Skoðanabræður

Skoðanabræður

By Bergþór MássonEducationSelf-Improvement
Download on the App Store

Skoðanabræður episodes

  • #208 Árið 2021 kvatt

    Nýliði ársins: Tommi Steindórs. Þú færð ekki að vita meira - við förum yfir allt árið með mjög samviskusamlegum hætti hér rétt undir lokin. Hver er maður ársins? Klúður ársins? Viðburður ársins? Comeback ársins? Farðu á Patreon!

    1 hr 7 min
  • #206 Skoðanir Ísaks Hinrikssonar

    www.patreon.com/skodanabraedur

    Ísak Hinriksson leikhúsmaður og king kemur sér vel fyrir í Egilsstofu og ræðir það sem skiptir máli við Skoðanabræður; áróður skólakerfisins, hinn toxíska Halldór Laxness, að fara til útlanda, að vera eða ekki vera, Þórólf kaupfélagsstjóra, gellurnar í LHÍ, tilgangsleysi og frelsi.

    1 hr 42 min
  • #205 Sænska leiðin/sænsku gengin

    Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur

    Covid takmarkanir og róttækar skoðanir á þeim komnar frá jaðrinum inn í meginstrauminn... loksins.. staða mála í Svíþjóð (glæpir, morð, byssur, Einár).. The Godfather, Sopranos, Goodfellas og drill tónlist.. skötur í heimahúsum (ætti að vera bannað).. hin klámsjúka Billie Eilish..

    1 hr 4 min
  • #204 Skoðanir Braga Páls Sigurðssonar

    Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur var að gefa út skáldsöguna Arnaldur Indriðason deyr. Sá titill pirrar suma. Hneyksli, og við gerum það upp. Að öðru leyti kóngur og blaðamaður og pistlahöfundur og aumingi árum saman. Vinstrivillingur en faðirinn Miðflokksmaður. Margt í þessu...

    En byrjum hér: Íslendingar eru að uppistöðu Írar, ekki Norðmenn, eins og haldið hefur verið fram. Hér fer Bragi yfir rök sem hníga að þessu. Raunverulega áhugavert og ef þú ert sagnfræðingur, fokkaðu þér.

    Síðan þetta. Fulltrúalýðræðið er hrunið, það sér hver maður sem er með fullum sönsum. Því þarf að draga á Alþingi, sem Bragi segir að sé hugmynd sem sé nokkuð til umræðu á meðal fólks þessi dægrin. Maður hafði svosem ekki heyrt af henni fyrr en nú, en ekki seinna vænna. Lottóræði – kynnt til leiks; Skoðanabræður frjór vettvangur ferskustu hugmyndanna.

    Farið á Patreon, taparar!

    1 hr 57 min
  • #203 „Ungar konur í blóma lífsins“

    Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur

    Mánudagsmorgun í Egilsstofu! Stemning eins og vanalega. Það sem er talað um m.a er; Picasso, hlutverk ungra kvenna í bókmenntun, fjölskyldur, bólusetningar, Joe Rogan, Hverfisgata og jólin.

    1 hr 2 min
  • #202 Skoðanir Frosta Logasonar og Mána Péturssonar

    Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur


    Skeggfestival í Egilsstofu þetta laugardagseftirmiðdegið. Harmageddon bræður líta við og tala um allt sem er gaman að tala um; lúserana á þingi, endalok þáttarins, kreppuna, pólitísku þróun sína, góða fólkið, radíkalíseringu, samskipti við valdhafa, svívirðingar, skammir ofl ofl ofl.

    1 hr 47 min
  • #202 Léttasta vinna í heimi

    Hver er léttasta vinna í heimi? Hér er sett fram alvarleg kennning. Og það er alvarleg stemning á sunnudagsmorgni. Hvort mótar þinn heila, hlaðvörp eða útvarp? Skiptar skoðanir. Skoðanabræður hvetja Gísla Martein til að íhuga framboð. Styttist í kosningar.

    Issi nýr rappari: „Ég ætla að taka yfir.“ Viturleg orð fyrir upprennandi einstakling. Er það vel. Hvað annað? Tesla er það öðrum rafbílum sem iPhone er Android-símum. Þetta liggur fyrir. Og margt fleira. Farið á Patreon!

    58 min
  • #201 Skoðanir Fríðu Ísberg

    www.patreon.com/skodanabraedur

    Fríða Ísberg skáld og rithöfundur fær sér sæti í Egilsstofu og ræðir pólaríseringu, samkennd, ritstörfin, gagnrýni, success, stjórnmálin almennt, spítaladvöl sína, nýju skáldsögu sína Merkingu og allskonar annað epískt.

    1 hr 42 min
  • #200 Stóri þátturinn um fíkn

    Í vikulegum þætti er rætt um grasfíkn, áfengisfíkn, lögleiðingu í Þýskalandi, þráhyggjur, gerðar upp sakir við Fortuna Invest og hinir óumflýjanlegu fjórir kostir hvers karlmanns; I. að verða að föður sínum; II. að ganga í herinn; III. að gera konseptlist; eða IV. að deyja í skóginum.  Og auk þess leggjum við til að ÁTVR verði lögð í eyði. Farið á Patreon!

    1 hr 5 min
  • #199 Skoðanir Kjartans Þórissonar

    Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur

    Kjartan Þórisson er king frumkvöðull og hefur sett nokkur fyrirtæki á stofn í gegnum tíðina. Við förum yfir startup heiminn í viðu samhengi - á skemmtilegan hátt. Geðsjúka peningamaskínan Google, Noona, heilsukvíði, Guð, Zuckerberg, Game A & Game B, framtíðin, ethics, hnignandi heimsveldi, peningar, sýn, stefnur, samfélög og stjórmál!

    2 hr 25 min

About Skoðanabræður

From the publisher's feed

www.patreon.com/skodanabraedur

More shows like Skoðanabræður

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners