðing í þáttinn og enginn sérfræðingur hefur fengið eins margar fyrirspurnir frá hlustendum svo það var greinilega þörf fyrir fræðslu og svör um svefn og svefnvandamál.
    40 min
  • Sérfræðingurinn Margrét Eiríksdóttir - geðhjúkrun
    Í þetta sinn sérfræðingur Mannlega þáttarins Margrét Eiríksdóttir, sérfræðingur í geðhjúkrun hjá geðþjónustu Landspítalans. Við fengum hana til þess að fræða okkur um sitt sérfræðisvið, en hennar sérsvið er að hjúkra fólki með langvarandi eða endurtekna geðsjúkdóma og að vera fjölskyldum þeirra innan handar. Margrét hefur starfað við þetta í rúma fjóra áratugi. Hún segir að miklar framfarir hafi orðið á þessum tíma í þekkingu og þar með batamöguleikum og þjónustu við fólk með geðsjúkdóma og lífsgæði þeirra hafa aukist með tilliti til þess. Auk þess svaraði Margrét spurningum sem við höfðum fengið sendar frá hlustendum í pósthólf þáttarins, [email protected].
    32 min
  • Sérfræðingurinn Steinunn Anna - líðan barna
    Sérfræðingurinn okkar í dag var Steinunn Anna Sigurjónsdóttir sálfræðingur á Litlu Kvíðameðferðarstöðinni. Við ræddum við hana um börn og kvíða og andlega líðan barna og hún svaraði spurningum frá hlustendum. Hvað eru börn til dæmis að hugsa í þessu covid ástandi? Hefur kvíði aukist hjá þeim og hvernig kemur hann fram? Hvernig kemur maður auga á vanlíðan og hver eru merkin sem maður á að þekkja? Hvað er til ráða þegar barnið okkar er kvíðið? Steinunn Anna svaraði meðal annars þessu í þættinum í dag.
    37 min
  • Sérfræðingurinn Þórkatla Aðalsteinsdóttir - vinnustaðasálfræði
    Sérfræðingur dagsins í Mannlega þættinum var Þórkatla Aðalsteinsdóttir, sálfræðingur og ráðgjafi í mannauðsmálum. Hún hefur mikla reynslu af því að fara á vinnustaði að veita ráðgjöf og aðstoð á margvíslegan hátt. Í málum sem snúa að sáttamiðlun, áfallahjálp, andrúmslofti á vinnustöðum, vinnustaðagreiningu, einelti og kynferðislega áreitni á vinnustað og margt fleira. Við fengum Þórkötlu til að segja frá sínum störfum og til þess að svara spurningum sem hlustendur sendu okkur á netfang þáttarins, [email protected]
    33 min
  • Sérfræðingurinn Guðrún Jóhanna - Iðjuþjálfun
    Í dag var Sérfræðingur Mannlega þáttarins Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir, iðjuþjálfi.
    Hornsteinn hugmyndafræði iðjuþjálfunar er persónumiðuð nálgun í þjónustu. Iðjuþjálfar koma að þjónustu einstaklinga sem upplifa erfiðleika sem hafa áhrif á daglega iðju þeirra eða hindra getu þeirra til að taka þátt í mikilvægum athöfnum t.d. námi, vinnu, heimili, hreyfingu og tómstundaiðju. Þá kemur sérþekking iðjuþjálfa að góðu gagni við að auka færni og þátttöku einstaklinga með það að markmiði að þjónustuþeginn/viðkomandi öðlist aukið sjálfstæði og lífsfyllingu.
    Til þess að efla færni fólks nýta iðjuþjálfar matstæki tengt umhverfi, iðju og styrkleikum einstaklingsins, fræðslu, ráðgjöf og þjálfun. Í upphafi þjónustu er gert mat á getu og áhugasviði einstaklings, skoða þær venjur, rútínu og persónulegan vilja sem einkenna iðju hans og aðstæður, bæði félagslega og umhverfislega séð.
    Í dag ræddum við við Guðrúnu Jóhönnu Hallgrímsdóttur iðjuþjálfa, en hún er einnig með meistaranám í norrænum öldrunarfræðum. Guðrún sagði okkur almennt frá iðjuþjálfun og svaraði spurningum hlustenda
    32 min
  • Sérfræðingurinn Þórunn Sveinbjörnsdóttir - málefni eldri borgara
    Í dag er fimmtudagur og á fimmtudögum fáum við sérfræðing í þáttinn til þess að fræða okkur um sitt sérfræðisvið og ekki síst til að svara spurningum hlustenda. Sérfræðingur Mannlega þáttarins í dag var Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara. Hún fræddi okkur um þau málefni sem eru efst á baugi hjá sambandinu og hjá eldri borgurum og svaraði spurningum sem hlustendur sendu inn á netfang þáttarins. Það var um margt og mikið að ræða við Þórunni í dag.
    36 min

About Sérfræðingurinn

From the publisher's feed

Sérfræðingurinn er nýr liður í Mannlega þættinum í dag þar sem sérfræðingar þáttarins svara spurningum hlustenda. Við fáum kynlífsráðgjafa, lækni, geðlækni, sjúkraþjálfara o.s.frv.