Skoðanabræður

Skoðanabræður

By Bergþór MássonEducationSelf-Improvement
Download on the App Store

Skoðanabræður episodes

  • #149 Skoðanir Ísabellu Lenu

    Patreon! Skoðanabræður. Komið í áskrift.

    Já... hér segir titillinn allt sem segja þarf. Skoðanir Ísabellu Lenu. Er MeToo gengið of langt? Nei, grín. Hér er rætt um mál málanna, ofskynjunarlyf, sem mig grunar svo sem að verði kallað eitthvað allt annað að liðnum fáeinum árum eftir því sem þekkingu vindur fram á fyrirbærinu. Það á sem sagt að nota þetta í lækningum, og Ísabella ætlar að vinna við það. Við ræðum einnig hið pólitíska landslag, sem sagt um allt þetta ógeðslega fólk sem er alls staðar í andlitinu á manni alltaf.

    2 hr 6 min
  • #148 Skoðanir MS

    Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur


    Menntaskólinn við Sund tekinn fyrir. Páll Bergþórsson lögfræðingur (f. 1990) og Stormur Kormákur Baltasarsson (f. 2002) fara yfir málin. U-ið, baggið, djammið, dópið?, kúkaklósettin, sterarnir, vinkonurnar og staða skólans í valdastrúktur íslenska menntaskólakerfisins. Lengi lifi Beljan, lengi lifi Svanurinn, þetta er Gnoðavogurinn!

    1 hr 11 min
  • #147 Skoðanir Jakobs Bjarnars Grétarssonar

    www.patreon.com/skodanabraedur

    „Guð minn almáttugur já“, „loksin loksins“, „shit hvað ég fkn hlakka til að hlusta“. Þetta eru viðbrögð nokkura meðlima bræðralagsins (skeggjuðustu smásálirnar? maður spyr sig) sem fengu, á undan öðrum, að frétta af því að The Dark Knight Jakob Bjarnar hafi fengið sér sæti í Egilsstofu með okkur eitt föstudagskvöldið og látið gamminn geysa. Væntingarnar voru miklar og Jakob stóðst þær. Hér er talað um; íslenska fjölmiðla, mikilvægi DV & Mannlíf, hvað ógeðslegir Íslendingar höndla ekki sannleikann, áhrifavalda, Sölva Tryggva - og margt fleira.

    2 hr 11 min
  • #146 Skoðanir Verzló

    Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur


    Verzlunarskóli Íslands, þar sem valdafýsnir ungir karlmenn komast í fyrsta skipti í snertingu við hinn sjúka heim spillingar, læra að svívirða konur og aðra hópa sem minna mega sín, bæla niður allra tilfinningar, drepast á bjórkvöldum, kýla í veggi, öskra í kodda, og ganga yfir mörk? Eða hvað? Sóley Margrét Valdimarsdóttir (f. 2002) stjórnar hlaðvarpsþætti Verzlunarskólans; Verzló Podcast. Hún greinir stöðu Marmarans í dag. Aron „Mola“ Ólafsson (f. 1993) útskýrir að „PC var ekki til“ þegar hann var í Verzló. 12:00 þættir, Morfís, Gettu Betur, Nemendafélagskosningar, Leynifélög. Þetta er allt rætt!

    1 hr 15 min
  • #145 Skoðanir Karls Ólafs Hallbjörnssonar

    Karl Ólafur Hallbjörsson heimspekingur er karlmaður vikunnar.

