
Sign up to save your podcasts
Or


Nassim Nicholas Taleb er sérfræðingur í líkindum, fjárfestingum og almennum kóngalífstíl. Tvímælalaust einn af mikilvægari höfundum samtímans, eins og stöðugar vinsældir bóka hans sýna. Á meðal þeirra: Fooled by Randomness, Black Swan, Antifragile og Skin in the Game. Í þessum þætti förum við efnislega yfir einstaka, nýstárlega og nærandi hugmyndafræði Taleb, sem getur líklega gert þig að betri manni. Viltu til dæmis hætta að vera viðkvæmur og verða beinlínis andviðkvæmur? Engrar þekkingar á neinu krafist til þess að ýta bara á play!
Bláa pillan eða sú rauða? Hið svokallaða matrix er tekið til umræðu. Hvernig aflærum við hluti og sleppum tökum á óuppbyggilegum konseptum? Það er spurning - hlustaðu og kannski verðurðu einhverju nær.
Biðin var löng og ströng en nú er hann mættur í hljóðver til okkar, enginn annar en Beggi Ólafs. Hann býr í Los Angeles en er í heimsókn í framtíðarlandinu. Hann ætlar sér stóra hluti úti, er með hugann við persónulega þjálfun, við gervigreind, við sálfræði, við bætingar og hefur frá mörgu að segja. Ferilllinn! Hvernig varð Beggi Óla að þeim sem hann er, hvernig var í fótbolta, ekki eitrað, segir Beggi, það var samt mjög sturlað og jú smá eitrað, en þar er ekki átt við „klefamenninguna“. Við ræðum þá kontróversíurnar, sem hafa verið nokkrar. „Umdeildur“ er stundum sagt. Þetta er allt voðalega vinalegt.
Sérstakur þáttur um elítur; hvernig þær fúnkera, af hverju þær eru til - og hvernig stjórna þær hugmyndum og kerfum? Til þess að skilja þetta betur skoðum við bókina The Machiavellians: Defenders of Freedom eftir James Burnham. Epískar pælingar þar. Í samhengi við þetta er lauslega snert á vibe-shifti sumarsins: Donald Trump, Peter Thiel og Elon Musk. Hvað er í gangi?
Í þessum þætti fara bræðurnir yfir Marc Andreessen frumkvöðul frá A til Ö, þannig að þú þarft ekki að vita hver hann er til að byrja að hlusta. Hann skrifaði skjal að nafni Techno-Optimist Manifesto á dögunum, þar sem verulega verðmæta innsýn er að finna. Stjórnmál, fjárfestingar, andlegt ástand almennings, allsnægtahugarfarið, orkumál, allt mögulegt á milli himins og jarðar. Ef þú ert týndur og þér finnst hugmyndafræði þín ekki passa við daglegar athafnir þínar – hlustaðu á þennan þátt og sjáðu hvort þú getir látið þetta passa.
Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur
Stjörnuspeki er ekki fyrirbæri sem við höfum gert mikil skil á þessum vettvangi fram að þessu enda lifum við tíma vísindahyggjunnar og ef trúarbrögð koma við sögu eru þau ekki að nafninu til byggð á stjörnuspeki, þótt sá
Í dag er fjallað um nýja leið til að skilja stjórnmál nútímans: Það er rautt lið, blátt lið og það er grátt lið. Gráa liðið fílar margt sem rauða liðið gerir en það er samt alls ekki rauða liðið. Það er að segja: Við í gráa liðinu trúum meira á framtíðina en fortíðina. Einnig fjallað um mikilvægi þess að lifa í allsnægtum og farið aðeins yfir feril Howard Hughes.
Óformlegt framhald Íslandsögunnar. Í þetta skipti þræðum við 20. öldina. Að sjálfsögðu er frásögnin ekki línuleg, rétt eins og Íslandssaagan. Önnur umræðuefni eru kynjuð loftslagsmál í samhengi við afnýlenduvæðingu og svo veðmálafyrirtæki á Íslandi. Rannsóknarspurning er sett fram í byrjun þáttar: Hver er merkilegasti Íslendingur allra tíma? Svör í lokin.
EINLÆGLEGA: Óvænt epískur þáttur sem allir þurfa að hlusta á – fróðleikur og mikilvægar pælingar um stöðu mála. - Í þætti dagsins, sem verður mögulega hluti af þriggja hluta seríu, er farið yfir sögu Íslands frá upphafi daga, þjóðveldisöldin, goðakerfið útskýrt, myrku aldirnar og allt fram til nítjándu aldar. Mikið farið út af sporinu samt og farið í stærri spurningar. Allt er þetta gert til að reyna að svara spurningunni: Er prójektið Ísland enn þess virði – á það sér framtíð, eða er þetta búið?
PATREON fyrir meira efni.
Sérstakur þáttur um Steve Jobs. Áhrifamesta mann mannkynssögunnar? Kannski.
Hérna er stiklað á stóru varðandi ævi og feril meistarans. Hvað gerði hann að svona miklum snilling? Hvernig fór hann að þessu? Hvaða öfl voru að verki? Hvað hafði áhrif á hann? Hvernig hugsaði hann? Hvað getum við lært af honum? Þessu öllu er svarað hérna í þessum sérstaka þætti Skoðanabræðra. Guð blessi ykkur kæra bræðalag.
From the publisher's feed

139 Listeners

214 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

90 Listeners

17 Listeners

17 Listeners

68 Listeners

30 Listeners

28 Listeners

21 Listeners

20 Listeners

14 Listeners

25 Listeners

10 Listeners