
Sign up to save your podcasts
Or


www.patreon.com/skodanabraedur
Fyrsta einkaviðtalið við Tuma Gonzo Björnsson, manninn sem Trumpaði forsetakosningar MH árið 2015 og lofaði að gera skólann meira dirty. Þátturinn er tekinn upp í Egilsstofu og karlmennirnir þrír sem grípa í mæka eru allir í rúllukragapeysum. Hér talar Tumi um hvernig hann komst inn á Sviðshöfundabraut LHÍ (Joey Christ brautina), hvernig hann lauk því námi og hvað hann fékk út úr því. Einnig talar hann um grasferðir til Amster, vinnuna í ferðaþjónustunni, reefer partí í Vesturbænum, MH heimapartí, raf- og rokktónlist og Secret Solstice.
Já.. það er nauðsynleg umræða. Annað sem er mjög til umræðu er ögrandi sundfatnaður kvenna, sem Skoðanabræður telja sig í stöðu til að hafa skoðun á. Enn annað sem er mjög til umræðu í þættinum: Stóra plastmálið, þar sem fyrirtæki telja sig þess umkomin að skerða lífsgæði neytenda í nafni sýndarmennsku. Hver tapar?
Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur
Karlmaður vikunnar er núverandi samfélagsmiðlastjóri Ríkisútvarpsins og fyrrverandi fjölmiðlamaður; Atli Fannar Bjarkason, kóngurinn sjálfur. Við tölum um bóluefni, samfélagsmiðla, fjölmiðla, Bandaríkin, íslenska pólitík - og allskonar annað sem skiptir máli.
Já.. ekki aðeins MDMA á reifi í Reykjavík og allt um reynslu annars þáttastjórnanda af öðru eins, heldur líka ólöglegt partí á Flateyri. Ertu lögga? Njóttu vel. „Hvað er það sem lætur fólk elska að gera hluti sem það má ekki,“ spyr einn king. Svara leitað. Önnur umræðuefni: Nietzsche og siðferðið, svívirðingar á TikTok og Óli Stef handboltamaður. Patreon!!!
Frá þeim sem færðu þér Skoðanir Siffa G., Skoðanir Siffa G. II. og Skoðanir Tomma Steindórs, koma nú Skoðanir Siffa G. og Tomma Steindórs! Þetta er tímamótaveisla - rúta af Tuborg og staðreyndir. Strákar eru æðislegir! Ekkert um stöðu fjölmiðla, ekkert um skaðsemi samfélagsmiðla og ekkert um íslenskar bókmenntir. Bara veisla: Eru dýragarðar siðferðislega réttlætanlegir? Já. Strákaferðir? Veisla. En að vera strákur í sex manna hóp? Tækt á meðan þið eruð ekki fleiri. LungA? Gardínuhátíð, en kóngalegt að mæta þangað nokkrir gaurar frá AK. Kveikið á þessu. Patreon, Skoðanabræður, styðjið þetta framtak.
Jóhann Kristófer og Logi Pedro Stefánssynir mæta í Egilsstofu og koma galvaskir inn í seinni hluta Kanye West seríu SB Projects ehf. Epík eina sanna í loftinu eins og vanalega. Í þessum þætti er m.a talað um The Life of Pablo, Kim Kardashian og fjölskyldu, Jesus is King, Trump, ye, Pusha T og framtíð Kanye.
Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur
Salka Valsdóttir tónlistarkona fær sér sæti í Egilsstofu og fer yfir stóru málin með okkur. Fyrri hluti: MeToo, sjálfskoðun, trauma og sársauki Íslendinga. Seinni hluti: Berlín, saga og þýðing Reykjavíkurdætra, leikhúsmenning þýsk og íslensk, listgagnrýni og sköpun.
Jóhann Kristófer og Logi Pedro Stefánssynir mæta í Egilsstofu og koma galvaskir inn í seinni hluta Kanye West seríu SB Projects ehf. Epík eina sanna í loftinu eins og vanalega. Í þessum þætti er m.a talað um Cruel Summer og Yeezus, raftónlist og geðveiki.
ClubDub mæta aftur tveimur árum eftir fyrri þátt. Þeir hafa þroskast - nema nei! Óábyrgt tal í boði Skoðanabræðra þessa vikuna, en líka ýmislegt skynsamlegt. Þetta er bókstaflega epískur þáttur.
Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur
Jóhann Kristófer og Logi Pedro Stefánssynir mæta í Egilsstofu og koma galvaskir inn í seinni hluta Kanye West seríu SB Projects ehf. Epík eina sanna í loftinu eins og vanalega. Í þessum þætti er talað um Taylor Swift og VMAs, meistaraverkið mikla My Beautiful Dark Twisted Fantasy og svo Watch The Throne.
From the publisher's feed

139 Listeners

214 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

17 Listeners

18 Listeners

67 Listeners

30 Listeners

28 Listeners

21 Listeners

17 Listeners

14 Listeners

25 Listeners

12 Listeners