    Umræðuefni eru meðal annars: Þegar ljóðabækur fara sem stormsveipur um samfélagið, Karl Marx, þjáningar íslenska nútímamannsins vs. þjáningar þræla á sveitabýlum fornalda, heimspeki & þunglyndi, að búa í útlöndum, húmorsleysi hægrimanna, Twitter ofl ofl

    2 hr 8 min
  • #144 Skoðanir MH

    Hlustaðu í fullri lengd inn á www.patreon.com/skodanabraedur - Hvaða viðbjóður er Norðurkjallari? Eru MH-ingar enn grashausar í gardínum eða er byltingarandinn á undanhaldi? Og tengist það nýjum sófum í Norðurkjallara? Anti-homeless architecture hefur aldrei átt meiri rétt á sér. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur og Sunna Tryggvadóttir nýútskrifaður MH-ingur ræða skólann í fortíð og framtíð. „MH er nýi Kvennó“ heyrðist sagt í Reykjavík á dögunum. Er það rétt?

    1 hr 13 min
  • #143 Skoðanir Önnu Marsibil Clausen

    Fullkomlega frjáls fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur


    Anna Marsibil Clausen útvarpskona í mikilli veislu hér.

    Umræðuefni eru meðal annars: Hlaðvörp sem gas eða visionary stream of consciousness, fjölmiðlaumhverfi Íslands, áhrifavaldar & árás þeirra á lýðræðið, Davíð Oddsson og hlutverk hans á Íslandi í dag, ekki nauðgarar heldur fólk sem nauðgar, valdeflandi twerk, RÚV, menningargagnrýni, MeToo, forræðishyggja, TikTok og svo mögulegt menningarnám Bassa Maraj og félaga?

    2 hr 34 min
  • #142 Skoðanir Kvennó

    Hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur

    Kvennaskóli Reykjavíkur - einu sinni bara fyrir konur en nú einnig fyrir karlmenn. Kvennskælingar eru allskonar eins og kemur í ljós í þessu samtali. Einhverjir myndu lýsa þeim sem fullkomlega venjulegu fólki; heiðarlegum Íslendingum - en sumir myndu hinsvegar svívirða og segja þá meðalmennskuna uppmálaða. Skoðanabræður taka ekki afstöðu, endilega.

    Maríanna Katrín (fædd 2003) og Stefán Gunnar Sigurðsson (fæddur 1993) fara yfir málin með okkur.

    1 hr 18 min
  • #141 Skoðanir Bergs Ebba Benediktssonar

    Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur


    Karlmaður vikunnar er Bergur Ebbi grínisti, rithöfundur, fyrirlesari og podcastari!


    Umræðuefni þáttarins eru meðal annars; staða íslenskra hlaðvarpa, Norðurslóðir, líkamsstaða, jakkar, að klæða sig eftir aldri, ógnarvald Facebook, customer service tæknifyrirtækja, áhrifavaldar & stjórnmálamenn, Áslaug Arna, Guðmundur umhverfisráðherra, árshátíðir, íslenskir fjölmiðlar og Morgunblaðið '95.

    2 hr 6 min
  • #140 Skoðanir MR

    MR? Nördar? Lúðar? Kvenhatarar og vændiskonumyrðandi karlmenn? Femínistar? Allt saman, er rétta svarið, virðist vera, enda útilokar ekki annað hitt, en þar með er ekki öll sagan sögð. Þetta er margslungin ofbeldisstofnun sem við gerum hér tæmandi skil í einum þætti (sem má nálgast í heild á Patreon, ef þú ert í hlaðvarpsveitunni þinni að vera lúser). Umræðupunktar: Böll, áfengi, stofulúðar, gangnaslagur, málbreytingar og svo framvegis og svo framvegis.

    Persónur og leikendur eru þessir: Þrír MR-ingar á móti einum Verzlingi, Bergþóri Mássyni. MR-ingarnir eru Grímur Smári Hallgrímsson, fæddur 2002 og úr Laugalækjarskóla, Guðrún Sóley Gestsdóttir, fædd 1987 og úr Hagaskóla, og loks Snorri Másson, fæddur 1997 og einnig úr Hagaskóla.

    1 hr 21 min

About Skoðanabræður

From the publisher's feed

www.patreon.com/skodanabraedur

More shows like Skoðanabræður

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners