
Sign up to save your podcasts
Or


Bergþór leiðir okkur í gegnum þrjú lögmál Bergþórs og við förum einnig yfir Lífsreglurnar fjórar eftir Don Miguel Ruiz. Halla T. mælti með þeirri bók í viðtali og menntunarfílístear á netinu reyndu að gera lítið úr sjálfshjálparviðleitninni. Annars fer hluti þáttarins í að fallast djúplega á kjör Höllu Tómasdóttur forseta. Aðrar pælingar; hver verður arftaki Trump? Sá sem kann á miðlana. En svona í alvöru: Þið verðið eiginlega að læra hvað „Bildungsphilister“ er – og þetta er fyrsta skrefið.
Skoðanabræður halda áfram að verja lýðræði og mannréttindi. Í þetta skipti tala þeir aðeins um forsetakosningarnar, pistil Auðar Jónsdóttur um íslenska valdafólkið, gervigreindina miklu sem á eftir að breyta öllu - og margt, margt annað. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.
Að þessu sinni eru bræðurnir staddir í vöggu vestrænnar siðmenningar, hafa varið mánuðum í að undirbúa umfjöllun um staðinn og segja nú gjörið svo vel, eftir að hafa heimsótt helstu staði í persónu. En óttist ekki að hér sé vísað til staða sem þið ekki þekkið eða til manna sem þið ekki þekkið! Þetta er kjörinn vettvangur fyrir byrjendur til þess að skyggnast inn í helstu atriði í forngrískri menningu, hvort sem það er heimspeki, listir, göfugar íþróttir eða einfaldlega sjálf fegurðin.
Sérstakur þáttur um 19. öldina íslensku og endurreisnina á íslenskri menningu sem átti sér þá stað.
Ef þetta hræðir þig, stígðu inn í óttann! Komdu og vertu með. Þetta er gott fyrir þig.
Aðalpersónur þessarar þáttar eru Jónas Hallgrímsson og Fjölnismenn (Konráð Gíslason, Tómas Sæmundsson og Brynjólfur Pétursson). Við tölum um hugmyndirnar þeirra, hvað þeir vildu og víbrurnar í kringum þá.
Allt þetta er gert til þess að komast betur að því hvaða hlutverki þessi gamla endurreisn 19. aldarinnar gegnir árið 2024. Skömmumst við okkur fyrir að vera Íslendingar? Hvert erum við að fara? Er dass af aukinni þjóðrækni svarið?
Komdu og vertu með í samfélagi sem skiptir máli. Áskrift kostar ekki nema 10$ á mánuði. www.patreon.com/skodanabraedur
Góðan daginn kæra bræðralag. Þetta er guðdómlegur þáttur sem tekur á móti ykkur þessa vikuna. Helst er talað um hvernig maður býr til vöru sem nær til venjulegs fólks. Þú gerir það með því að vera skýr. Í þessu samhengi ræðum við um sögur, skáldskap og hvernig hver og einn býr til sinn veruleika. Þarf maður óvin til þess að ná til massans? Hver er óvinurinn í dag? Þessu er svarað.
Bræðurnir svara ungum manni sem leitar til þeirra vegna stórra ákvarðana sem hann þarf að taka í lífinu, þeir fara yfir umræðu um Prettyboitjokko, þeir ræða málfund um anarkókapítalisma sem þeir sóttu í Sjálfstæðishúsinu og loks ræða þeir hughreystandi hugmynd um sigur hinna blaðrandi stétta á tímum gervigreindar, eins og Peter Thiel sér hann fyrir sér.
Patrik Snær Atlason er Prettyboitjokko og hann sest í ráðuneyti Skoðanabræðra þessa vikuna. Það er meira í manninn spunnið en bara glimmer og peningar, hann hefur ákveðnar hugsjónir og hugmyndir sem vert er að laða fram í dagsljósið. Persónuleg krísa hans fótboltamanns og fyllibyttu, eitrað umhverfi, að finna sjálfan sig á ný, fjárfestingar, peningamál til framtíðar, hugsjónin um að funda með Jóni Ásgeiri, Porsche-inn, drykkjan í Covid, hefðbundin kynjahlutverk, að svara símtölum frá gaurum sem þú vilt ekki hitta í húsasundi og svo framvegis og svo framvegis. Kvót: „Ég hitti Egil Helgason í Kringlunni og hann horfir ekki einu sinni á mig. Gaur, þú átt ekkert í þetta.“
Í þætti vikunnar lögðu bræðurnir það á sig að hlusta á fyrsta þátt Skoðanabræðra frá apríl 2019 – fimm árum eftir útgáfuna á fimm ára afmæli þessa fremsta hlaðvarps landsins. Óhjákvæmilegt var við þær aðstæður að leggja niður fyrir sér þá hugmyndastrauma sem mótað hafa bræðurna og þeir mótað þá á móti á viðburðaríkum hlaðvarpsferli. Ekki var laust við að menn þjáðust töluvert við að skyggnast aftur í tímann og horfast í augu við sjálfa sig. Sumt eldist reyndar vel. En fátt.
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur
Farið yfir stjórnmál, forsetakosningar og upprisa SDG. Einnig snert á því konsepti að aflæra hugmyndir og halda huganum opnum. Gervigreind og einkaherir. Komiði með, tjékkum á þessu. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur
Vakningin virðist engan enda ætla að taka. Það er ekkert annað hægt en að gefa í. Hérna tölum við kvótakerfið og gamalt hugarfar Bergþórs gagnvart því, hvernig maður eigi að losa sig undan áliti skrílsins og skilgreiningu Earl Nightingale's á skapandi fólki. Hvað er að vera skapandi? Lúseralistamaður eða king?
From the publisher's feed

139 Listeners

214 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

90 Listeners

17 Listeners

17 Listeners

68 Listeners

30 Listeners

28 Listeners

21 Listeners

20 Listeners

14 Listeners

25 Listeners

10 Listeners