
Sign up to save your podcasts
Or


Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur
Kjartan Þórisson er king frumkvöðull og hefur sett nokkur fyrirtæki á stofn í gegnum tíðina. Við förum yfir startup heiminn í viðu samhengi - á skemmtilegan hátt. Geðsjúka peningamaskínan Google, Noona, heilsukvíði, Guð, Zuckerberg, Game A & Game B, framtíðin, ethics, hnignandi heimsveldi, peningar, sýn, stefnur, samfélög og stjórmál!
Veður eru válynd… nóvember. Þetta gerist ekki verra, segir Bergþór, en það er jákvætt. Þetta er þess vegna bókstaflega ekki að fara að verða verra. Til umræðu í vikunni eru að sjálfsögðu einkum skilaboð kvennanna í Fortuna Invest til þjóðarinnar: Lánveitingar skipta meiru máli en helgur menningararfur. Það er svosem hægt að fallast á það í svona praktískum skilningi. En málið er flóknara, eins og hér er rætt. Við ræðum einnig stöðu fjölmiðla, eins og okkar er von og vísa. RÚV – eru þau að missa tökin, er spurt. Og Rosalía.. verður sá katalani næsta stórstjarna heimsins?
Sælir, Nilli, og nú er hann mættur í Skoðanabræður, öllum þessum árum síðar. Hann er útskrifaður leikari, hefur verið lykilmaður í Íslensku óperunni um árabil og kann bíómyndina uppúr Kristnihaldi undir jökli utan að. Persónulegt viðtal við Niels, sem er sérstaklega mikill kóngur, verður að segjast. Og auðvitað, óhjákvæmilega, eru gerð upp þau miklu eftirmál sem urðu af sakleysislegu freestyle-i Nilla fyrir sjónvarp mbl.is á Airwaves 2011. Að verða stjarna fyrir annað eins er auðvitað einstakt fyrirbæri í menningarsögunni – en þetta er frægð sem hefur verið nýtt til góðs.
Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur
Stemningin var gífurleg í Egilsstofu þetta mánudagskvöldið. Epískur þáttur og epískar umræður um Joe Biden og hægðirnar hans, Verzló Vælið, hvort það sé í lagi að hringja sig inn veikan, Viðreisnarlibba, Dave Chapelle & Þórdís Kolbrún & transfólk, Spánn, heilbrigðiskerfið og íslenska vinstrið.
Glódís Guðgeirsdóttir er fyrrverandi fimleikakona, jarðfræðingur og leikmaður í leiknum. Hérna er farið yfir allt það sem er gaman að hlusta á fólk tala um í podcasti: Lyftingar, Twitter, Fimleikasambandið, borgarskipulag, Vatnsenda, Flateyri, djammið og bíla.
Snorri á Spáni, Bergþór í borg kvíðans. These are dark times, there is no denying. But you can't fight this war on your own, Mr. Potter… segir á einum stað. Þetta á líka við núna, og um hlustendur Skoðanabræðra – þið þurfið á þessu að halda. Ýtið á play og hlustið á vitrænar samræður um allt frá nýju nýlendustefnunni til hins syfjaða einstaklings í Hvíta húsinu. Hvað gerir maður þegar Frakkarnir týna töskunni manns og hvert fer maður, ef það er engin leið út úr heiminum?
Jóhann Kristófer Stefánsson og Tatjana Dís eru að sitja upp leiksýninguna Sýningin Okkar í Þjóðleikhúsinu. Skoðanabræður höfðu svo gaman af sýningunni að þeir vildu ræða hana frekar og fengu kings í þáttinn. Joey ætti að vera bræðralaginu kunnur - þetta er tíunda framkoma hans í Skoðanabræðrum, en annars er hann sviðshöfundur og rappari. Tatjana er sviðshöfundur og raftónlistarkona. Hérna er talað um: kakóhægrið, Leynilögguna, áföll, fjölmiðla, samfélagsmiðla, seremóníur, hlutverk listar og allt þetta helsta sem gaman er að tala um. KING þáttur hér á ferð!
Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur
Í þessum kóngalega bræðralagsþætti er farið um heima og geima en hinum hreina þræði haldið þéttum í gegn eins og vanalega. Umræðuefni eru meðal annars; hrekkjavökur í Hlíðunum, poppstjörnur, tæknimenntað fólk, Kim Kardashian, Pete Davidson, Nóvember, Freud fjölskyldan og The Century of the Self, Simmi Vill og nýja félagið hans, aðdragandi morðsins á sænska rapparanum Einár ofl ofl ofl.
Farðu á Patreon fyrir heildarupplifunina. Það kostar í alvöru mjög lítið.
Það er talað um poetic justice í enskumælandi löndum... að fá Jóhannes Hauk til að gagnrýna ráðstafanir Skoðanabræðra í auglýsingamálum, en um leið nota viðtalið við hann til að fjölga áskrifendum að sama kerfi og gerir þeim kleift að stunda umræddar brellur. Brellur er ákveðin leið til þess að orða þetta og að mínu mati ómakleg. Þetta eru afkomubætandi áherslubreytingar. Sömuleiðis ræðum við mál Alec Baldwin við Jóhannes Hauk, sem hefur töluvert um það mál að segja.
En, hér er ýmislegt annað rætt; psycho vibes hjá stærsta fjölmiðlaútgefanda í Evrópu, endalaus lúserakuldi í Reykjavík, tónleikarnir hennar Bríetar, baksviðið hjá Gísla Marteini þegar goons mættu á staðinn og að sjálfsögðu, margt fleira.
From the publisher's feed

139 Listeners

214 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

17 Listeners

18 Listeners

67 Listeners

30 Listeners

28 Listeners

21 Listeners

17 Listeners

14 Listeners

25 Listeners

12 Listeners