
Sign up to save your podcasts
Or


Fyrirsögnin sneiðir fram hjá fjölda mikilvægra umræðuefna en þetta er þó mikilvæg spurning. Í þessum einstaka þætti Skoðanabræðra er Aron Kristinn Jónasson frumkvöðull og rappari fenginn að borðinu til að ræða málefni lands og þjóðar í víðum skilningi. Allt frá íslenskum her, algrími samfélagsmiðla og einsleitni í klæðaburði til vellíðunar við að koma inn á bandarískt salerni; að þannig eigi hlutirnir ef til vill að vera. Bandaríska tilraunin töluvert rædd; og farið yfir hvaða þætti Íslendingar þurfa að taka til fyrirmyndar.
Þátturinn í heild sinni á Patreon
Lögmál aðdráttaraflsins er ekki nógu gott þannig titillinn er á ensku, kannski í fyrsta skipti? Fræðimenn geta kannað málið. Í þessum þætti er einmitt talað um þetta lögmál, hvernig þú lætur hlutina gerast með jákvæðni og trausti. Þannig virkar þetta. Síðan tölum við líka um allskonar annað eins og íslenska tónlist, XXX Rottweiler, hvalveiðibann, Björk styttu, Ritstjórann og allskonar annað. Lesið The Secret kæra bræðralag og heimurinn verður okkar!
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur
Fyrsti þátturinn í nýju húsnæði Skoðanabræðra. Allt að gerast! Það sem er talað um meðal annars: Hvernig maður verður ríkur, að gera eitthvað sem skiptir máli, Guðni Th. forseti, samfélagsmiðla- og sjálfsfróunarfasta Nökkva Fjalars, munurinn á ungmönnum nútímans og árið 1970 og fullt fullt fleira.
2023 var risastórt ár fyrir öll. Heldur betur! Hér fara bræðurnir yfir árið sem leið, yfirvofandi vakningu, milljarðamæringshugsunarhátt, vonbrigði í aðfangadagsmessu, að vera feitur í hausnum á sér ásamt því að snerta á stemningunni í Portúgal þar sem Bergþór er staddur núna á milli jóla og nýárs. Hvað er málið með Portúgala?
Gleðilegt nýtt ár kæra bræðralag!
Bræðurnir eru komnir í jólaskap og fara yfir allt sem vita þarf í undirbúningi fyrir hátíðirnar. Bergþór ætlar að gera ýmislegt á nýju ári, en hann ætlar ekki sérstaklega að reyna að draga úr hugmyndafræðilegri einangrun sinni. Snorri á fyrstu jólin með börnum og hefur raunhæfar væntingar til góðrar skemmtunar. Umræðuefni: Upplýsingaóreiðan í jólaboðinu, Taylor Swift manneskja ársins hjá Time, væntanleg plata Kanye West og margt sem ég er núna að gleyma.
Víkingaflokkurinn, Víkingar, Bræður Íslands eða Þjóðveldisflokkurinn. Þetta eru allt nafnahugmyndir af nýjum stjórnmálaflokk sem lögð eru drög af hérna í þessum þætti. Jákvæðni, frelsi, hreysti og sannleikur. Þetta boðar flokkurinn. Guð blessi ykkur öll.
Atli Steinn Guðmundsson er blaða- og ævintýramaður. Glöggir hlustendur muna eftir honum úr #128 Skoðanir Noregs. Hreinn og beinn kóngur. Hér er talað um: Norðurlöndin, glæpi, rokk, lyftingar og ritstörf. Alhamdulillah!
Hér ræða bræðurnir við bardagakappann, frumkvöðulinn og mataræðisfrömuðinn Ívar Orra Ómarsson. Ívar Orri, einnig kallaður Seiðkarlinn, kafaði ofan í allt mögulegt tengt mataræði eftir að hann greindist með sykursýki – og lærði margt, sem hann deilir nú með fylgjendum sínum á Instagram.
Hann hefur einnig mjög ákveðnar hugmyndir um hinn eina sanna góða lífsstíl og hugarfar, sem allt er reifað í þessum þætti.
Fremsta hlaðvarp landsins heldur áfram að framleiða þetta hágæða. Snorri segir að löggan eigi að fá byssur en Bergþór segir Fuck The Police. Heimspekingurinn sem sameinaði austræn og vestræna speki Arthur Schopenhauer er ræddur og hans hugmyndir lauslega kynntar. Virðing sett á ICEGUYS og nýja forseta Argentínu hann Javier Milei. Allahu akhbar.
Hvað þarf leiðtogi fjöldahreyfingar eins og þeirra sem spruttu upp á 20. öld að hafa til að ná langt? Hvað þarf fjöldahreyfing til að virka? Hér er rætt um fjöldahreyfingar, Kanye, einkavæðingu sundlauganna í Reykjavík og ágæti einkaframtaksins, stórar hugmyndir eftir að Guð dó og í gegnum allt þetta: Farið með lifandi hætti yfir bókina True Believer eftir Eric Hoffer - sem fjallar um fjöldahreyfingar og þar með auðvitað sértrúarhópa hvers konar.
Þátturinn í heild sinni á Patreon.
From the publisher's feed

139 Listeners

214 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

17 Listeners

18 Listeners

67 Listeners

30 Listeners

28 Listeners

21 Listeners

17 Listeners

14 Listeners

25 Listeners

12 Listeners